Vísbending - 26.02.1999, Blaðsíða 4
ISBENDING
Framkvæmd útboða
Aðrir sálmar
Júlíus Sæberg Ólafsson
viðskiptafræðingur
Verkútboð hér á landi eiga sér
langa hefð, sem meðal annars
kemur fram í því að staðallinn
ÍST 30 var settur árið 1969, en um útboð
á vörum og þjónustu gegnir öðru máli.
Hjá ríkinu voru fyrst settar formlegar
reglur um þetta efni um mitt ár 1993 og
þá um vorið tóku gildi ný lög um fram-
kvæmd útboða sem Samtök iðnaðarins
höfðu barist fyrir lengi. Með EES-aðild-
inni 1. janúar 1994 tóku gildi EES-reglur
um útboð. Þar með voru þessu innkaupa-
formi - útboðum - settar þröngar form-
legar skorður. Það er samdóma álit kunn-
ugra að setning þessara reglna hafi ver-
ið mikið framfaraspor. Margir aðilarhafa
þó haft tilhneigingu til að líta svo á, að
reglumar gildi ekki um þeirra eigin inn-
kaup vegna þess að þau séu svo smá í
sniðum. Þetta sjónarmið virðist áber-
andi hjá mörgum sveitarfélögum og enn
stunda margir opinberir aðilar óform-
legar verðkannanir sem ekki eru gerðar
skriflega og niðurstöður úr þeim eru
ekki tilkynntar þátttakendum formlega
þegar þær liggja fyrir.
Nokkur góð ráð
Til að vekja áhuga slíkra aðila á bættri
framkvæmd útboða eru hér fyrir neð-
an nokkur góð ráð sem voru þýdd úr
dönsku riti um ffamkvæmd útboða. Þar
er á einfaldan hátt leitast við að taka
fram nokkur einföld grundvallaratriði
sem tryggja að nokkru leyti jafnræði
bjóðenda og gegnsæi útboðsferilsins.
1. Aflið skriflegra tilboða.
2. Samskipti við bjóðendur eiga sem
mest að vera skrifleg.
3. Bjóðendur eiga að fá skýra og greini-
lega útboðslýsingu.
4. Bjóðendur eiga að fá allar nauðsyn-
legar upplýsingar og skýringar sam-
tímis.
5. Tilboðum á að skila í lokuðu umslagi.
6. Tilboð á að opna á tilsettum tíma í
eigin húsnæði að viðstöddum bjóð-
endum.
7. Engar umræður eða „samningatil-
raunir" um verð eða aðra skilmála
eiga að fara fram á tilboðstíma eða
eftir að tilboðstími er runninn út.
8. Gera á yfirlit um útboðið og niður-
stöður úr því og rökstyðja það.
9. Senda á bjóðendum tilkynningu um
niðurstöðu útboðsins.
10. Hafa á eftirlit með gæðum og af-
hendingu vörunnar/þjónustunnar.
11. Gera á umkvartanir tímanlega.
12. Ekki á að stunda viðskipti við eigin
starfsmenn.
13. Forðist að leyfa starfsfólki að kaupa
á kjörum skv. opinberum kjörum.
14. Ekki á að þiggja „ókeypis" boðsferðir
seljenda á ráðstefnur eða námskeið
15. Selja á notuð tæki eða húsgögn
o.þ.h. á tilboðsmarkaði.
16. Reyna á að láta notuð tæki ganga
upp í viðskiptin.
Áhugasömum má vísa á nýútkomna bók,
Handbók um opinber innkaup, sem er
fáanleg hjá Ríkiskaupum í Borgartúni 7,
Reykjavík.
Siðareglur
Eins og sjá má í töluliðum 12 til 16 þá
em settar fram fimm ábendingar um
viðskiptasiðferði( 12-16), t.d. kaup starfs-
fólks á vöru frá seljendum sem eru með
fasta viðskiptasamninga við stoluanir,
„ókeypis“ ferðir á vömsýningar, hvemig
stofhanir skuli standa að ráðstöfún not-
aðramunao.s.ffv. Hérerekkium formlegar
siðareglur að ræða heldur tilraun til leið-
beiningar og til að kveikja umræðu um
mikilvæg ogstundum viðkvæmúrlausn-
arefni þar sem nánari reglur skortir.
