Vísbending - 31.01.1991, Side 3
ISBENDING
úr verðtryggingu lánsfjár og sparifjár
er ótímabær að svo stöddu í ljósi þeirrar
verðbólguhættu, sem enn steðjar að.
Svo er annað. Fyrirhugaðar orku-
framkvæmdir og bygging nýs álvers
geta leitt til nýrrar verðbólguöldu,
verði þess ekki gætt vandlega að afla
lánsfjár til framkvæmdanna hér innan
lands að verulegu leyti og láta aðrar
framkvæmdir bíða á meðan til að
halda aftur af eftirspurn eftir fjármagni
og vinnuafli hér heima. Innflutningur
erlends vinnuafls gæti verið nauðsyn-
legur til að draga úr spennu á vinnu-
markaði, meðan framkvæmdirnar
standa sem hæst.
Betri kjör, bjartari
framtíð
Svo er eitt enn að endingu. Stjórn-
völd eiga eftir að ráðast í nauðsynlega
og löngu tímabæra hagræðingu í
landbúnaði og sjávarútvegi, þótt nú sé
loksins farið að rofa aðeins til á þeim
vettvangi. Svo lengi sem það verk er
óunnið, er miklum verðmætum kastað
á glæ, ýmist með því að halda uppi of
mikilli og óhóflega dýrri búvöru-
framleiðslu í landi og með því að
halda úti of stórum fiskiskipaflota til
sjós. Fólkið í landinu sýpur seyðið af
þessari sóun. Að vfsu er nokkur von til
þess, að frjáls viðskipti með veiði-
heimildir í skjóli núgildandi kvótalaga
geti leitt til umtalsverðrar hagræðingar
í útgerð smám saman, en margt bendir
þó til þess, að innheimta veiðigjalds
eða sala veiðileyfa á frjálsum og heil-
brigðum uppboðsmarkaði sé forsenda
frjálsra veiðileyfaviðskipta og um leið
nauðsynlegrar hagræðingar í sjávar-
útvegi. Auk þess virðist það ólíklegt,
að friður geti náðst á vettvangi stjórn-
málanna um þá gríðarlegu eigna-
tilfærslu og meðfylgjandi söfnun auðs
og valda á fáar hendur, sem nú eiga sér
stað í skjóli kvótalaganna. Inn-
flutningur landbúnaðarafurða í
einhverjum mæli í samræmi við þróun
mála á alþjóðlegum búvörumarkaði
ásamt frjálsri verzlun með fullvirðis-
rétt er með líku lagi forsenda nauðsyn-
legrar hagræðingar í landbúnaði hér
heima.
Flagræðing í landbúnaði og sjávar-
útvegi ásamt eflingu annarra atvinnu-
vega í takt við tímann er nauðsynleg,
ekki aðeins til að koma í veg fyrir
áframhaldandi verðmætasóun, heldur
lfka vegna þess, að annars geta
vinnuveitendur í landinu, þar á meðal
ríkisvaldið, ekki orðið borgunarmenn
fyrir betri launum. Svo lengi sem
íslenzkir launamenn halda áfram að
bera mun minna út býtum en
starfsbræður þeirra í nálægum löndum,
þar sem þjóðartekjur á mann eru
svipaðar og hér, er hætt við því, að
launþegar hér missi þolinmæðina á
endanum og heimti hærra kaup. Þetta
hefur gerzt oft áður, síðast 1986.
Stjórnvöld verða að skapa skilyrði til
þess, að vinnuveitendur og ríkisvald
geti brugðizt við réttmætum kröfum
launþega um betri kjör og bjartari
framtíð án þess að þurfa að hleypa
kauphækkuninni beint út í verðlagið
eins og endranær. Annars getum við
átt von á því að lenda í sama fari og
áður.
f ^
Yerðbólga og sparnaður , 1970-90
(í prósentum) Verðbólga
2)Peningamagn og sparifé (M3) sem hlutfall af þjóðarframleiðslu.
N Heimild: Seðlabanki Islands og Þjóðhagsstofnun.______________________
Hagtölur
Fjármagnsmarkaður
Meðalútlánsvextir banka og sparisjóða
Yerðtryggð 8,2% 21.jan
Óvcrðtryggð 14,0% 21.jan
Verðbréfiý IB) 285,7 jan
Raunáv. 3 mán 5%
ár 7%
Hlutabréf( HMARK) 715 24.jan
fyrir viku 715
Raunáv. 3 mán 39% jan
ár 69% jan
Verðlag og vinnumarkaður
F ramfœrsluvísitala 149,5 jan
Verðbólga- 3 mán 6% jan
ár 7% jan
Framfvís.-spá 149,9* feb
(m.v. fast gengi, 150,7* mars
ekkert launaskr) 151,7* apríl
Laimavísitala 120,1 des-útr.
Árshækkun- 3 mán 13% des-útr.
-ár 7% des-útr.
Kaupmáttur 3 mán 2% des
-ár -1% des
Laun Alþýðusambandsfólks
Dagvinnulaun 73.000 90 3.ársfj
Heildarlaun 95.000 90 3.ársfj
Vinnutími-ASI (viku) 45,8 90 3.ársfj
fyrir ári 46,3
Skorlur á vinnuafli 0,4% sept
fyrir ári -0,5%
Atvinnuleysi 1,7% des
fyrir ári 2,1%
Gengi (sala síðastl. mánudag)
Bandaríkjadalur 54,7 28.jan
fyrir viku 55,2
algeng spá 51-53* mars-maí
Sterlingspund 107,4 28.jan
fyrir viku 107,1
Pýskt mark 36,8 28.jan
fyrir viku 36,7
Japanskl jen 0,414 28.jan
fyrir viku 0,416
Erlendar hagtölur
Bandaríkin:
Verðbólga-ár 6% des
Atvinnuleysi 6,1% des
fyrir ári 5,3%
Hlutabréf (DJ) 2.650 25.jan
fyrir viku 2.639
breyting á ári -1% 22.jan
Liborvextir 3 mán 7,1% 22.jan
Bretland
Verðbólga-ár 9% des
Atvinnuleysi 6,5% des
fyrir ári 5,7%
Hlutabréf(FT) 2.103 25.jan
fyrir viku 2.103
breyting á ári -9% 22.jan
Liborvext. 3 mán 14,0% 25.jan
Þýskaland
Verðbólga-ár 3% des
Atvinnuleysi 6,6% des
fyrir ári 7,8%
Hlutabréf(Com) 1.675 25.jan
fyrir viku 1.701
breyting á ári -24% 22.jan
Evróvexlir 3 már i 9,1% 25.jan.
Japan
Verðbólga-ár 4% nóv
Atvinnuleysi 2,1% nóv
fyrir ári 2,2%
Hlutabréf-ár -38% 22.jan
Norðursjávarolía 20,3$ 25.jan
fyrir viku 18,8$
mánuði 25,9$
Ath.: Rauntölur eru m.v. framfærsluvís.
3