Vísbending


Vísbending - 16.08.1996, Page 2

Vísbending - 16.08.1996, Page 2
markaðshlutdeild allra sparisjóða tæp- lega 15%, en á síðasta ári rúmlega 22%. Sparisjóðirnir virðast njóta viðskipta- vildar almennings, auk þess sem af- skriftavandræði viðskiptabankana hafa líklega gefið svigrúm til athafna, þ.e. þeim sparisjóðum sem ekki voru í sömu vandræðum. Þámá einnig benda á annað: Viðskiptabankarnir hafa oft verið í við- skiptum við fyrirtæki og stærri aðila á lánamarkaði og sparisjóðirnir skipt við einstaklinga. A síðustu árum hefur brugðið svo við að mörg fyrirtæki hafa leitað út úr bankakerfinu og fengið fjár- mögnun annars staðar (sjá ramma á næstu síðu) og einnig hefur samkeppni orðið þess valdandi að þóknanir ýmiss konar við stærri aðila hafa fallið niður. A sama tíma hafa heimilin gerst æ stór- tækari í lántökum auk þess sem flest ný þjónustugjöld hafa verið lögð á einstaklinga. Þessi þróun hlýtur að vera frekar til hagsbóta fyrir þær innlána- stofnanir sem hafa hlutfallslega mestu viðskiptin við einstaklinga, þ.e. spari- sjóðina. Þá er smásala með fjármagn og persónuleg þjónusta að verða æ mikil- vægari og þar kunna sparisjóðirnir að hafa vinninginn yfir bankana þrjá. Horfur í rekstri Allt útliterfyrir það að árið 1996 verði bönkunum hagstætt, enda hljóta vaxandi umsvif í hagkerfinu að koma lána- stofnunum vel. Islandsbanki birti fyrir nokkrum dögum sex mánaða uppgjör fyrir rekstur samstæðunnar. Þó afkoma móðurfélagsins, þ.e. bankans sjálfs, sé ekki gefin upp ein sér virðist ljóst að af- koman hafi batnað á þessu ári. Hins vegar hafa enginn stórkostleg umskipti átt sér stað, því ef gengishagnaður vegna vaxta- lækkunar og minni afskriftir eru dregnar frá minnkar hagnaðurinn um rúmlega 100 milljónir. Þá er einnig athyglisvert að þóknunartekjur dragast saman á milli ára. Hins vegar aukast vaxtatekjur að miklum mun á milli ára, enda aukast bæði útlán og innlán um 9%. Lánaviðskipti hafa sannarlega glæðst og líklegt að eitthvað svipað sé á seyði hjá öðrum innlánsstofnunum. Hvað varðar aðra banka er ljóst að ISBENDING Heildarstærðir úr rekstri banka og fjögurra stærstu sparisjóða 1994-95 (inilljónir króna) Rekstrarreikningur 1995 1994 Raun Rekstrartekjur 15.172 15.880 brcyting -6,0% Vaxtamunur 10.344 10.583 -3,8% Aðrar tekjur 4.828 5.296 -10,3% Rekstrargjöld 11.076 10.789 1,0% Þ.a. laun 5.697 5.472 2,5% Rekstur fyrir afskr. 4.096 5.090 -20,8% Framlag í afskr.sjóð 2.612 4.181 -38,5% Oreglulegirliðir (176) (122) 41,6% Tekju-og eignask. 650 411 55,8% Hagn.afhlutdeildarfél. 376 201 84,4% Hagnaður 1.035 577 76,4% Efnahagsreikningur 1995 1994 Raun- Eignir 236.690 229.849 breyting 1,4% Útlán 181.245 175.915 1,4% Afskr.reikn. útlána 8.844 9.796 -11,1% Bundið fé í Seðlabanka 5.966 5.903 -0,5% Skuldir 218.527 207.085 3,9% Innlán 151.221 146.302 1,7% Verðbréfaútgáfa 21.114 20.287 2,4% Víkjandi lán 2.087 2.464 -16,6% Lífeyrisskuldb. 6.093 5.122 17,1% Abyrgðir v/viðsk.manna 6.093 5.122 17,1% Eiginfc 18.163 16.902 5,8% Skuldirogeiginfé 236.690 229.849 1,4% Kennitölur Kcnnitölur 1995 1994 1993 Arðsemi eiginfjár 5,7% 3,4% -2,3% Hagnaður/tekjum 6,8% 3,6% -2,1% Eiginfjárhlutfall 7,7% 7,4% 7,0% Raunaukn. útlána -2,7% -2,4% 2,2% Raunaukn. innl. og verðbr. 