Vísbending - 26.07.1996, Blaðsíða 4
V
ÍSBENDING
Hagtölur
Fjármagnsmarkaður
Nýlánskjaravísitala 3.489 07.96
Verðtryggð bankalán 8,8% 11.07
Óverðtr. bankalán 12,2% 11.07
Húsbréf, kaup (ný. flokk.) 5,60% 23.07
Spariskírteini, kaup(5-ára)5,50% 23.07
M3 (12 mán. breyting) 5,1% 04.96
Þingvísitala hlutabréfa 1.989 23.07
Fyrir viku 2.010
Fyrir ári 1.142
Verðlag og vinnumarkaður
Vísitala neysluverðs 176,9 07.96
Verðbólga- 3 mán. 2,5% 06.96
-ár 2,4% 06.96
Vísit. neyslu - spá 177,2 08.96
(Fors.: Gengi helst 177,6 09.96
innan ±6% marka) 178,0 10.96
Launavísitala 147,9 06.96
Árshækkun- 3 mán. 1,4% 06.96
-ár 5,9% 06.96
Kaupmáttur-3 mán. 2,7% 06.96
-ár 3,7% 06.96
Skorturá vinnuafli 0,0% 04.96
fyrir ári 0,2%
Atvinnuleysi 3,6% 06.96
fyrir ári 5,0%
Velta mars-apríl ’96 skv. uppl. RSK
(milljarðar kr. og breyt. m/v 1995)
Velta 129 13%
VSK samt. 7,9 7,1%
Hrávörumarkaðir
V ísitala verðs sjávaraf u rða 103,8 06.96
Mánaðarbreyting -1,0%
Ál (99,7%) (USD/tonn) 1.446 22.07
Mánaðar breyting -1,8%
Sink (USD/tonn) 987 22.07
Mánaðar breyting -1,5%
Kvótamarkaður 19.07
(Krónur/kg) Leiga Varanl.
Þorskur 100 600
fyrir mánuði 95 600
Ýsa 4 130
fyrir mánuði 3 127
Karíi 40 160
fyrir mánuði 40 160
Rækja 80 400
fyrir mánuði 73 335
V___________________________________y
- -n
Vísbending vikunnar
Nú fara að berast tölur um milli-
uppgjör fyrirtækja á hlutabréfamark-
aði. Strax og þær liggja fyrir má búast
við því að verð breytist á sumum
hlutafélögum, því menn munu strax
rniða væntingar urn V/H-hlutfall (sjá
forsíðugrein) við þessar hálfsárstölur.
Þó er rétt að menn gæti mjög vel að því
að mörg fyrirtæki hafa sveiflukenndan
rekstur. Því má ekki tvöfalda sex
mánaða tölur heldur þarf að bera þær
við sex mánaða tölur í fyrra og reikna
svo út væntingar um hagnað ársins.
Gengi hlutabréfa sýniraðmarkaðurinn
býst við 30 til 50% meiri hagnaði í ár
en í fyrra.
V__________________________)
Hvað má gagnrýna?
Þegar skyggnst er í ársreikninga
þessara tveggja aðila sést að báðir styðja
rannsóknir og þróunarstarf. Bróður-
parturinn af fjármagni Framleiðnisjóðs
1992-95 hefur farið til slíkra hluta og
Byggðastofnun hefur einnig aukið fram-
lög til þessara mála á sama tímabili og er
það vel. Hins vegar verður að gagnrýna
nokkra hluti í starfsemi þessara aðila.
I fyrsta lagi er það ekki í samræmi við
nútíma stjórnsýslureglur að starfandi
alþingismenn sitji í stjórn Byggða-
stofnunar, því hætta á hagsmuna-
árekstrum er mikil. Hver þingmaður á
það undir sínu kjördæmi hvort hann fær
haldið starfi sínu og oft er þrýstingur
mikill á að þeir sinni ákveðnum kjör-
dæmamálum.AnefaerFramleiðnisjóður
ekki laus við pólitík, en sleppur þó lík-
lega að mestu við þau kjördæmamál.
I öðru lagi ætti By ggðastofnun að hætta
lánaviðskiptum. Engin þörf er á því að
ríkið sé að halda úti lánastofnun til hliðar
við bankakerfið. Hver sá sem ferðast um
landið sér að í hverju byggðalagi er
bankaútibú eða sparisjóður þar sem
starfsmenn eru öllum hnútum kunnugir
og hafa jafnvel áratuga reynslu af far-
sælum lánaviðskiptum. Eftirfarandi til-
vitnun upp úr ársreikningi Byggða-
stofnunar hlýtur því að koma spánskt fyrir
sjónir: Vegna þekkingar og reynslu
Byggðastofnunar á atvinnulífi byggðar-
laga á landsbyggðinni hefur hún hlut-
verki að gegna sem valkostur á lána-
markaði. Hafa starfsmenn banka og
sparisjóða úli á landi minni reynslu í
lánveitingum til atvinnulífs á lands-
byggðinni en starfsmenn Byggða-
stofnunar?
