Vísbending


Vísbending - 04.01.1990, Síða 4

Vísbending - 04.01.1990, Síða 4
VÍSBENDING PÓLLAND:________________________ Undirbúningur afar róttækra efnahagsaðgerða á lokastigi Um fjögurra mánaða skeið hafa verið í undirbúningi mjög róttækar efnahagsaðgerðir í Póllandi sem ætlað er að komist í framkvæmd í byrjun ársins. Greinilegt er að Pólverjar hyggjast gjörbylta efnahagskerfinu á mjög skömmum tíma. Forgangs- verkefnið er að ná verðbólgu niður en hún er um 600%. I því skyni verður ráðist í róttækar aðgerðir á þremur sviðum. í fyrsta lagi á að reka ríkissjóð án halla og til þess að svo megi verða á að afnema niðurgreiðslur á tveimur þriðju hlutum þeirra vara sem nú njóta þeirra. Og verksmiðjur fá ekki lengur notið sérstakra vildarkjara á lánum. Þá er ætlunin að selja ríkiseignir til að draga úr hallanum. Verðákvarðanir verða að mestu frjálsar og búist er við að verðhækkanir verði mjög miklar í kjölfarið, jafnvel sex til áttfaldar á t.d. orkuverði. f öðru lagi verður gengi gjaldmið- ilsins, zloty, fellt og er í því sambandi talað um að dollarinn fáist á 14.000 zloty í stað 6.000 sem er opinbert skráð gengi í dag. Eftir gengisfellinguna verður reynt að halda genginu stöðugu og í því skyni verður notaður einn milljarður dollara sem Alþjóða- gjaldeyrissjóðurinn meðal annarra hefur látið af hendi. Takmarkið er að gjaldmiðillinn verði gjaldgengur í alþjóðlegum viðskiptum. í þriðja lagi verður strangt aðhald með launahækkunum og takmarkið verður beinlínis raunlaunalækkun. Þeir sem borga laun umfram tiltekið hámark verða að greiða sérstakan skatt til ríkisins. Áhrifin af þessum aðgerðum geta orðið mjög afdrifarík. Búist er við að verðlag hækki mjög mikið í janúar en vegna raunlaunalækkunar, sem gæti orðið allt að 20%, þá má reikna með að verðlag hækki mun minna þegar frá líður. Aætlanir gera ráð fyrir 50% hækkun í janúar en aðeins 5% í apríl. Þá er gert ráð fyrir fjölda gjaldþrota til að byrja með vegna þess að ljóst þykir að mörg fyrirtæki eigi óhægt með að komast af án ríkisstyrkja. En um leið skapast betri grundvöllur en ella fyrir víðtækri einkavæðingu. Atvinnuleysi á líka eftir að vaxa og verður framlög- um til hjálpar bágstöddum Pólverjum safnað í atvinnuleysistryggingarsjóð til að mæta þessu vandamáli. Ef vel tekst til er ekki ólíklegt að þessar aðgerðir gætu orðið fyrirmynd öðrurn austantjaldsþjóðum. ERLEND FRETIABROT EB:____________________ Samkomulag um samræmdar reglur í bankamálum en samræmingu skatta frestað EB ríkin hafa nýlega komist að samkomulagi um hvaða kröfur beri að gera til bankastofnana í aðildar- löndunum. Reglurnar eiga að taka gildi í ársbyrjun 1993 og þá á bönkum að vera heimilt að starfa í hvaða landi EB sem er, svo framarlega sem samræmd- um skilyrðum um eiginfjárhlutfall og fleira er fullnægt. Samkomulagið gerir ráð fyrir að bankar í löndum utan bandalagsins fái að starfa innan þess svo framarlega sem EB bankar njóti sömu skilyrða í þeirra heimalandi. Þá samþykktu fjármálaráðherrar EB ríkjanna rétt fyrir jólin að fresta því umdeilda markmiði að