Vísbending - 16.10.1998, Síða 4
V
ISBENDING
Stórslysaviðbrögð
að var margt áþekkt þegar þota flug-
félagsins TWA sprakk í loft upp
fyrir ströndum New York fylkis í
Bandaríkjunum fyrir tveimur árum og
þegarþota flugfélagsins Swissairhrapaði
fyrir ströndum Nova Scotia nú á dögun-
um. Það hvemig flugfélögin tóku á mál-
inu er hins vegar gjörólíkt. TWA virðist
hafa gert allt rangt en Swissair allt rétt.
Viðbrögð TWA
Mikli reiði ríkti í garð TWA vegna
þess að listi yfir farþega var ekki
birtur fyrr en degi eftir að slysið varð.
Ástæðan fyrir þessu var sögð sú að flug-
félagið hefði ekki haft fullnægjandi upp-
lýsingar um það hvaða farþegar vom með
flugvélinni. Flugfélagið kom á fót sér-
stökum gjaldfrjálsum símum sem að-
standendum var bent á að hringja í. Þegar
þeir hins vegar hringdu var ekki svarað.
Öll upplýsingamiðlun var í lágmarki og
aðstandendum var hvorki liðsinnt við að
komast á slysstað né að koma sér fyrir
þegar þeir voru komnir þangað. Það
hjálpaði TWA ekki að strax eftir slysið
komst af stað orðrómur um að það væri
af völdum hryðjuverks og þar af leiðandi
hófst strax umfangsmikil rannsókn á
orsökunum og það olli því að bannað var
að nálgast slysstað í langan tíma.
Viðbrögð Swissair
Strax klukkustund eftir að ljóst var að
slys hafói orðið þegar þota flugfélags-
ins Swissair hrapaði birti Swissair lista
yfir nöfn farþeganna og kom á fót neyð-
arlínum sem voru vel mannaðar. Nokkur
hundruð sérfræðingar í neyðaraðstoð
voru þegar sendir til New York til að
aðstoða aðstandendur og ijölskyldur
þeirra. Fljótlega var búið að skipuleggja
ferðir fyriraðstandendurtil Peggy's Cove
sem var í grennd við slysstaðinn. Ætt-
ingjum og vinum voru látnir 20.000
Bandaríkjadalir i té til að greiða íyrir ferð-
ir og gistingu vegna slyssins.
Aðstöðumunur
ftir fyrra slysið varð mikil ijölmiðla-
umræða urn viðbrögð og aðstæður
TWA og var strax borið upp á félagið að
viðhaldi flugvéla þess væri ábótavant og
að starfsmenn félagsins væru tillitslausir.
I kjölfarið voru sett lög í Bandaríkjunum
sem kváðu á um að flugfélög yrðu að hafa
reiðubúna áætlun um viðbrögð við stór-
slysum, auk þess sem ríkari kröfúr en áður
vom gerðar um farþega- og flutningsskrán-
ingu. Swissair hins vegar var í samstarfi
við Delta-flugfélagið og starfsmenn þess
meðhöndluðu farþega Swissair eins og
Delta heíði sjálft orðið fyrir áfallinu og
aðstoðuðu farþega á allan hátt. Urn líma
var talið að fleiri hj álparstarfsmenn Delta-
flugfélagsins hefðu verið í New York og
í Peggy's Cove en aðstandendur og vinir
farþeganna sem látist höfðu í slysinu.
Undirbúningur
mikilvægur
að sýndi sig að viðbrögð Swissair við
stórslysi af þessu tagi voru mjög við
hæft ogþað hvemig félagið aðstoðaði ætt-
ingj a fj árhagslega er talið verða til þess að
félagið fái mun lægri og færri skaðabóta-
kröfúr en T WA eftir slysið fyrir ströndum
New York fylkis. Sumir þeirra sem hafa
gert skaðabótakröfúr á hendur T WA segja
að þeir hefðu látið slíkt ógert ef flugfélagið
hefði sýnt samúð og aðstoðað þá í þeirri
sorg sem þeir gengu í gegnum. Sumir sér-
fræðingar í skaðabótarétti telja að nteð því
að bjóða fjárhagslega aðstoð minnki lík-
umaráháum skaðabótakröfum. Aðrirtelja
hins vegar að með því að bjóða Ijárhagslega
aðstoð sé verið að viðurkenna sekt sem
síðan leiði til auðveldari málssóknar á
hendurflugfélaginu.SamstarfSwissairog
Delta var einnig hnökralaust og yfimtenn
Delta áttu jafna aðild að ráöstölunum og
yfirmenn Swissair. Þegar þota T WA fórst
höfðu tveir af æðstu yftrmönnum félagsins
nýlega yfírgefið það og æðsti yfirmaður
þess var staddur í Englandi í viðskipta-
erindum oggatþví ekki gripið strax i taum-
ana. Auglj óst er að stórslysaáætlanir verða
að vera til staðar i fyrirtækjum sem eru í
stórrekstri og nauðsynlegt er einnig að þær
séu reyndar reglulega og endurbættar.
