Vísbending - 16.10.1998, Síða 1
V
V i k u
ISBENDING
rit um viðskipti og efnahagsmál
16. október 1998
40. tölublað
16. árgangur
Endurskoðaðar spár IMF
A lþjóðagjaldeyrissjóðurinn(IMF)
hefur sent frá sér nýja spá um
X V-þióun hagvaxtar í heiminum. Þar
hefur verið tekið tillit til ástandsins í
heiminum. Spáð er 2% hagvexti á þessu
ári en fyrir ári síðan var spáð 4%
hagvexti. Þessi nýja spá er
sennilega bjartsýnisspá enda er
gert ráð fyrir að áhrif kreppunnar
verði verst á þessu ári og að á því
næsta verði þróunin upp á við.
Astandið er misjafnt
Kreppan hefur til þessa verið
nokkuð staðbundin. Asíu-
lönd og Rússland hafa orðið verst
úti. Ríki á Vesturlöndum eru farin
að finna fýrir óbeinum áhrifum
og óttast er að lönd Suður-
Ameríku verði næstu fóm-
arlömbin. Ástandið í Suður-
Kóreu og Taílandi hefur batnað
nokkuð en er þó talið brotakennt.
Indónesía er enn í fjörbrotum og
Malasía hefur reynt að einangra
sig frá umheiminum með því að grípa til
gjaldeyrishafta. Þráttfyrirað Japansstjóm
hafí gripið til aðgerða til að örva efna-
hagslífið og glíma við vandann í banka-
geiranum er ekki búist við að árangur
verði greindur á þessu ári eða því næsta
og nokkur hætta er talin á að ástandið þar
eigi eftir að versna til muna. Hagvöxtur
í Kína virðist vera að hægja á sér og gengi
kínverska júansins og Hong Kong dalsins
hefur sætt rniklum þrýstingi að undan-
förnu. Ástandið í Rússlandi erafarótryggt
og hefur haft áhrif á önnur lönd á svipuðu
þróunarskeiði. Áhrifanna hefur einnig
gætt í kauphöllum heimsins, bæði í ofsa-
ótta og ofsakæti en hjarðáráttan (e.: herd
instinct) hefúr verið svo sterk að menn
hafa ekki greint á milli efnahagskerfa sem
em sterkbyggð og þeirra sem era veik-
byggðari. Ef undan eru skilin lönd í Mið-
og Austur-Evrópu hefur hækkun
vaxtamunar dregið verulega úr
ijárfestingum erlendra aðila í þróun-
arríkjum, sérstaklega í löndum Suður-
Ameríku. Sennilegt er að lítilla áhrifa
verði vart fyrst um sinn þótt reynt sé að
snúa þessari þróun við. Viðskiptajöfn-
uður þessara landa mun væntanlega batna
mikið vegna kreppunnar en það þýðir
jafhframt að önnur lönd verða að taka á
sig byrðarnar, þá helst Bandaríkin og
Evrópusambandslöndin en einnig þau
Mynd 1. Þróun hag\>axtar í heiminum og spá
IMF um næstu ár
Spá í nóvember í fyrra
: I
y1970 1975
1980 1985 1990 1995
þróunarlönd sem hafa flutt mikið út.
Viðbrögð
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur
reynt eftir megni að bregðast við
kreppunni með því að lána fé til landa
sem hafa orðið illa úti en skortur á fjár-
hagslegum styrk, sem Bandaríkin hafa
til þessa tryggt, hefur valdið því að sjóð-
urinn hefúr ekki getað beitt sér sem sky ldi.
Það hefur verið viðvarandi vandamál að
Japanir hafa ekki náð að taka þannig á
sínum vanda að trúverðugt þyki. Miklu
varðar að hægt verði að endurvekja tiltrú
manna á efnahagskerfunum og snúa þró-
uninni við. Vegna þess að Asíulönd hafa
verið í fararbroddi í framleiðslu
ýmiss konar hátæknivamings og
ódýrs iðnvamings hefur kreppan
þar mun meiri áhrif á önnur lönd
en ella. Asíulöndin verða að lag-
færa veikleika í efnahagskerfum
sínum og þeim stofnunum sem
verst hafa orðið úti, þar á meðal
ijármálageiranum og i iðnfyrir-
tækjum. Rússar verða að koma
aftur á aga í peningamálum, bæta
reksturhins opinbera, endurskipu-
Ieggja bankakerfið og koma á betri
tengslum við erlenda lánardrottna.
Önnur þróunarlönd verða að taka
hart á öllum veikleikum í efna-
hagskerfum sinum og bæta úr
þeim. Á alþjóðavettvangi ernauð-
synlegt að styðja vel við
2000 J uppbyggingu í þróunarlöndum
með fjölhliða Qárhagsaðstoð.
Mikilvægt er að reyna að koma í veg fyrir
að einstök ríki verji sig með haftastefnu
og hömlum á viðskiptum því að slíkt hefúr
mjög neikvæð áhrif á aðra og mun bitna
á haftastefnulöndunum sjálfúm þegartil
lengri tíma er litið.
Bjartsýnisspár
Ispám Alþjóðagjaldeyrissjóðsinshefúr
fram til þessa gætt nokkurrar bjartsýni
um að kreppan hefði lítil sem engin áhrif
á hagvöxt í heiminum. Osennilegt er
starfsmenn sjóðsins séu blindir á ástandið,
sennilega þekkja þeir það betur en flestir
aðrir, en ef þeir færa að spá því sem þeir
teldu líklegast þá myndi slik spá án vafa
hafa rnjög neikvæð áhrif og gæti auð-
veldlega valdið því að hlutirnir snerust
til enn verri vegar. Þeirra leið virðist því
vera að spá á fremur jákvæðum nótum en
koma viðvörunum og ábendingum um
það sem beturmá fara að í texta. Ábyrgð-
in er mikil og síst af öllu má alþjóðleg
brunavarnarsveit verða völd að enn meira
báli en þegar er orðið.
Heimild: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
1
A1 þj óðagj al dey ri ssj óðurinn
hefur endurskoðað spár
sínar um þróun hagvaxtar
I heiminum á næstu árum.
2
Mikið hefur verið fjallað
um kreppu í fjölmiðlum að
undanfömu. Reynt er að
svara því livað kreppa sé.
3
Mikilvægi banka í efna-
hagslífi einstakra landa og
raunar heimsins alls er
niikið.
4
Rakið er hvemig flugfélög-
in TWA og Swissair báru
sig að eftir stórslys. Mikill
munur var þar á.
1