Vísbending


Vísbending - 04.12.1992, Side 4

Vísbending - 04.12.1992, Side 4
ISBENDING Hagtölur s v a r G lækkun r a u t t Fjármagnsmarkaður hækkun fráfyrra tbl. Peningamagn (M3)-ár 7% 30.07. Ver5tryggö bankalán 9,1% 11.11. Overðtr. bankalán 12,3% 11.11. Lausafjárhlutfall b&s 15,4% 09.92 Verðbrsj (VÍB) 346 11.92 Raunáv.3 mán. 6% ár 7% Hlutabréf (VÍB) 659 18.11. Fyrir viku 659 Raunáv. 3 mán. 13% ár -13% Lánskjaravísitala 3239 12.92 spá m.v. fast gengi 3268 01.93 oe ekkert launaskrið 3305 02.93 3309 03.93 Verðlag og vinnumarkaður Framfærsluvísitala 161,4 11.92 Verðbólga- 3 mán 0% 11.92 ár 1% 11.92 Framfvís.-spá 163,3 12.92 (m.v. fast gengi. 164,3 01.93 ekkert launaskrið) 164,7 02.93 Launavísitala 130,4 10.92 Árshækkun- 3 mán 1% 10.92 ár 2% 10.92 Launaskr-ár 1% 03.92 Kaupmáttur 3 mán 0% 10.92 -ár 2% 10.92 Dagvinnulaun-ASÍ 84.00092 2.ársfj Heildarlaun-ASI 111.00092 2.ársfj Vinnutími-ASI (viku) 46,9 92 2,ársfj fyrir ári 46,5 Skortur á vinnuafli -1,4% 09.92 fyrir ári 0,8% Atvinnuleysi 2,9% 10.92 fyrir ári 1,2% Gengi (sala síðastl. mánudag) Bandaríkjadalur 63,5 29.11. fyrir viku 63,6 Sterlingspund 95,6 29.11. fyrir viku 96,1 Pýskt mark 39,5 29.11. fyrir viku 39,5 Japanskt jen 0,509 29.11. fyrir viku 0,512 Erlendar hagtölur Bandaríkin Verðbólga-ár 3% 10.92 Atvinnuleysi 7,4% 10.92 fyrir ári 6,9% Hlutabréf (DJ) 3.296 01.12. fyrir viku 3.232 breyting á ári 12% Liborvext. 3 mán 3,9% 28.11. Bretland Verðbólga-ár 4% 10.92 Atvinnuleysi 10,1% 10.92 fyrir ári 8,8% Hlutabréf (FT) 2778 01.12. fyrir viku 2723 breyting á ári 14% Liborvext. 3 mán 7,5% 01.12. V-Þýskaland Verðbólga-ár 4% 10.92 Atvinnuleysi 7,0% 10.92 fyrir ári 6,3% Hlutabréf (Com) 1715 01.12. fyrir viku 1718 breyting á ári -8% Evróvextir 3 mán 8,8% 01.12. Japan Verðbólga-ár 2% 09.92 Atvinnuleysi 2,2% 09.92 fyrir ári 2,2% Hlutabréf-ár -26% 28.11. Norðursjávarolía 19,1 01.12. fyrir viku 19,1 Bandaríkin: 3,9% hagvöxtur á þriðja ársfjórðungi Landsframleiðsla í Bandaríkjunum jókst með 3,9% árshraða á þriðja ársfjórðungi. Þetta er mun meiri vöxtur en búist var við, en stuttu fyrir forsetakosningar í nóvember voru gefnar út bráðabirgðatölur sem sýndu 2,7% hagvöxt. Sennilega má einkum þakka vöxtinn mjög lágum vöxtum að undan- fömu. A einu ári hefur landsframleiðsla vaxið um 2,2%. Framleiðni hefur aukist, því að atvinnajókst aðeins um 0,2%. Þó eru Iíkur á að atvinnuleysi sé á hægri niðurleið, því að umsóknum um atvinnuleysisbætur hefur fækkað að undanfömu. Clinton, sem tekur við embætti bandaríkjaforseta í janúar, hugðist hefja starf sitt á aðgerðum til þess að örva hagvöxt, en nú getur verið að hann breyti þeim áætlunum sínum. I nýrri skýrslu um Bandaríkin varar Efnahags- og framfarstofnunin, OECD, við því að fjárlagahalli sé aukinn til þess að auka hagvöxt í landinu. OPEC: Samkomulag um að draga lítillega úr olíuframleiðslu Olíuverð mælt í bandaríkjadölum