samræma virðisaukaskattsprósentur í aðildar- löndunum. Verður málið aftur tekið upp í lok ársins 1991. Því var þó heitið að fram að þeim tíma skyldi séð til þess að prósenturnar yrðu ekki ólíkari en nú á sér stað. Bretar líta á þessa ákvörðun sem sigur fyrir sig vegna þess að þeir hafa barist gegn samræmingu og vilja að samkeppnin sjái um að samræma skattprósentur. Bretar eru þar að auki ein fárra þjóða í EB sem leggur engan virðisaukaskatt á vissar vörur en samræmingartillögurnar hafa ekki gert ráð fyrir slíkum undantekningum. Tilraun til að samræma vaxtaskatta hefur ennfremur farið endanlega út úm þúfur. Þess í stað hafa verið uppi tillögur um að löndin komi sér saman um kerfi sem veitir þeim aðgang að upplýsingum um sparifjáreigendur í hinum löndunum. Þessar tillögur eiga mjög erfitt uppdráttar vegna andstöðu Luxemburgar sem telur slíkt ekki vera í samræmi við lög um bankaleynd. Luxemburgarmenn hafa raunar samþykkt slíka tilhögun en aðeins ef viðkomandi sparifjáreigandi hefur verið lögsóttur. Það nær hins vegar of skammt að mati margra hinna aðildar- landanna. AUSTUR ÞÝSKALAND: Allt að 15 ára biðtími eftir Trabant Trabant mun vera orðinn einhver umtalaðasti bíllinn þessa dagana eftir að Austur Þjóðverjar urðu frjálsir ferða sinna. Um tveir þriðju allra bíla í A.Þýskalandi eru af þessari tegund en alls eru þar um 3,7 milljón bílar. Samt er eftirspurnin mun meiri en fram- boðið og algengt er að menn þurfi að bíða í 11 til 15 ár eftir nýjum bíl. Af þessu leiðir að verð á notuðum bílum er gjarnan mun hærra en verð á nýjum bílum. Dæmi er um að átta ára gamall trabant hafi kostað 13.000 a.þýsk mörk (um 7.600 dollara) á meðan verð nýs bíls er 11.653 mörk. Þetta þýðir ekki að menn séu sérstaklega ánægðir með trabantinn; hann er einfaldlega það ódýrasta sem býðst. Bíllinn hefur verið framleiddur síðan árið 1957 og hefur ekki breyst svo heitið geti síðan. Árið 1964 var gerð smá útlitsbreyting og það útlit hefur haldið sér. Alls eru framleiddir 146.000 trabantar á ári og athyglisvert er að í'lestir sem vinna í verk- smiðjunum eru útlendingar. Margir eru frá Víetnam og enn aðrir frá Kúbu og Mozambique. Það lætur nærri að árslaun þessara verkamanna rétt dugi fyrir einum nýjum trabant. BANDARÍKIN:_________________ Seðlabankinn stuðlar að vaxtalækkun Yrnis merki á síðustu mánuðum liðins árs eru um að heldur sé að draga úr uppgangi í bandarísku efnahagslífi. Við þessu hefur seðlabankinn brugðist með því að stuðla að lækkun vaxta. Er búist við að bandarískir viðskipta- bankar lækki kjörvexti sína úr 10,5% í 10% á næstunni. Með þessu móti er vænst að ekki þurfi að koma til samdráttar jafnhliða því að ekki verði ýtt undir frekari verðbólgu. Ritstj. og ábm.: Finnur Geirsson. Útg.: Kaupþing hf., Kringlunni 5, 103 Reykjavík. Sími 689080. Prentun: Gutenberg, ríkisprentsmiöja. Öll réttindi áskilin. Rit þetta má ekki afrita meö neinum hætti svo sem meö Ijósritun eða á annan hátt aö hluta eða í heild sinni án leyfis útgefanda.

x

Vísbending

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.