Vísbending


Vísbending - 04.12.1992, Side 2

Vísbending - 04.12.1992, Side 2
á grundvelli fyrri reynslu. Almennur innflutningur hefur minnkað mikið að undanförnu, en komið hafa fram veikleikamerki í þjónustujöfnuði og útflutningi að undanfömu að því er segir í Hagvísum Þjóðhagsstofnunar í nóvember. Stofnunin spáir nokkru minni viðskiptahalla 1992 en í fyrra, 3,3% landsframleiðslu. Fyrir gengisfellingu bjóst Þjóðhagsstofnun við að viðskiptahalli héldist svipaður næsta ár og yrði 3,1% landsframleiðslu. Ráðstafanir: Rýra kaup- mátt og auka verðbólgu Taflan á forsíðu sýnir mat Þjóðhags- stofnunar á áhrifum efnahagsráðstafana ríkisstjómarinnar á nokkrar hagstærðir. Ekki er gerð ný atvinnuleysisspá, en bent á, að þar eð ráðstafanimar bæti hag fyrirtækja hljóti atvinnuhorfur að vera betri en áður. Spáð er mun meiri samdrætti ráðstöfunartekna á mann en áður, eða 4,4% í stað 0,8%. Raungengi lækkar um rúmlega 5% í stað 1,6%. Viðskiptahalli minnkar úr 3,1% í fyrri spá í 2,1% vegna minni innflutnings. Þetta þýðir að búist er við að erlendar skuldir vaxi aðeins um 0,4% að raungildi í stað 2,5%. Nokkra athygli vekur að stofnuninspáirnú4,5%hækkun verðlags frá 1992 til 1993, þrátt fyrir að ekki sé reiknað með að laun hækki á árinu. Spá Vísbendingar: Áhrif kauphækkana og meiri ríkishalla Aftasti dálkurinn í töflunni á forsíðu sýnir áhrif breyttra forsendna á spá Þjóðhagsstofnunar. Þama er gert ráð fyrir nokkru minni verðhækkunum á næsta ári en Þjóðhagsstofnun spáir. Stuðster við þjóðhagslíkan Vísbendingar. Langoftasthefurhalli áríkisrekstri orðið meiri en stefnt hefur verið að. Hér eru könnuð áhrif þess að auka ríkisútgjöld um 3 milljarða króna frá því sem nú er ráðgert. Fæstir búast í raun við að laun haldist óbreytt næsta ár. Ef þau hækka ekki í kjarasamningum er sennilegt að eitthvert launaskrið fari af stað. Kannað er hvaða áhrif það hefði ef laun hækkuðu um 3% í maí, 1,5% í ágúst og 1% í nóvember. Hér er miðað við að stefnt yrði að því að kaupmáttur frá undirritun nýrra kjarasamninga í apríl til ársloka yrði svipaður því sem hann var nú í byrjun nóvember. Verðbólga á árinu gæti þá orðið um 5% en hækkun verðlags frá fyrra ári 4%. Miðað við þessar for- sendur yrði kaupmáttur meiri en í spá Þjóðhagsstofnunarog viðskiptahalli ykist heldur frá því sem hún gerir ráð fyrir. Hækkar gengi sjávarútvegsfyrirtækja? Með aðgerðum stjórnvalda er fé fært frá einstaklingum til fyrirtækja og gengi hlutabréfa ætti því að hækka. Einkum á þetta við um sjávarútvegsfyrirtæki. Þar kemur tvennt til: 1) Afkoman batnar strax vegna lækkunar gengis og skattabreytinga. 2) Fránæsta fiskveiðiári verðurkvóta Hagræðingarsjóðs úthlutað ókeypis í stað þess að selja hann. I þrjú fiskveiðiár verður ekkert samsvarandi gjald lagt á. Þjóðhagsstofnun telur að gengis- lækkunin bæti meðalafkomu sjávarútvegsfyrirtækja um 3,2% veltu og afnám aðstöðugjalds bæti hana um 1,2%. Efþettamalerréttbatnarafkoman að meðaltali um 4,4% veltu vegna að- gerðanna. Ókeypis kvóti Hagræðingar- sjóðs bætir afkomu útgerðar að auki um 500 milljónir króna á ári. Þetta veldur því að tapfyrirtæki færast nær núlli, en gróði hinna eykst. Gengi hlutabréfa í útgerðar- fyrirtækjum lækkaði þegar skýrt var frá slæmu ástandi þorskstofnsins og kvóta- skerðingu í sumar. Lítil hreyfing hefur aftur á móti orðið á genginu eftirnýjustu tíðindi og kemur það nokkuð á óvart. Hér gæti valdið nokkru að afli hefur verið rýr að undanlörnu og það gæti hafa dregið úr áhuga á þessari atvinnu- grein. A næstunni er von á greiningu á gengi hlutabréfa í sjávarútvegs- fyrirtækjum hér í blaðinu. Þróunarsjóðisjávarútvegsinserætlað að kaupa fasteignir sem óvíst er að kæmust í verð að öðrum kosti. Með þessu móti er dregið úr vanda lánaslofnana eins og vikið var að í 47. tölublaði. Eini