Vísbending - 30.04.1993, Blaðsíða 4
ISBENDING
^tt j •• T s v a r t\ Hagtolur“t
frá íyrra tbl.
Fjármagnsmarkaður Peningamagn (M3)-ár 3% 31.01
Verðtryggð bankalán 9,2% 11.04
Overðtr. bankalán 13.1% 11.04
Lausafjárhhttfall b&s 12.8% 01.02
Húsbr.,kaup VÞI 7,48-7.49% 26.04
Sparisk kaup VÞÍ 7,05-7,15% 26.04
Hlutabréf (VIB) 598 26.04
Fyrir viku 603
Raunáv. 3 mán. -42 %o
ár -18%
Lánskjaravísitala 3.278 05.93
spá m.v. fast gengi 3.281 06.93
og ekkert launaski ið 3.281 07.93
3.283 08.93
3.285 09.93
3.286 10.93
3.288 11.93
3.290 12.93
Verðlag og vinnuniarkaður
Framfærsluvísitala 165,9 04.93
Verðbólga- 3 mán 4% 04.93
ár 3% 04.93
Framfvís.-spá 166.2 05.93
(m.v. fast gengi. 166,4 06.93
ekkert launaskrið) 166,5 07.93
166.7 08.93
166.8 09.93
166,9 10.93
167.0 11.93
Launavísitala 131,1 03.93
Arshækkun- 3 mán 1% 03.93
ár 2% 03.93
Launaskr-ár 0% 03.93
Kaupmáttur 3 mán -2% 03.93
-ár -1% 03.93
Skortur á vinnuafli -1.1% 01.93
fyrir ári -0,7%
Atvinnuleysi 5,4% 03.93
fyrir ári 3,0%
Gengi (sala) Bandaríkjadalur 62,4 27.04.
fyrir viku 63,0
Sterlingspund 98.8 27.04.
íyrir viku 97.6
Þýskt mark 39.6 27.04.
fvrir viku 39,6
Japanskt jen 0,565 27.04.
íyrir viku 0,569
Erlendar hagtölur Bandaríkin
Verðbólga-ár 3% 03.93
Atvinnuleysi 7,0% 03.93
fyrir ári 7,3%
Hlutabréf (DJ) 3.412 26.04.
fyrir viku 3.461
breyling á ári 2%,
Liborvext. 3 mán Bretland 3,1 %o 20.04.
Verðbólga-ár 2% 03.93
Atvinnuleysi 10,5% 03.93
fyrir ári 9.4%
Hlutabréf (FT) 2822 26.04.
fyrir viku 2830
breyting á ári 7%
Liborvext. 3 mán 6.2% 26.04.
V-Þýskaland
Verðbólga-ár 4% 03.93
Atvinnuleysi 7,8% 03.93
ÍVrir ári 6,3%
Hlutabréf (Com) 1850 26.04.
týrir viku 1897
breyling á ári -8%
Evróvextir 3 mán 7,8%o 26.04.
Japan
Verðbólga-ár 1% 02.93
Atvimiuleysi 2,3% 02.93
fyrir ári 2.0%
Hlutabréf-ár 18% 20.04.
N orðursj á varol í a 18,9 26.04.
fyrir viku 18.8 y
Þýskaland:
Eim læklca vextir
Þýski seðlabankinn lækkaði enn vexti
22. apríl. Grunnvextir lækkuðu um
0,25% og eru nú 7,25%. Þetta er í þriðja
skipti sem þeir eru lækkaðir frú
ársbyrjun. Lombard-vextir eru mikil-
vægari, en þeir voru lækkaðir um 0,5%
og eru nú 8,5%. Bæði grunnvextir og
Lombard-vextir hafa nú lækkað um 1%
frá áramótum. Búist hafði verið við
vaxtalækkun, en ekki alveg svona fljótt,
því að seðlabankinn hafði nýlega greint
frá tölum um meiri vöxt peningamagns
en búist hafði verið við. Þá töldu ýmsir
líka að bankinn myndi bíða eftir að
verðbólga hjaðnaði meira. Ársverð-
bólga samkvæmt opinberum tölum er
4,2%, en seðlabankinn stefnir að 2%
verðbólgu. Ekki bætti úr skák að nýlega
hafði verið skýrt frá því að halli á
ríkisrekstri á árinu yrði sennilega 20%
meiri en áður hafði verið talið. Almennt
er nú spáð 1 -2% samdrætti í framleiðslu
Þjóðverja á árinu og er það heldur meiri
samdráttur en spáð var í upphafi árs.
