Vísbending


Vísbending - 06.02.1998, Blaðsíða 4

Vísbending - 06.02.1998, Blaðsíða 4
ISBENDING Framhald af síðu I og 2 Hvernig á að bregðast við? íkisstarfsmenn geta lent í þeirri að- stöðu að vera beðnir um að gera eitthvað ólöglegt eða óráðlegt. Einnig geta þeir orðið varir við óleyfilegt athæfi og eiga þá að gera aðvart. I sumum lönd- um eru tii reglur um það hvernig þeir eiga að bregðast við. Þessar reglur eru yfirleitt ætlaðar til þess að tryggja að við- komandi viti hvert hann á að snúa sér, hvernig honum beri að meðhöndla upp- lýsingarnar og stundum eru ákvæði sem tryggja að hagur þess er gefur upplýs- ingarnar verði ekki fyrir borð borinn. í Bandaríkjunum eru lög sem banna það að starfsmanni sérefsað, t.d. með tilfærslu í starfi eða lækkun í tign vegna þess að viðkomandi neitaði að taka þátt í óleyfi- legu athæfi. Einnig eru starfsmenn vernd- aðirfyrirþví að höfðað verði mál á hendur þeirn vegna óleyfilegrar birtingar opin- berra gagna ef sýnt þykir að birtingin sýni fram á brot á lögum, óstjórn, óhæfilega eyðslu,misnotkunvalds eðaumtalsverða og ákveðna hættu eða varðar almanna- öryggi. Þessi vernd er kölluð „Wistle- blower“ -verndun. Bætt stjórnsýsla Avegum Efnahags- og framfarastofn- unarinnar (OECD) hafa verið haldn- ar ráðstefnur um þessi mál og er þessi pistill að mestu unninn úr gögnum frá þeim. A þessum ráðstefnum hafa verið borin saman einstök lönd og er reynt að hafa áhrif á stjórnvöld til að taka á þeim vandamálum sem snúa að stjórnsýslu. Meðal annars er nú tilbúinn til undirrit- unar sáttmáli um aðgerðir gegn mútum og verður skrifað undir hann á næstunni. Tvenns konar hagur getur orðið af þess- um aðgerðum OECD. I. Alntenningur nýtur góðs af bættri stjórnsýslu, bæði vegna þess að spill- ing grefur undan lýðræði og trausti á stjórnvöldum og ekki síður fylgir spillingu ævinlega sóun á verðmæt- um, oftast fjármunum skattborgar- anna. 2.Störf ríkisstarfsmanna eru gjarnan vanmetin og oft eru þeir hafðir að spotti, kallaðir „möppudýr“ eða „kerfiskallar". Oft eru ríkisstarfs- menn í lykilhlutverki við fjárútlát, framkvæmdir eða ákvarðanir og því er nauðsynlegt að gæta þess að sá þrýstingursem þeirverðafyrirístarfi sínu sé ekki óeðlilegur og að þeir hafi úrræði til að sporna gegn óheið- arlegum vinnubrögðum. Skýrar leikreglurog vinnuhvetjandi um- hverfi er því nauðsyn og hagur jafnt al- mennings sem og ríkisstarfsmanna. Heimildir: http://www.oecd.org Framhald afsíðu 3 vant. Haft er á orði, að allir stjórnmála- menníTaflandieigi bankaogallirbankar eigi tvo stjórnmálamenn. Af þessu leiðir hættu á, að útlán bankanna leiti í óhag- kvæma farvegi, og kemur Islendingi ekki á óvart. Það hel'ur ekki bætt úr skák, að bankaeftirlit er veikt. Við þetta bættust tæknileg mistök, einkum þau að taka skammtímalán í stórum stíl til að standa straum af langtímafjárfestingu fyrirtækja. Vandinn þarna er ekki sá, að ríkið hafi eytt um efni fram, því að rfldsfjármálin í Taílandi og flestum hinna landanna, sem nú eru í klípu, eru yfirleitt í góðu Iagi, heldur varþað einkageirinn, sem sástekki fyrir, m.a. fyrir tilstilli vinveittra banka- stjórnenda, sem létu tímabundna stjórn- málahagsmuniyfirgnæfaeðlileg arðsem- issjónarmið. Þess vegna hefur Alþjóða- gjaldeyrissjóðurinn lagt höfuðáherzlu á umbætur í bankamálum í þessum lönd- unt, svo að tugum banka og annarra fjár- málastol’nana hefur nú verið lokað í Taí- landi, Kóreu og Indónesíu og bankasljór- arnir sendir heirn. Spilling og klíkuskapur eru einnig alvar- legt vandamál í ýmsum þessara landa, t.d. í Indónesíu, þar sem fjölskylda Sú- hartós forseta hefur sölsað undir sig mik- inn auð. Þessi hlið vandans þargerirhann torveldari viðfangs en ella, því að þegar miklum fjöldafólks er misboðið, minnkar þolinmæði þess,þegarharðnarádalnum. Þess vegna gæti komið til