bankinn á hluta- bréfamarkaði, sem stendur, er Islands- banki, en um áramót var um fimmtungur útlána hans til sjávarútvegs. Vonir bundnar við Evrópskt efnahagssvæði Helstu hagvaxtarvonireru nú bundnar við Evrópskt efnahagssvæði, sem væntanlega verður komið á fót um áramót. Gert er ráð fyrir að 93% útflutnings sjávarafurða til annarra landa á efnahagssvæðinu verði tollfrjáls. í Þjóðhagsáætlun frá þvt í haust segir að athuganir sýni að þegar til lengdar lætur sé bein aukning landsframleiðslu vegna Efnahagssvæðisins allt að 1,5%. Þá segir að verðlag gæti lækkað um allt að 1,7% og raunvextir um allt að 0,7%. Kaupmáttur launa gæti aukist um 2- 3%. Rétt er að leggja áherslu á að þessar breytingar kæmu að líkindum fram á löngum tíma. | ÍSBENDING Iðnaður og auglýsingar I bréfi frá Sveini Hannessyni, framkvœmdastjóra Félags íslenskra iðnrekenda, segir: í [46. tbl.] Vísbendingar er greinarkorn sem ber y firskriftina Vaxtarbroddar í iðnaði. Þar er meðal annars fjallað um auglýsingar, þar sem almenningur er hvattur til að kaupa íslenskar vörur fremur en erlendar. Félag íslenskra iðn- rekenda hefur reyndar um langt árabil hvatt íslenska neytendur til að velja íslenskt eða „setja íslenskt í öndvegi" eins og segir í slagorði félagsins. Við segjum t.d. í okkar auglýsingum: „Setjum íslenskt í öndvegi... alltaf þegar það er betra“, eða „Setjum íslenskt í öndvegi... alltaf til að tryggja atvinnu". Nú að undanfömu hafa ýmsir aðilar, þar á meðal samtök launþega, tekið undir þessa hvatningu þannig að eftir hefur verið tekið. Tilefni þessa bréfs ... er sú einkennilega niðurstaða... að með þessum auglýsingum sé FII að hvetja fólk til að kaupa íslenskar vörur sem séu verri eða dýrari en erlendar vörur. Þetta á ekki við nein rök að styðjast. Síðan er haldið áfram í greininni að leggja út af þessu og tekur þá steininn úr: „Samtök atvinnurekenda hafa stutt samninga um frelsi í millilandaviðskiptum. Það er varla í samræmi við þessa afstöðu að Félag íslenskra iðnrekenda skuli nú hvetja fólk til þess að kaupa vörur, bara af þvl að þær séu íslenskar.“ Hér er sett fram nýstárleg kenning í virtu v ikuriti um viðskipti og efnahagsmál. Þeir sem auglýsa íslenskar vörur geta ekki með góðri samvisku stutt frelsi í milliríkjaviðskiptum! Því ekki að taka í hnakkadrambið á Flugleiðum næst. Þeir auglýsa að þeir séu íslenskt flugfélag. Það hlýtur samkvæmt nýju kenningunni að þýða að þeir séu á móti frjálsræði í viðskiptum og veiti auk þess sennilega bæði dýrari og lakari þjónustu en erlendir samkeppninsaðilar. Það er síður en svo neitt séríslenskt fyrirbæri að framleiðendur veki athygli á framleiðslulandi vörunnar. Bretarauglýsahiklaust„BuyBritish“, og Danir eru þekktir fyrir að skreyta vörur sínar með danska fánanum. Það er ekki vegna þess að þessar þjóðir telji sína vöru lakari eða dýrari hvað þá að þeir séu andsnúnir frelsi í viðskiptum. Tilgangur okkar hjá FÍI eins og væntanlega flestra auglýsenda er sá að vekj a athygli ney tenda á okkar vöru sem í þessu tilviki er íslensk. Við reynum að vekja athygli á þeirri niðurstöðu úr skoðanakönnun að þrír af hverjum fjórum íslendingum telja að fremur eigi að öðru jöfnu að kaupa íslenskar vörur en erlendar. Rúmlega 85% telja raunar að íslenskar vörur standist gæðasamanburð við erlendar. Það er enginn að biðja fólk um að kaupa íslenskt ef það er lakara eða dýrara. Við bendum hins vegar óhikað á að það hefur áhrif á atvinnuástand hér á landi hvort valin er íslensk eða erlend vara. Vakin er athygli á staðreynd sem talið er að neytandinn láti sig máli skipta. Tilgangurinn er að auka sölu. Flóknara er það nú ekki og hefur ekkert með að gera hvort samtökin styðja milliríkjasamninga um EES og GATT. 2

x

Vísbending

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.