Orðstír deyr aldrei
Ahrif flugslyssins fyrir ströndum New
York fylkis hafa valdið því að orð-
spor TWA hefur beðið umtalsverða
hnekki. „Þeir virðast aldrei geraneittrétt,"
er viðkvæðið. Swissair hafði fyrir mjög
öfúndsvert orðspor. Fyrirtækið var talið
fyrirmynd annarra í rekstri, öryggismál-
um og viðhaldi flugflotans. S vo undarlegt
sem það kann að virðast þá hefur slysið
bætt ijöður í hatt þess. Menn lofa það
fyrir hæfúi í viðbrögðum og samúð við
aðstandendur farþega.
Heimild: Finacial Times
Aðrir sálmar
f------------------------------------A
Hvers konar morð?
orsætisráðherra sagði íyrir nokkrum
árum sögu á þessa leið frá námsárum
sínunt í lagadeild: Inn í fyrirlestur kom
skyndilega hópur fólks og hafði þar í
frammi undarlega tilburði. Eftir nokkurt
þóf hvarf fólkið af vettangi en þessi
uppákoma olli nokkru uppnámi nteðal
nemenda. Nokkru síðar bað kennarinn
þá sem viðstaddir höfðu verið að skrifa
um upplifun sína af viðburði þessum.
Kom þá í ljós að lýsingamar voru ekki
allar á sömu lund og sýndi það að menn
mundu og upplifðu atburðina hver með
sínum hætli.
í Bandaríkjunum hefúr verið lögð mikil
áherslaáaðskilnað löggjafarvalds, fram-
kvæmdavalds og dómsvalds. Hæstiréttur
hefur mikilvægu hlutverki að gegna við
lagatúlkun og þar ineð oft stefnumörk-
un. Áhersla er lögð á sj álfstæði dómstóla.
I Evrópu eru skilin milli löggjafar- og
framkvæmdavalds óskýrari, enda tíðk-
ast víðast að ráðherrar séu valdir úr hópi
þingmannaogsitji áþingi. Skiptarskoð-
anir eru um ágæti þessa kerfis og nú síðast
hefur Siv Friðleifsdóttir sett fram þá
skoðun að efla þurfi sjálfstæði þingsins.
Lengstum hefur þó verið óumdeilt að
dómstó I ar sky ldu vera sj ál fstæðir. Ný lega
hefúr forsætisráðherra fundið sig knúinn
til þess að veitast að réttarkeríinu nteð
óviðeigandi orðfæri vegna Geirfinns- og
Guðmundannála, þegar hópur ungs fólks
var dæmdur til fangavistar eftir að hafa
játað á sigmorð. Meðal annars kom þetta
ógæfufólk því til leiðar með ljúgvitni að
Ijórir menn voru að ósekju látnir sitja
langdvölunt í fangelsi. Um það þarf ekki
að deila. Ýmsu kann að hafa verið áfátt
við meðferð málsins en það breytir því
ekki að það er hlutverk dómstóla að kveða
upp dóma að vandlega yfírveguðu ntáli.
Síðar hefur sú skýring verið gefin að
ungmennin hafi verið i stöðugri virnu á
þessunt árum og því ekkert vitað hvað
raunverulega gerðist. En er líklegt að þau
muni allt miklu betur nú, tæpum aldar-
íjórðungi síðar? Sagan af löglræði-
nemunum sýnir að minnið er brigðult og
fylgdi það þó ekki sögunni að þeir hafi
verið undir áhrifum vímugjafa.
Upphlaup forsætisráðherra er óskiljan-
legt en ærin eru völd hans þótt hann taki
^sér ekki dómsvaldið líka.___________,
^Ritstjórn: Tómas Örn Kristinsson ritstjóri ogÁ
ábyrgðarmaður., Benedikt Jóhannesson.
Útgefandi: Talnakönnun hf., Borgartúni 23,
105 Reykjavik.
Simi: 561-7575. Myndsendir: 561-8646.
Netfang:visbending@talnakonnun.is.
Málfarsráðgjöf: Málvísindastofnun Háskólans.
Prentun: Gutenberg. Upplag: 700 eintök.
Öll réttindi áskilin. © Ritið má ekki afrita án
^leyfis útgefanda.___________________.
4