Vísbending - 05.01.1995, Blaðsíða 1
ISBEN
Viku
rit um viðskipti og
efnahagsmál
5.
ianúar
1995
1. tbl. 13. árg.
Raungengi 1984-94'
140
135
130
125
120
115
110
105
100
95
90
1 Vísitala settá 1984=100. Reiknað er með 1,1% framleiðni inn-
lends vinnuafls á árinu 1994 og 2,3% framleiðni erlends vinnuafls.
Heimild: Seðlabanki íslands.
Útflutningsframleiðsla 1984-94'
1 Magnvísitala útflutningsframleiðslu. Vísitölur ársins 1994 eru
áætlun Gjaldeyrismála.
Heimild: Þjóðhagsstofnun.
Hagvöxtur og þjóðarútgjöld 1984-94'
fyrirárið 1994 eru skv. þjóðhagsspá Vísbendingar.
Heimild: Þjóðhagsstofnun.
Þjóðarbúskapurinn 1994:
Umskipti í
efnahags-
málum
róun efnahagsmála á árinu 1994
varð á töluvert annan veg en flestir
höfðu búist við í upphafi árs. Miðað við
úthlutaðar aflaheimildir fyrir fiskveiði-
árið 1993/94 lá fyrir að þorskveiði myndi
minnka stórlega og verða sú minnsta frá
lokum síðari heimsstyrjaldar. Verðlag á
sjávarafurðum hafði farið nær samfellt
lækkandi frá síðari hluta árs 1991 og ekki
var útlit fyrir neinar stökkbreytingar þar
á til hins betra. Þetta voru meginástæður
þess að Þjóðhagsstofnun spáði tals-
verðum samdrætti landsframleiðslunnar
áárinu 1994, fyrst2,6% íþjóðhagsáætlun
sem lögð var fram í byrjun október 1993
en síðan 2% í endurskoðaðri þjóðhagsspá
um miðjan desembermánuð. I spánni
fólstm.a. tæplega4% samdrátturútflutn-
ingstekna og 1,6% minnkun þjóðarút-
gjalda. Ymsir ljósir punktar voru þó
sýnilegir. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
spáði ríflega 2% hagvexti í iðnríkjunum
á árinu 1994 og 5% aukningu í heims-
viðskiptum sem gaf vonir um hækkandi
afurðaverðáerlendum mörkuðum. Raun-
gengi fór mjög lækkandi vegna minni
verðbólgu og ekki síst gengisfellinga á
árinu 1992 og 1993. Þábeiltu stjórnvöld
sér fyrir lækkun vaxta í lok október 1993
með sögulegum hætti eins og kunnugt
er. Allt þetta gaf vonir um að áhrif fyrir-
sjáanlegs aflasamdráttar yrðu mildari en
ella og að batamerki færu að sjást í
þjóðarbúskapnum eftir sex ára stöðn-
unartímabil.
Stóraukin útflutningsfram-
leiðsla
I stuttu máli má segja að batamerkin
hafi komið fram mun fyrr en flestir
reiknuðu með. Strax á fyrstu mánuðum
ársins fór að bera á verulegri aukningu
útflutnings. Verðmæti vöruútflutnings á
fyrri árshelmingi 1994 vartæplega 16%
meira en á sama tímabili árið á undan á
föstu gengi og útflutt þjónusta um 6%
rneiri. Af einstökum
liðum munaði mestu um
aukningu í útflutningi
sjávarafurða sem nam
um 12% á föstu gengi,
en sjávarafurðir eru urn
78% alls vöruútflutn-
ings, og tæplega 44%
aukningu í útflutningi
áls. Loðnufrysting og
önnur vinnsla loðnu-
al'urða skilaði mikilli
tekjuaukningu á fyrri
hluta ársins og enn
fremur mátti sjá veru-
lega aukningu í útflutn-
ingi á frystum karfa,
rækju, síld og ýmsurn
öðrum afurðum.
V erð á sjávarafurðum
stóð nokkurn veginn í
stað frarn undir mitt ár
að meðaltali í SDR sem
var mikil breyting frá
sama tíma 1993 þegar
það lækkaði verulegaen
verð á áli tók hins vegar
mikinn kipp upp á við
og var um 20% hærra í
júní en í janúar 1994.
Tekjur af útflutningi
héldu áfram að aukast á
seinni helmingi ársins,
einkum af sjávarafurð-
um, þar sem frystur karfi
og rækja stóðu að veru-
legu leyti undir verð-
mætaaukningu, og af
áli. Verð á sjávarafurð-
urn tók að stíga upp á
við og álverð hækkaði
ævintýralega undir lok
ársins. Auk þessa mátti
sjá tekjuaukningu í
ýmsum öðrum greinum
iðnaðar og þjónustu.
Miðað við fyrirliggj-
andi tölur má gera ráð
I’yrirað vöruútllutningur
hafi aukist um 14% á
árinu 1994 á föstu gengi og þjónustu-
tekjur um rúm 7%. Að teknu tilliti til
þróunar útflutningsverðlags og birgða-
brey tinga er aukning í framleiðslu útflutn-
ingsvaralíklegaríflega 13%aðmagni til
og verður að leita aftur til ársins 1983 til
að finna svipaða aukningu á einu ári.
Innlend eftirspurn glæðist
Þegar líða tók á árið 1994 kornu fram
ýmsar vísbendingar um að innlend
eftirspurn væri að ná sér á strik, en
þjóðarútgjöld drógust verulega saman á
árinu 1992og 1993. Nokkur samdráttur
varð í innflutningi ney sluvarnings á fyrsta
ársfjórðungi 1994 frá sama tímabili árið
áður á föstu gengi en upp frá því tók að
• Þjóðarbúskapurinn 1994
• Verðlagshorfur árið 1995