Vísbending


Vísbending - 31.01.1991, Síða 4

Vísbending - 31.01.1991, Síða 4
ISBENDING Dr. Guðmundur Magnússon: Sá árangur sem náðst hefur í því að draga úr verðbólgu að undanförnu er ánægjulegur og gefur vonir um að okkur sé ekki alls varnað. Hin margumtalaða þjóðarsátt hefur slegið á væntingar um verðbólgu og veitt stjórnvöldum svigrúm til að beita nýjum aðferðum í hagstjórn. Eins og ég fjallaði um nýlega á spástefnu Stjórnunarfélags íslands tel ég ýmislegt benda til þess að svigrúmið verði ekki notað sem skyldi og að ýmsar blikur séu á lofti í baráttunni við verðbólguna. Eg tel að þjóðarsáttin svonefnda felist ekki hvað síst í gerð skynsamlegra kjarasamninga og að hagstæð ytri skilyrði hafi hjálpað til við að hún skilaði þeim árangri sem að var stefnt. En þau atriði sem koma til með að ráða úrslitum í glímunni við verðbólguna til langframa eru þessi: 1. Svo virðist sem engin ríkisstjórn fái hamið aukningu ríkisútgjalda og hallarekstur ríkisins. Tekjujöfnuður fjárlaga hefur ekki verið jákvæður síðan 1984. Verra er að skuld- bindingar utan fjárlaga aukast stöðugt og munu gjaldfalla á næstu árum. 2. Peningamálastærðir vaxa mun hraðar en verðlag. Þetta getur gengið um hríð en ekki til lengdar. Með greiðslum í Verðjöfnunarsjóð er þó að nokkru leyti hantlað gegn þensluáhrifum af þessurn toga. Lítil fyrirstaða virðist hins vegar gegn því að leysa vanda ýmissa sjóða með lántökum. 3. Tekjuaukning sjómanna hefur verið mikil og hlýtur að hafa áhrif út frá sér á aðra launasamninga, valda meiri kaupgetu í þjóðfélaginu og þar með meiri innflutningi. Að óbreyttu gengi eykst viðskiptahallinn strax og útflutningstekjur hætta að aukast eða lækka. 4. Brigðmæli á vinnumarkaðnum eiga eftir að hefna sín í framtíðinni. 5. Reynsla annarra þjóða er sú að verðbólgan verði ekki knésett netna með því að draga úr ríkisafskiptum af framleiðslunni og efla sjálfstæði seðlabanka. Svo virðist sem stjórnmálamenn hafi ekki skilið þetta enn þá. Ef við tökum ekki upp svipaðar aðferðir á sviði samkeppni og hagstjórnar og gert hefur verið í flestum löndum Vestur-Evrópu munum við dragast aftur úr þeim í lífskjörum. Um horfur í verðlagsmálum á næstunni er ég ekki meiri spámaður en hver annar. Eg tel þó ólíklegt að verðbólgan verði undir tveggja stafa tölu á þessu ári. ______________________________I / Dr. Ragnar Arnason: Ýmis merki eru um það, að sú lækkun verðbólgu, sem átti sér stað á árinu 1990, sé skammgóður vermir. Kentur þar ýmislegt til. Mestu máli skiptir þó tvennt: í fyrsta lagi voru aðstæður til að draga tímabundið úr verðbólgu um margt óvenjulega hagstæðar á árinu 1990. Þessar aðstæður eru ekki til langframa og sjást þess nú reyndar þegar merki, að þær séu að breytast. I öðru lagi hafa peningastærðir vaxið verulega umfram verðlag. Því er fyrir hendi uppsafnaður kaupmáttur, sem getur von bráðar brotist út í verðlagið. Verður nú vikið nánar að þessurn atriðum. Árin 1988 og 1989 voru veruleg samdráttarár í efnahagslífinu. Lftil breyting virðist hafa orðið til batnaðar á árinu 1990. Það virðist því hafa verið þriðja ár umtalsverðrar efnahagskreppu á íslandi - þeirrar lengstu, sem