féll um nálægt 10% á heimsmarkaði frá miðjum október til seinni hluta nóvembermánaðar. Gengi bandaríkja- dals gagnvart öðrum helstu gjaldmiðlum hækkaði í október og nóvember og það á vafalaust þátt í lækkuninni. Verðið þokaðist örlítið upp á við eftir að ráðherrar samtaka olíuútflutningsríkja, OPEC, komu sér saman um að minnka framleiðslukvóta á fundi í Vín 27. nóvember síðastliðinn. Framleiðslu- kvótinn minnkar þó aðeins um ríflega hálft prósent. Kúveit er undanþegið kvóta á meðan verið er að endurreisa olíuvinnslu landsins og landsmenn hyggjast á næstunni auka framleiðslu sína meira en nemur skerðingu framleiðslukvóta OPECs. Það veikir líka samtökin að Ekvador hefur gengið úr þeim. Nokkrir forsvarsmanna OPEC töldu þó að olíuverð gæti hækkað um 1- 2 bandaríkjadali á tunnu til áramóta í framhaldi af samkomulaginu. Aðrir þóttust góðir ef verðið hætti að lækka. Þýskaland: Mikil aukning peninga- magns dregur úr líkum á að vextir lækki MargirteljaaðháirvextiríÞýskalandi séu meginástæða óróleika á gjaldeyris- mörkuðum að undanfömu. Háir vextir auka spum eftir þýskum mörkum og stjómvöld í öðrum löndum Evrópska gengissamstarfsins verða að halda vöxtum háum hjá sér ef gengi gjaldmiðla þeirra á ekki að falla. Undanfarnar vikur hefur verið sótt að gengi írsks pundSj danskrar krónu og fransks franka. I þessum löndum er mikill vilji til þess að örva hagvöxt, en menn vilja aftur á móti halda stöðugu gengi. Þess vegna hefur verið þrýst á Þjóðverja að lækka vextina. Þýski seðlabankinn leggur aftur á móti ofuráherslu á að halda aftur af verðbólgu. Heldur hefur dregið úr verðhækkunum í Þýskalandi að undanfömu. I október hafði verðlag hækkað um 3,8% á einu ári. Seðlabankinn hefur sett það takmark að peningamagn aukist um 3,5-5,5% á ári, en tölur fyrir október sýna að ársvöxturinn er um 10%. Þessi háa tala gerir að engu vonir um vaxtalækkun í landinu á næstunni. Lífeyrissjóðir: Rýmri heimildir til þess að kaupa hlutabréf Samband almennra lífey rissjóða hefur samþykkt að sjóðir innan sambandsins megi hér eftir kaupa hlutabréf fyrir 10% ráðstöfunarfjárístað 10% iðgjalda. Ekki munar miklu að þetta tvöfaldi svigrúm sjóðanna til þess að kaupa hlutabréf. Ovíst er þó að nein stökk verði í kaupum þeirra við þessa breytingu. Búast má við að þeir hafi með sér samvinnu um kaupá hlutabréfum á næstunni. Þá er reglum sjóðanna brey tt þannig að þeir geta keypt fleiri tegundir skuldabréfa en áður, meðal annars mega þeir nú eiga bréf eignaleigufyrirtækja. Ritstj. og ábm.: Sigurður Jóhannesson. Útg.: Ráðgjöf Kaupþings hf., Kringlunni 5, 103 Reykjavík. Sími 689080. Myndsendir: 812824. Málfarsráðgjöf: Málvísindastofnun Háskólans. Prentun: Prentsmiðjan Gutenberg. Öll réttindi áskilin. Ljósritun er óheimil en mikill afsláttur veittur af viðbótareintökum. 4

x

Vísbending

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.