átaka í Indó- nesíu og jafnvel til uppreisnar gegn for- setanum. Annars staðar í álfunni virðist þó ekki vera nein hætta á átökum eða uppreisn, alla vega ekki af hálfu almenn- ings, því að hann sérog skilurþann árang- ur, sem náðst hefur í efnahagsmálum á einunt mannsaldri, og hefur augljósan hag af áframhaldandi hagvexti í skjóli friðsamlegrarstjórnmálaþróunarog auk- ins lýðræðis. ' Sjá eirkum The East Asian Miracle: Economic Growth and Public Policy, Alþjóðabankinn, Washington, D.C., ogOxfordUniversityPress, New York, 1994, og Emerging Asia: Changes and Challenges, Asíuþróunarbankinn, Maniia, 1997. ( Vísbendingin " Vegna kreppunnar í Asíu og gengis- falls nokkuira helstu gjaldmiðla álf- unnar má búast við að verð á vörum frá þessum löndumfari lækkandi. Þessi lönd eru þekktfyrirýmsaniðnvaming,svosem bifreiðar, ýntis konar hátæknibúnað, hljómtæki, sjónvörp, tölvur o.þ.h. Það gæti því verið ráðlegt fyrir þá sem hyggjast fjárfesta í slíkum vörum að hinkra í nokkra mánuði og kaupa þegar verð hefur lækk- að. Ef gjaldmiðlarEvrópulandaog Banda- ríkjanna slyrkjast frekar gæti borgað sig að kaupa strax vörur frá þeint löndunt. Aðrir sálmar Án ábyrgðar Sjómannaverkfall er skollið á. Enginn efast um að það getur valdið miklum skaða. Enþráttfyrirþaðgeristfátt. Astæð- an er augljós. Ráðamenn hafa gefið það í skyn að dugi önnurráð ekki verði að setja lög sem banna verkfallið. Viðtöl við sjó- menn í sjónvarpi sýndu glöggt að þeir bú- ast við því að Alþingi sendi flotann aftur á miðin fljótlega. Milljarðaverðmæti í loðnu verði ekki látin synda framhjá landinu meðan flotinn liggur við bryggju. Allir vita að kosningar eru á næsta leiti, til sveitarstjóma í vor og ekki er nema rúmt ár í kosningar til Alþingis. Menn álykta sem svo að frá sjónarhóli ríkisstjórn- arinnar væri fásinna að láta góðærið og vinsældirnar sem því fylgja fara í vask- inn. Reyndar hefur ábyrgðin sent ein- kenndi fyrsta ár þessarar ríkisstjórnar og síðasta kjörtímabil vikið að undanförnu fyrir ákvörðunum sem líklegar eru til stundarvinsælda. Yfirlýsingar ráðamanna um að þeir ætli ekki að leggja til laga- setningu vegna verkfallsins em ekki teknar trúanlegar. Einmitt þess vegna er ekki við því að búast að sjómenn og útvegsmenn sýni ábyrgð. Sjómenn geta sett fram kröfur sem fyrirsjáanlegt er að veiki reksturútgerðatil lengri tímaogþarmeð getu þeirra til launagreiðslu, til dæmis krafan urn að „kvótabrask", þ.e. frjálst framsal kvóta, verði bannað. Af sömu ástæðu flýta útgerðarmenn sér ekki að borðinu til þess að ræða þær kröfur sem eðlilegt er að fram komi, til dæmis um verðlagsgrundvöll.Deilendurályktasem svo að ríkisstjórnin hafi mestu að tapa og muni „höggva á hnútinrík Lagasetn- ing er engin lausn, óánægja mun áfram að krauma og sömu deilur blossa upp á ný þegar næst má „semja“. Þjóðinni er mestur greiði gerður með því að ríkisstjórn og löggjafi standi til hlés meðan deilendur útkljá sín mál. Þau verðmæti sem tapast eru á ábyrgð sjómanna og útvegsmanna og ástæðulaust er að þeir hlaupi frá henni. Athyglisverð lillaga kom frá Finnboga Jónssyni hjá Sfldarvinnslunni, að færa samninganainnífyrirtækin.Slíkterengin tryggingfyrirþvíaðdeilurleysistánátaka, en þá vita rnenn að verið er að senija um raunverulegt fólk og afkomu fyrirtækja sem veita atvinnu en ekki óljós hugtök og v tölur á blaði.______________________) 'Ritstjórn: Tómas Örn Kristinsson ritstjóri og^ ábyrgðarmaður., Benedikt Jóhannesson. Útgefandi: Talnakönnun hf., Borgartúni 23, 105 Reykjavík. Sími: 561-7575. Myndsendir: 561-8646. Netfang:visbending@talnakonnun.is. Málfarsráðgjöf: Málvísindastofnun Háskólans. Prentun: Gutenberg. Upplag: 700 eintök. Öll réttindi áskilin. © Ritið má ekki afrita án Jeyfis útgefanda._____________________, 4

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.