í þriðja lagi þá verður að gera athuga-
semdir við rekstrarkostnað. Byggða-
stofnun er með 32 stöðugildi og því
mikinn kostnað. Að ýmsu leyti er þetta
skiljanlegt lánasýsla, innheimta ofl.,
kallar á rnikið starfslið. Ef stofnunin sneri
sér eingöngu að styrkveitingum mætti
ná frant mikilli hagræðingu, og miðað
við stöðuna í dag, auka styrkveitingar til
landsbyggðar umtalsvert. Rekstur Frarn-
leiðnisjóðs sýnir að ekki er nauðsyn á
fjölmennu starfsliði til þess að koma
styrkveitingum til rannsókna og þróunar
í kring.
Er þörf á byggðastefnu?
Það er spurning hvort það sé fyrst og
fremst atvinnuástandið sem færir fólk á
milli byggða. T.d. hefurminnst atvinnu-
leysi verið á Vestfjörðum þrátt fyrir að
fólksfækkun hafi orðið einna mest þar.
Þá má benda á að á þessu ári hefur t.d.
atvinnuleysi verið mun meira úti á landi
en í Rey kjavík, en samt heldur fólk áfram
að ilytja í þéttbýlið. Þetta gæti vakið grun-
semdir um að dýpri orsakir liggi að baki
fólksflutningum á Islandi frá dreifbýli og
jaðarsvæðum yfir til þéttbýlli landsvæða.
Nútímamenn virðast gera aðrar kröfur
en áður var og kostir þeir sem þéttbýlið
býr yfir vega sífellt þyngra á vogar-
skálunum. Þetta er í raun hluti af þróun
sem hefur verið í gangi allt frá síðustu
öld og á sér hliðstæðu í öðrum löndum.
Það er erfitt að ætla sér að snúa þessu
ferli við sem á sér svo sterkar og djúp-
stæðar orsakir. Markmið byggða-
stefnunnar ættu fremur að vera að styrkja
rannsóknir og þróun til þess að auðlindir
landsins, fólkog náttúrugæði, nýttust sem
best á hverjum stað. Pólitískar lán-
veitingar eru barátta við vindmyllur.
Aðrir sálmar
Stríðsöxin grafin upp
I síðustu sálmum var sagt frá sam-
komulagi milli þýska stórfyrirtækisins
Metallgesellschaft og Heinz Schimmel-
busch, fyrrverandi forstjórafyrirtækisins.
Schimmelbusch hefur sýnt áhuga á fjár-
festingum áíslandi, m.a. sinkverksmiðju.
A stjómarfundi í MG á laugardaginn var
kom óvænl upp andstaða við tillögu
stjórnarformannsins, Ronaldo Schmitz
frá Deutche Bank. Samkvæmt henni
hefði MG greitt Schimmelbusch bætur
fyrir brottreksturinn og dregið til baka
ásakanir um að hann bæri ábyrgð á miklu
tapi fyrirtækisins. Tillagan var ekki borin
undir atkvæði, en sumir stjórnarmenn
munu hafa hafnað því að leysa
Schimmelbusch undan ábyrgð með jafn
afdráttarlausum hætti og gert er í sam-
komulaginu.
N iðurstaðan þykir enn eitt áfallið fyrir
Ronaldo Schmitz, sem hafði verið djarfur
í yfirlýsingum sínum um glæpsamlegt
atferli Schimmelbusch, áður en hann bað
stjórnina að samþykkja að fallið skyldi
frá ásökunum. Þá vakna spurningar um
það hverberi ábyrgð á stórfelldu tapi MG
ef Schimmelbusch er sýknaður. Vera má
að stjórnin sé að forðast spurningar af
þessu tagi með því að neita að samþykkja
samkomulagið. Fjármálablöð eru hins
vegar á einu máli um að þessi staða sé
einstök í þýsku viðskiptalífi og þykir til
marks um að margir séu nú farnir að draga
í efa alvisku stóru bankanna sem ráða
miklu í flestum stærstu fyrirtækjum í
Þýskalandi.
'-------------------------------------'
Ritstjórn: Ásgeir Jónsson, ritstj. og ábm.,
Benedikt Jóhannesson. Útg.:Talnakönnun
hf., Borgartúni 23,105 Rvík. Sími: 561-7575.
Myndsendir: 561-8646. Internetslóð: http://
www.strengur.is/~talnak/vief95.html,
netfang:talnak@strengur.is Málfarsráðgjöf:
Málvísindastofnun Háskólans. Prentun:
Steindórsprent-Gutenberg. Upplag: 700
eintök. Öll réttindi áskilin. Ritið má ekki af rita
án leyfis útgefanda.