komið hefur síðan 1948- 52. Þessi samdráttur í efnahagslífinu hefur að sjálfsögðu dregið beinlínis úr þrýstingi á innlent verðlag. Hin óbeinu áhrif hafa þó reynst mun veigameiri. Vegna kreppunnar hefur svo mjög dregið úr eftirspurn eftir vinnuafli, að atvinnuleysi er nú meira en nokkru sinni sfðan 1968-9. Samningsstaða launþega hefur því versnað stórlega. Þessar aðstæður á vinnumarkaðnum eru meginforsendan fyrir því.að unnt reyndist að ná og standa við samkomulag það, sem kennt er við þjóðarsátt. “Þjóðar- sáttin”, sem er fyrst og fremst samkomulag um að hefta launa- hækkanir og lækka þannig hlutdeild launþega í þjóðartekjunum, er hins vegar ein helsta ástæðan fyrir minni verðbólgu á árinu 1990. Mikilvægt er að átta sig á því, að “þjóðarsáttin” er í rauninni aðeins verðstöðvun í nýjum búningi. Hinn nýi búningur felst í beinni þátttöku aðila 1991 vinnumarkaðarins í verðstöðvuninni. Þessi aðferð við verðstöðvun er því talsvert skilvirkari en ella. Sem aðferð við verðstöðvun er “þjóðarsáttin” á hinn bóginn háð öllum annmörkum verðstöðvana. Hún er félags-pólitísk en ekki hagræn aðgerð. Hún felur í sér frestun og uppsöfnun án hagrænna forsendna. Því eru hverfandi líkur á því, að hún geti orðið varanleg. Nær víst ntá telja, að jafnskjótt og rofar til í efnahagsmálum og eftirspurn eftir vinnuafli vex, muni launþegar freista þess að bæta sér kjaraskerðinguna og auka lilut sinn í þjóðartekjunum. Atvinnurekendur myndu þá sem endranær verja hlut sinn með verðhækkunum. Þar með tæki verðbólguhjólið að snúast á ný með hefðbundnum hætti. Enda þótt lítið hafi rofað til í efnahagsmálum, sjást nokkur rnerki um að brestir séu að koma í “þjóðar- sáttina”. Ýmsir hópar launþega hafa gert kröfur urn meiri kjarabætur og sumir, eins og t.d. sjómenn, hafa náð þeim fram. Þá eru uppi áform um stórkostlegar fjárfestingar í álbræðslu og orkumannvirkjum. Framkvæmdir þær, sem fyrirhugaðar eru, ntunu vafalaust auka eftirspurn eftir vinnuafli og auka þenslu, jafnvel þótt stjórnvöld legðu kapp á að hamla gegn slíku. Þetta hefði tvíþætt áhrif. Þenslan yrði til að hækka vinnulaun, hvað sem öllum samningum liði og forsendur þjóðarsáttar brystu. Það eina sem getur hugsanlega viðhaldið þjóðarsáttinni í núverandi mynd er áframhaldandi kreppuástand eða í það minnsta verulegt efnahagslegt aðhald í efnahagslífinu. Þar sem slíkri efnahagsstefnu fylgdi auðvitað, að lífskjör hér á landi héldu áfram að dragast aftur úr lífskjörum í nágrannalöndum, er hins vegar ólíklegt, að urn hana skapaðist þjóðarsátt. Hin meginástæðan fyrir því, að vænta má vaxandi verðbólgu á komandi misserum er aukningin í raunvirði peningamagns í hagkerfinu. Vöxtur peningastærða hefur allt árið 1990 og fram á þennan dag verið verulega yfir verðbólguhraðanum. Þetta þýðir, að heimili og fyrirtæki búa nú yfir miklu rneira lausafé en t.d. í lok árs 1989. Eina ástæðan fyrir því, að þetta aukna peningamagn hefur ekki enn kynt undir verðbólgunni er, að aðilar hagkerfisins hafa verið reiðubúnir til að auka raunvirði þeirra peninga, sem þeir hafa undir höndurn. 4

x

Vísbending

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.