Seðlabankar víðs vegar um Evrópu
lækkuðu vexti í kjölfar ákvörðunar
þýska seðlabankans. Verð hlutabréfa
hækkaði víða í álfunni. Gengi marksins
lækkaði um tíma gagnvart bandaríkja-
dal, en hækkaði síðan aftur. y
Bretland:
Fæn i atvinnulausir
Atvinnulausum í Bretlandi fækkaði
flestum að óvörum í mars og eru þeir nú
rúmlcga 2,9 milljónir. Nú vantar 10,5%
vinnufærra Breta atvinnu en hlutfallið
var 10,6%o í febrúar. Þetta er annar
mánuðurinn i röð sem atvinnulausum
fækkar í landinu. Hagfræðingar vilja þó
ekki fullyrða að atvinnuleysið hafi náð
hámarki, en áður hafði því verið spáð að
atvinnulausir yrðu vel á fjórðu milljón
áður en þeim tæki aftur að fækka. En
nýjar tölur urn vaxandi framleiðslu og
óvenjulitlar kauphækkanir gefa ástæðu
til að ætla að líf sé að l'ærast i efnahags-
lífið, án þess að verðbólga sé á uppleið.
Þessar fréttir, sem bárust út 22. apríl
ásamt fréttum af vaxlalækkun þýska
seðlabankans, stuðluðu að hækkun
punds á gjaldeyrismörkuðum. g
Svíþjóð:
Tillögur um mikinn
niðurskurð ríkisútgjalda
Stjórn Svíþjóðar kynnti nýlega
tillögur um mikinn niðurskurð ríkis-
útgjalda. Jafnframt kom fram að útlit
væri fyrir að halli ríkissjóðs á reiknings-
árinu, sem hefst 1. júlí næstkomandi,
yrði sennilega tæp 13% lands-
framleiðslu. Hallinn er nú með því mesta
sem gerist í Vestur-Evrópu og hefur
hann þrefaldast undanfarin þrjú ár.
Hagvaxtarhorfur eru nú lakari en þegar
fjárlagafrumvarp var lagt fram í árs-
byrjun og það hvatti stjórnvöld til þess
að leita nýrra sparnaðarleiða. Ríkis-
útgjöld verða fryst til aldamóta ef til-
lögur ríkisstjórnarinnar ná fram að
ganga. Auk þess er ætlunin að draga úr
greiðslum lífeyris, atvinnuleysisbóta og
annarra styrkja úr ríkissjóði. Greiðslur
til atvinnulausra og sjúkra verða til
dærnis um 80%o af launum, en núna fá
menn 90-100%>. Búist er við að þjóðar-
framleiðsla dragist saman urn 1,7%o árið
1993 en vaxi svo um 1,2% árið 1994.
Samkeppnishæfi landsins hefur reyndar
vaxið og útflutningur aukist eftir mikla
gengisfellingu krónunnar í nóvember.
Sænska krónan hefur fallið um tæp 20%o
gagnvart þýsku marki síðan í haust.
______________J
Viðskipti:
Bráðabirgðasainlcomulag
Bandaríkjamia og Evrópu-
bandalagsins
Ráðamenn Evrópubandalagsins og
Bandaríkjanna komust að bráðabirgða-
samkomulagi um opinber útboð 21.
april síðastliðinn. Samkomulagið kem-
ur í veg fyrir viðskiptastríð urn sinn, en
Bandaríkjamenn hyggjast þó grípa til
nokkurra af þeim refsiaðgerðum gegn
Evrópubandalaginu, sem þeir höfðu
boðað. Upphaf þessarar deilu er að
Evrópubandalagið opnaði fyrir tilboð
útlendinga í vinnu á vegum stjórnvalda
við fjarskipti, orkumál, ilutninga og
vatnsveitur. Til þess að afla þessu
stuðnings var ákveðið að ekki skyldi
tekið tilboðum frá löndum utan Evrópu-
bandalagsins nema þau væru að minnsta
kosti 3%o lægri en önnur . Auk þess mátti
hafna tilboðum sem væru að rneira en
helmingi upprunnin utan Evrópu.
Banda-ríkjamenn töldu sér hér
mismunað. Evrópubandalagið hélt því
fram á móti að bandarísk lög á þessu
sviði væru enn fjandsamlegri út-
lendingum. Samkomulagið felur í sér að
öllum hömlum verður létt af sölu
rafmagnsvara yfir Atlantshaf, en
hindranir á flutningi annarra vara eru
óbreyttar.____________________i
Ritstj. og ábm.: Sigurður Jóhannesson.
Útgefandi.: Talnakönnun hf., Sigtúni 7,105
Reykjavík.Sími 688644. Myndsendir:
688648. Málfarsráðgjöf: Málvísindastofnun
Háskólans. Prentun: Steindórsprent
Gutenberg. Upplag 500 eintök. Öll réttindi
áskilin. Rit þetta má ekki afrita með neinum
hætti án leyfis útgefanda.
4