Vísbending - 31.01.1991, Blaðsíða 1
V
Viku
ISBENDING
rit um viðskipti og efnahagsmál
31.
janúar
1991
5.tbl. 9. árg.
Verðbólgan
1991
Framfærsluvísitala hækkaði aðeins
um 7% á nýliðnu ári. Það er miklu
minna en verið hefur, en frá 1987 til
1989 var verðbólga um og yfir 20%.
Leikur ekki vafi á að lækkun verð-
bólgu er þegar farin að bera árangur.
Fólk man verð betur en áður og veltir
því meira fyrir sér, í stað þess að borga
í hugsunarleysi það sem upp er sett. En
hvað stendur þessi stöðugleiki lengi?
Þjóðhagsstofnun spáði 7% verðbólgu
1991 í Þjóðhagsáætlun sem lögð var
fram í október. Spá Seðlabanka er
svipuð. Gallinn er að þær spár, sem
þessar stofnanir hafa sent frá sér, hafa
oftast verið líkar þessum, og má segja
að það sé hluti af starfi þeirra að spá
lítilli verðbólgu. Slíkt þjónar litlum
tilgangi til lengdar, því að menn hætta
að taka mark á álitsgerðum og spám,
þegar vafi leikur á um hlutleysi
höfundanna. Hér á landi hafa Háskóla-
menn öðrum fremur haft það hlutverk
að gagnrýna efnahagsstefnuna. I
blaðinu birtast hugleiðingar um
verðlagshorfur eftir fjóra prófessora
við Viðskipta- og hagfræðideild.
Guðmundur Magnússon telur ólíklegt
að verðbólga verði undir tveggja stafa
tölu á árinu og Ragnar Arnason segir
ekki fjarri lagi að hún verði komin yfir
15% í lok ársins. Ragnar segir þjóðar-
sáttina aðeins vera verðstöðvun í
nýjum búningi. Samdráttur í efnahags-
lifinu skapi hagstæðar aðstæður til
þess að draga úr verðbólgu og nær víst
megi telja að hún aukist þegar rofar til.
Þorvaldur Gylfason og Ágúst Einars-
son eru ekki eins afdráttarlausir, en
benda á ýmis hættumerki. Þorvaldur
nefnir meðal annars þensluhalla
ríkisins og það að stjórnvöld kunni að
mæta fyrirsjáanlegum erfiðleikum
lánastofnana með peningaprentun. Þá
segir hann að kröfur launþega urn
svipuð kjör og tíðkast í nágranna-
löndum okkar hljóti að leiða til
verðbólgu á meðan sóun viðgangist í
sjávarútvegi og landbúnaði. Rétt er að
staldra við þau orð Guðnrundar
Magnússonar að verðbólga verði ekki
knésett nema sjálfstæði Seðlabanka
aukist. Ef Seðlabanka væri gefið
f Verðbólga 1991 'N
DÆMl I DÆMI II* * DÆMI III
Verðbólga Verðbólga Verðbólga
sl. 3 mán. sl. 3 mán. sl. 3 mán.
mars 151 8% 151 8% 151 8%
júní 155 9% 155 10% 156 12%
sept. 158 8% 160 13% 162 16%
des. 161 9% 165 14% 168 17%
Verðbólga: jan.91-jan.92 8% 12% 14%
Milli árs- meðalt. 90-91 7% 9% 10%
* Spá Visbendingar
Forsendur:
I Ekkert launaskrið, 2% kauphækkun l.sept. og 2,5% 1. des., alls 10%
launahækkun á árinu. Fast gengi.
II Sama og I nema 0,5% launaskrið á mánuði frá og með apríl.
Kauphækkun alls 15% á árinu.
III Sama, nema maí-ágúst 1% launaskrið á mánuði, launahækkun ágúst-
janúar 8%, alls 18% launahækkun á árinu. 3% gengislækkun seint á árinu.
frjálst að halda uppi harðri peninga-
stefnu árum saman, ef þörf krefur, hvað
sem líður kosningaskrekki stjórnmála-
manna, ykjust að mun sigurlíkur í
baráttunni við verðbólgu.
Dæmi um verðbólgu
Hér eru sýnd þrjú dæmi um það
hvernig verðbólga gæti orðið miðað
við misjafnar forsendur, samkvæmt
verðbólgulíkani Vísbendingar, en
höfundur þess er Helgi Tómasson
tölfræðingur.
* OECD spáir um það bil 5%
verðbólgu í aðildarlöndum sínum á
næstu mánuðum. Hér er gert ráð fyrir
að olíuverðslækkunin valdi rúmlega
eins prósents lækkun innflutningsverðs
og að það hækki því aðeins um tæp
4% á árinu. Reyndar hefur viðskipta-
ráðherra lagt til að bensínverð lækki
ekki, en liklegt er að kosningar og rautt
strik í maf dragi úr fylgi við tillöguna.
* I fyrsta dæminu er gert ráð fyrir
að áfram takist að koma í veg fyrir
launaskrið og að samið verði um litlar
launahækkanir þegar kjarasamningar
eru lausir í haust. I öðru dæntinu er
gert ráð fyrir að launaskrið verði hálft
prósent á mánuði frá apríl til ársloka. í
þriðja dæminu er launaskrið rúmlega
eitt prósent frá maímánuði.
* Nú virðist vera nokkurt svigrúm
til þess að halda gengi stöðugu, þótt
verðlag hækki heldur meira en í öðrum
löndum. I dæmi 1 og II er gert ráð fyrir
stöðugu gengi allt árið, en í dæmi III
lækkar gengi um þrjú prósent á
lokamánuðum ársins.
* Næsta rautt strik framfærsluvísitölu
er í maí og er þá 151,9. I öllum þeim
dæmum, sem hér eru tekin, er búist við
að verðlag fari meira en hálft prósent
fram úr þeirri viðmiðun. Að vísu gæti
hugsast að stjórnvöld reyndu niður-
greiðslur til þess að komast undir
strikið, en ólíklegt er að slíkt beri
árangur til langframa.
* Að undanförnu hafa verkalýðs-
félög haft strangt eftirlit með verðlagi.
Vera má að fyrirtæki hafi slegið
sumum hækkunum á frest vegna þessa
Efni:__________
• Verðbólguspá
• Verðlagshorfur:
Þorvaldur Gylfason
Guðmundur Magnússson
s
Ragnar Arnason
Ágúst Einarsson