4,3% -0,9% 3,4% , Vaxtatekjur/hei ldartekj u r 68,2% 61,2% 62,8% J einkavæðing hlýtur að vera fyrsta mál á dagskrá. Nú er í undirbúningi að breyta ríkis- bönkunum tveimur í hlutafé- lög. Það er víst að Lands- bankinn þarf á slíkri brey tingu að halda, en lág eiginfj árstaða gerir bankanum mjög óhægt um vik að beita sér á innlána- markaði. En aukin innlán auka við skuldahlið efnahags- reiknings og lækka eiginfjár- hlutfallið. Bankinn þyrfti því nauðsynlega að auka eiginfé sitt með hlutafjárútboði á al- mennum markaði, nema ríkissjóður vilji leggja þá peninga til eftir að hann er orðin að hlutafélagi. Það virðist því nauðsynlegt fyrir vöxt og viðgang Lands- bankans að koma honum úr ríkiseigu og til hluthafa sem hafa fjármagn og hugsa til framtíðar. Það verður ekki heldur séð að sú ráðstöfun myndi koma sér illa á nokkurn annan hátt. T.d. er innheimt 0,25 % gjald á ári fyrir þá riki s- ábyrgð er bankinn nýtur á lánum sínum og vafasamt er hvort ábyrgðin sé peningana virði í dag. Líklega myndi bankinn ekki skaðast ef hún félli niður. Annars er biðin eftir einkavæðingu bankanna tveggja orðin harla löng og eimir liklega enn eftir af því viðhorfi íslenskra stjómmála- manna að líta á lánaveitingar sempólitísktæki,enekki sem hver önnur viðskipti. Það eru hins vegar fá hagfræðileg rök fyrir því að ríkið eigi áfram þrjá fjórðu hluta af fjármagn- skerfi landsins. Menn mega ekki láta vangaveltur um hver eigi að kaupa draga sig frá nauðsynlegum umbótum. Hins vegar er einnig vert að minnast á sparisjóðina í þessu sambandi. Það er erfitt að sjá að klúbbur góðra viðskipta- vina þar sem hver hefur lagt 100-200 þúsund krónur í stofnsjóð muni veita stjórnendum mikið aðhald. Þetta fyrir- komulag minnir reyndar helst á sam- vinnuhreyfinguna þegar kaupfélögin voru og hétu. Hins vegar er það ótti margra að ef sparisjóðirnir verði gerðir að hlutafélögum muni þeir verða keyptir upp af bönkum eða stærri lánastofnunum. Það muni síðan vísa veginn til fákeppni á fjármagnsmarkaði. Er þá minnt á reynslu Dana í þessum efnum, en þar misstu sparisjóðirnirfljótlega sjálfstæði sitt eftir að þeim var breytt í hlutafélög. Meðalvextir' inn- og útlána2 og hlutfall lána til einstaklinga af heildarútlánum Lan til Innlán Utlán einstakl. af útlánum Landsbanki 3,9% 11,1% 21% íslandsbanki 4,3% 12,4% 37% Búnaðarbanki 4,5% 11,9% 27% SPRON 4,0% 12,0% 38% Sparisj.Hafnafj. 4,0% 13,7% 49% Sparisj. íKeflavík 4,7% 12,7% 63% Sparisj. Vélstjóra 4,2% 11,2% 37% Vegið meðaltal 4,2% 11,7% 29% Hvernig kaupin gerast á Eyrinni Þegar meðalvextir inn- og útlána eru reiknaðir kemur í Ijós talsverður munur á milli innlánsstofnana. Það verður að taka fram að þessar meðaltalstölur þurfa ekki að gefa til kynna að ein stofnun bjóði viðskiptavinum sínum verri kjör en önnur. Vextir á sambærilegum sparn- aðarreikningum eru t.d. svipaðir á milli innlánastofnana og vextir í sambæri- legum áhættuflokkum útlána væntan- lega einnig. Það sem skiptir máli er sam- setning inn- og útlána, t.d. form og greiðslutími. Hins vegar hljóta þessar tölur að ráða miklu um afkomu og eru því annar mælikvarði á vaxtamun, þ.e. á hvaða verði fjármagnið er tekið á leigu og svo leigt út. Þar skín í gegn hlutverk innlánastofnana í hagkerfum heimsins, að safna saman smáum skammtíma- lánum og lána svo aftur út í stærri skömmtum til lengri tíma. Ekki reyndist unnt vegna brey tinga á uppgjörsaðferðum að reikna sambærilega meðalvexti aftur í tímann. ’Leiðrétt er fyrir tánahreyíingum innan árs. 2Fullnustueignir, þ.e. eignirsem lánastofnanirhafa orðið að taka upp i skuldir, eru undanskildar. 2

x

Vísbending

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.