Vísbending


Vísbending - 24.09.1999, Síða 3

Vísbending - 24.09.1999, Síða 3
ISBENDING Lífeyrisskuldbindingar og ríkishalli Bjarni Bragi Jónsson hagfræðingur Nýlega útkominn ríkisreikningur fyrir árið 1998 er af fjármála- ráðherra og öðrum sem opinberum skýrslum stýra talinn vera til marks um trausta og ábyrga fjármálastjórn og mótvægi við ríkjandi þensluástand. Þetta má til sanns vegar færa, sé einungis hugað að aðhalds- sarnri stjórn útgjalda sem koma til kasta fjárveitingarvaldsins á grundvelli lítt eða ekki breyttra tekjustofna sem bornir eru uppi af stöðugum hagvexti og því miður ekki síður af óhóflegri neyslu- aukningu og þar með viðskiptahalla og skuldasöfnun út á við. Undiryfirborðinu Sé skyggnst undir yfirborðið kemur í ljós að margt orkar tvímælis í þeirri greiningu sem liggur þessu áliti til grundvallar. Mestu varðar að ein risavaxin gjaldfærsla yfirskyggir allt annað í ríkisfjármálum liðins árs, sem er nýmyndun lífeyrisskuldbindinga ríkis- sjóðs, ásamt hliðstæðu endurmati hinna fy rri, svo nemur alls 30 milljörðum króna. Þessi gjaldfærsla var heintiluð með breytingu launakerfis ríkisins sem tók gildi um áramótin 1997/98 en er að langmestum hluta niðurstaða af eins konar sjálfgengisvél kjaramálanna, samkvæmt samningum, kjaradómum eða nefndarúrskurðum, svo ekki sé talað um sjálfdæmi. Þetta er gert í þeim yfirlýsta tilgangi að bæta upp fyrra misrétti í samanburði við aðra starfshópa og túlka þegar fengin kjör yfirvinnu og aukagetu til skynsamlegra horfs og viðurkenningar lífeyrisréttinda. Þau rök hafa óefað mikið gildi, en ekki fortakslaust án tillits til fjárhagsgetu ríkissjóðs og efnahagsástands. Með þessari aðgerð er veitt út gífurlegum hagsmunum frá samfélaginu og almenn- um skattborgurum til eins hagsmuna- geira, án þess að fjárveitingarvaldið hafi séð það fyrir og tekið á því ábyrgð beinna atkvæða. Að sama skapi missti ríkisvaldið færi á því að tryggja hagsmuni almennings með því að fyrirbyggja með samningum eða löggjöf slíka endurupptöku og hækkun áður áunninna lífeyrisréttinda framvegis. Góðæri ríkisfjármála Fljótt á litið gæti svo sýnst sem úr nógu hafi verið að spila. Tekjur ríkissjóðs hækkuðu frá fyrra ári samkvæmt eldri framsetningu um 21,8 milljarða eða 16%. Þar sem meiri hluti þess er sprottinn af þenslu þjóðar- útgjalda umfram hagvöxt hefði þurft að taka tilsvarandi hluta tekna úr umferð til að styrkja stöðu ríkissjóðs gagnvart áorðnum skuldbindingum í stað þess að auka þær að sama skapi. Niðurstaðan varð hins vegar sú að myndaðar voru lífeyrisskuldbindingar að svo til sömu fjárhæð, 22 milljörðum króna, en af því fyrirséðir aðeins 4 milljarðar út frá reglubundinni starfsemi eða sem ígildi iðgjalda umfram útgreiddan lífeyri. Þeir 18 milljarðar sem umfram standa eru þó ekki eina örlætið ofan á eiginlegan kostnað við störf ársins heldur fór einnig fram endurmat allra fyrri skuldbindinga í hátt við launaþróun ársins, að fjárhæð 10,7 milljarðar. Heildarinnstreymi eða metin myndun lífeyrisréttinda nam þannig 32,7 milljörðum en að frádregnum 2,5 millj arða útgreiddum lífeyri hækkuðu skuldbindingar þeirra vegna um 30,2 milljarða eða31,8%, upp í 125 milljarða metna skuld. Er því síður en svo ofmælt að hlutdeild ríkissjóðs í góðæri síðasta árs hafi öll fallið opinberum starfs- mönnum í skaut, metin út frá heildar- hagsmunum og til langs tíma. Raunar fórfyrri hálfleikurframárin 1995-96 með endurmati fyrri lífeyrisskuldbindinga um 14,4 