Vísbending - 14.04.2000, Qupperneq 3
ISBENDING
Markaðsumbætur í orkumálum
Þórður Friðjónsson
hagfræðingur
Islenskt efnahagslíf hefur breyst
mikið á undanfömum árum. Megin-
breytingin felst í því að nútímalegur
markaðsbúskapur hefur komið í stað
miðstýringar og stjórnvaldsákvarðana
um marga mikilvæga þætti efnahags-
mála. Þannig eru til að mynda vextir og
fjármagnsflutningar milli landa frjálsir,
gengi krónunnar og verðbréf eru á
markaði, fiskverð er frjálst og verð á
vöru og þjónustu er almennt frjálst nema
samkeppni sé ófullnægjandi. Við bætist
að ísland er aðili að EES og því lýtur
viðskiptalffið sömu lögmálum og í ESB.
Ekki þarf að líta langt aftur í tímann til að
sjá allt aðra mynd. Fyrir fimmtán til
tuttugu árum tóku stjórnvöld beint og
óbeint flestar þessar ákvarðanir.
Enginn vafi er á því að markaðs-
umbæturnar á undanförnum árum hafa
lagt grunninn að góðærinu sem ríkt
hefur í þjóðarbúskapnum um árabil.
Þessar umbætur hafa stuðlað að aukinni
samkeppni og gert leikreglur efnahags-
lífsins skýrari. Fyrir vikið hefur fram-
leiðni og afköst stóraukist í atvinnu-
lífinu. Þetta hefur leitt af sér einstakt
hagvaxarskeið í sögu landsins.
En þótt umræddar umbætur hafi
verið víðtækar hafa þær ekki enn náð til
allra sviða efnahagslífsins þar sem virkja
má samkeppni til gagns. Eitt af þeim
sviðum sem setið hefur eftir eru raforku-
málin. Þar hafa markaðsöflin ekki enn
fengið hlutverk en hins vegar eru í
sjónmáli miklar breytingar á því sviði
vegna þess að stjórnvöld hafa ákveðið
að hrinda þar í framkvæmd markaðs-
umbótum. Það blasa því við miklar
skipulagsbreytingar í orkubúskapnum.
Markaðsvæðing
Forsögu málsins má einkum rekja til
þriggja þátta. f fyrsta lagi umræddra
markaðsumbóta í íslenskum þjóðar-
búskap. Þær hafa almennt reynst vel og
því eðlilegt að kanna hvort slíkar
umbætur geti átt við fleiri greinar
atvinnulífsins. í öðru lagi hafa raforku-
málin í nágrannalöndunum víða verið
markaðsvædd á undanförnum árum með
góðum árangri og því er eðlilegt að
spyrja hvort reynsla þessara þjóða geti
nýst hér á landi. I þriðja lagi gildir
tilskipun ESB um innri markað fyrir
raforku á öllu EES svæðinu. Tilskipunin
gerir kröfur um aðskilnað raforkuflutn-
ings frá annarri starfsemi raforku-
Lykiltölur
(í milljörðum króna)
Heildareignir 185
Eiqið fé 100
Velta 30
- Raforka 22
- Hiti 8
Stærð
- AFL - MW 1.200
- Framleiðsla - TWh (6,9+1,3)
fyrirtækja. Slíkur aðskilnaður er forsenda
samkeppni.
Upp úr þessum jarðvegi hafa hug-
myndir manna sprottið um markaðs-
væðingu raforkumála hér á landi. Þannig
skilaði nefnd um framtíðarskipulag
orkumála á Islandi heildstæðum tillögum
í þessa veru í október árið 1996. Þetta
var fjölmenn nefnd sem varð sammála
urn að mæla með endurskipulagningu
raforkumála hér á landi með markaðs-
sjónarmið að leiðarljósi. I framhaldi
samþykkti ríkisstjórnin stefnumótun
sem byggði á þessum tillögum (28.
október 1996) og iðnaðarráðherra fylgdi
samþykktinni eftir með því að leggja
fram á Alþingi þingsályktunartillöu um
þetta efni. Frumvarp til raforkulaga hefur
verið í vinnslu um nokkurt skeið og er
áformað að leggja fram frumvarp á
Alþingi í vor. Þá skilaði nýlega nefnd
um stofnun landsnets tillögum til
ráðherra um framtíðarskipulag raforku-
flutnings.
Af þessu má sjá að mikill undir-
búningur hefur átt sér stað og því er
okkur ekkert að vanbúnaði að hefjast
handa við markaðsvæðingu raforku-
kerfisins. Ekki þarf að fara mörgum
orðum um þá hagsmuni sem eru í húfi.
I því sambandi nægir að nefna að
orkubúskapurinn er stór í þjóðhagslegu
samhengi og þess vegna er mikilvægt
fyrir heimili og fyrirtæki að hann sé vel
rekinn.
I töflu sem fylgir hér með getur að
líta yfirlit um lykiltölur fyrir orku-
búskapinn. Þarkemur meðal annars fram
að heildareignir hans eru 185 milljarðar
króna og eigið fé er um 100 milljarðar
króna. Þetta eru álíka miklar eignir og í
öllum iðnaði á landinu. Þá er velta
greinarinnar um 30 milljarðar króna og
skiptist hún þannig að 22 milljarðar
tilheyra raforku og 8 milljaraðar hita-
veitum. Aflið er um 1200 MW og
framleiðslan um 8,2 TWst.
Tilgangur
Megintilgangur markaðsvæðingar
er að stuðla að hagkvæmri nýtingu
orkulindanna í þágu landsmanna.
Samkeppni í vinnslu og verslun með
raforku getur gegnt veigamiklu hlutverki
í þessu efni. Hér að baki liggur einfald-
lega sú hugsun að markaðsumhverfi
skili mestum árangri á þessu sviði sem
flestum öðrum þar sem samkeppni
verður við komið. Við þetta bætist að
ríki og sveitarfélög geta dregið sig út úr
rekstri og eignarhaldi ef þau svo kjósa
og telja sig geta nýtt fjármagnið til
annarra þarfa. Engin sérstök ástæða er
til þess fyrir ríki og sveitarfélög að binda
mikla fjármuni í fyrirtækjum sem starfa í
eðlilegu samkeppnisumhverfi. Loks
hefur áðurnefnd tilskipun ESB sam-
keppni að markmiði.
(Framhald á síðu 4)
Nýtt kerfi
Forsendur samkeppni - aðskilnaður samkeppnis- og einokunarþátta
Samkeppni Söluaðili 1 Samkeppni
~ Nolandi
Einokun
Lands- Dreifí-
net kerfi
~ Notandi
Söluaðili 2
3