Hugsanlega ættu samtök viðskiptalífs-
ins og hið opinbera að taka höndum
saman um gerð slíkra reglna. Umræður
um slík mál hafa komið upp öðru hverju
þegar vandamál hafa komið upp en lítið
orðið úr ffamkvæmdum enn sem komið
er. Forystumenn viðskiptalífsins em þó
meðvitaðir um þetta viðfangsefni og bætt
viðskiptasiðferði er allra hagur. Með
auknu frjálsræði á markaðnum er þörf
meira aðhalds en áður. Reglur gegna
vissulega slíku aðhaldshlutverki. Ein-
hvern veginn er það þó hugnanlegra að
viðskiptalífíð hafi sjálft frumkvæði við
setningu slíkra reglna, þar sannast hið
fomkveðna: „Lögin taka við þar sem
sjálfstjórn sleppir."
f Vísbendingin
tafrænar myndavélar hafa verið á'
tJ markaði í nokkur ár. Til þessa hafa
gæði mynda úr þeim ekki verið neitt til
að hrópa húrra fyrir og ef gæðin hafa
verið viðunandi þá hefur verðið verið
óviðunandi. Þetta er að breytast. Nú
eru komnar á markað myndavélar sem
hafa rúmlega 2 milljónir myndeininga
(pixels) og verðið er undir 1.000 Banda-
ríkjadölum. Myndir úr þessum vélum
má stækka í 11x14 tommur án þess að
mikiðsjáiágæðum. Þamaerþví kominn
raunhæfúr valkostur iýrir lýrirtæki sem
Vþurfa að geyma myndir stafrænt.
Forneskjur nútímans
Eftir tæplega tvö ár hefst nýtt árþús-
und. Fyrir einhverja markar það nýtt
upphaf en íýrir flesta mun lífíð sennilega
hafa sinn vanagang. Síðustu tveir ára-
tugir þessarar aldar munu sennilega
skipa sinn sess í sögunni vegna þeirra
frelsishugsjóna sem hlotið hafa hljóm-
gmnn meðal almennings. Það em ekki
aðeins þjóðir sem hafa losnað undan
oki einvalda heldur hafa efriahagsleg
höft brostið og frelsið haldið innreið
sína í alhnargar stofnanir þjóðfélagsins.
RÚV-brauð
En nokkrar eftirlegukindur em þó enn
til staðar í það minnsta hér á landi.
Ríkisútvarp og -sjónvarp eru þeirra á
meðal. Nýstárlega auglýsingaherferð
stjómmálasamtaka hefúr vakið athygli
alþjóðar á þessu með því að setja málið
í nýtt samhengi. Réttlæting fýrir ríkis-
rekstri þessara stofnana er enginn.
Menningu verðurjafn vel sinntaföðmm
efáhugi erfýrirslíku. Öryggishlutverkið
geta aðrir einnig rækt jafn vel og inngrip
stjómvalda í fjölmiðlum á neyðarstund-
um hljóta að teljast sjálfsögð.
Snakk fyrir hest
Tilboð Norðmanna um að fá tollffelsi
á snakk í skiptum týrir að flytja inn
nokkrar merar hlýtur að teljast með því
ómerkilegra sem rekið hefur að ströndum
þessa lands um langt skeið. A.m.k.
óbreytt. Hins vegar mætti kannski nota
tækifærið og afnema tolla á þessum
vörutegundum gagnvart öðmm í leið-
inni og þá stæðu allir jafnfætis.
Auglýsingadómur
Dómur Hæstaréttar um áfengisaug-
lýsingar kemur í sjálfu sér ekki á
óvart. I lins vegar eru það ákveðin von-
brigði að hinn dæmdi ætlar sér ekki að
fara lengra með málið. Það er óþolandi
nú á dögum að það sé íþyngjandi að
vera búsettur á þessum klaka. Engar
athugasemdir eru gerðar við áfengis-
auglýsingar sem berast með erlendum
ijölmiðlum, aðeins þeim innlendu. Jafn-
'vræði er greinilega aðeins fýrir suma.
'Ritstjórn: Tómas Örn Kristinsson ritstjóri og
ábyrgðarmaður., Benedikt Jóhannesson.
Útgefandi: Talnakönnun hf., Borgartúni 23,
105 Reykjavik.
Sími: 561-7575. Myndsendir: 561-8646.
Netfang:visbending@talnakonnun.is.
Málfarsráðgjöf: Málvisindastofnun Háskólans.
Prentun: Gutenberg. Upplag: 700 eintök.
Öll réttindi áskilin. © Ritið má ekki afrita án leyfis
ýútgefanda.______________________
4