og 6,3 milljarða, eða alls 20,7 milljarða, svo að uppfærsla svipaðs eðlis er orðin um 50 milljarðar á aðeins fjórum árum, eða um 40% af stöðu skuld- bindinganna nú. Lífeyriskerfi sveitar- félaga lýtur í megindráttum sömu reglum og því sýnt að svipuðu máli gegni um það. Verðmætréttindi Iyfirlitskafla ríkisreiknings er gefin sú skýring á vanáætlun, eða öllu heldur vöntun áætlunar um sérstök áhrif nýs launakerfis við upphaf ársins, að ekki hafi þá verið fyrir hendi forsendur til að gera slíka áætlun. Virðist raunar felast í því að sett hafi verið í gang ófyrir- sjáanlegt ferli samninga og kjaradóma um breytt launakerfi sem ýmsir hafa talið stefna í illskiljanlegan glundroða. Má í því sambandi spyrja hvort yfirleitt hafi verið nokkrar forsendur til að greiða atkvæði um að tengja lífeyrisskuld- bindingar við slíkt ferli án nokkurs fyrirvara um síðara samþykki. Fyrir var vitað að lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna, sem og bankamanna, væru mun verðmætari en á almennum vinnumarkaði svo að sérstök nefnd til mats á kjarasamanburði BHMR taldi mega meta þau árið 1986 til 9% álags á laun opinberra starfsmanna. Almenn reynsla má og teljast fyrir því að túlkun aukatekna og fríðinda inn í almennan taxta hneigist til að verða mjög ýkt og jafnvel fara úrböndunum, auk þess sem slik kjör eiga það til að ganga aftur. Eftirlitogöryggi Iumfjöllun máls þessa eru í húfi tvær meginreglur sem hafaber í heiðri, hvor á sínu sviði lífeyrismála og opinberra fjármála. Þær eru þó sprottnar af þeirri sömu rót að rekstraraðila beri að fullreikna kostnað við öll tilfallin aðföng á rekstrarárinu. Að öðrum kosti er niðurstaðan í reynd óþekkt og almennt lakari en sýnt er. Lánstraust væri að sama skapi reikult og grundvöllur viðskipta með eignarhluta ótraustur. Einnig mælir öryggi lífeyrisþega með því að gerð séu skýr skil uppgjörs við launagreiðanda með greiðslum í lífeyris- sjóð sem rekinn sé í trúnaði við lífeyrisþega og með fjárvörslu fyrir þeirra hönd. Þannig breytast launþegar í eignastétt við aldursmark eftirlauna- töku. Almennt hefur ekki hvarflað að atvinnurekendum í einkageira að taka á sig ábyrgð á lífeyrisgreiðslum til frambúðar og með launviðmiðun eftir- manna, né mundu launþegar nú orðið taka hana gilda. Ekki aðeins hefur sú viðmiðun reynst vaxandi vandkvæðum bundin sökum breytinga á störfum og kröfum til þeirra heldur og vafasöm réttlæting fyrir því að breyta eftirlaunum út frá forsendum sem ekki voru fyrir hendi þegar störfin voru innt af hendi. Meginatriðið er þó að gera verður kröfuréttarleg skil á hæfilegum fresti svo að áreiðanlegt uppgjör megi semja. Þannig hefur nú verið farið að í banka- kerfinu með breytingu á rekstrarformi þeirra. Þörfin fyrir slík kröfuskil hefur nú verið mjög almennt viðurkennd, ekki síst af fjármálaráðherra, en þau hafa ekki skýra merkingu nema lífeyrissjóðir séu gerðir að fjárhagslega sjálfstæðum einingum. Mælir þannig allt með því að svo verði einnig um opinbera starfs- menn til samræmis við vinnumarkaðinn í heild. Færi stóraukinna réttinda þeim til handa ber tvímælalaust að nýta til að koma því fram. Að því leyti sem ríkisvaldið hlutast til um eftirlit og öryggi lífeyrissjóða ætti það framvegis að gilda um þá almennt. Hagræn áhrif Hliðstæð meginregla gildir um reikn- ingshald hins opinbera, að öll notkun verðmæta sem myndað hefur (Framhald á síðu 4) 3

x

Vísbending

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.