Vísbending - 26.05.2000, Qupperneq 1
V
V i k u
ISBENDING
rit um viðskipti og efnahagsmál
26. maí 2000
21. tölublað
18. árgangur
í öræfum áhættunnar
Nýlega hélt Útflutningsráð ís-
lands fund þar sem fjallað um
hvernig hægt væri að auka
útflutning frá íslandi. Tilefnið er ærið,
viðskiptahalli er mikill (sama hvaða
uppgjörsaðferðir eru notaðar) og út-
flutningur virðist ætla að verða á bilinu
22-26% af VLF á næstu árum, ef marka
má síðustu ár, en fyrir lítið hagkerfi eins
og það íslenska er jafnan talið að útflutn-
ingur þyrfti að vera þó nokkuð meiri.
Leiðin að auknum útflutningi er þó ekki
fólgin í því að taka mikla áhættu.
Spilling
Síðustu þrjú ár hefur OECD reiknað
út og birt tölur, eða „einkunnir", um
spillingu. Þessi einkunnargjöf gefur
ágæta mynd af því við hverju má búast
í ólíkum löndum. A meðfylgjandi töflum
þýðir einkunnin 10, sem Danmörk fær,
að þar sé nær engin spilling en spillingin
grasserar í þeim löndum sem prýða
botnsætin, eins og í Nígeríu og Kamerún.
Island kemur vel út úrþessari einkunnar-
gjöf með einkunnina 9,2 og situr í 5.-6.
sæti, ásamt Kanada. Þó að svona ein-
kunn sé góð fyrir þjóðfélagið þá getur
hún gert útflytjendur bláeyga fyrir þeirri
spillingu sem ríkir á öðrum mörkuðum
en í heimalandinu. Satt að segja hafa
íslenskir útflytjendur oft á tíðum gróf-
lega vanmetið þá áhættu sem fylgir því
að fara á fjarlæga markaði þar sem innri
uppbygging efnahagskerfisins ræðst
oft af öðrum lögmálum en þeir þekkja.
Skreiðarsamlagið fór t.d. illa út úr við-
skiptum sínum við Nígeríumenn og
upphafið á endalokum íslenskra sjávar-
afurða má rekja til viðskipta í Kamtsjakta
í Rússlandi.
Erfitt en ekki ómögulegt
Islendingar hafa lengi stundað útflutn-
ing til Rússlands, sem er mikið
spillingarbæli skv. einkunnagjöf OECD,
þó svo að útflutningur þangað hafi
minnkað verulega á síðustu árum vegna
efnahagskreppunnar þar í landi. Engu
að síður fluttu Islendingar út vörur
þangað fyrir 421 milljón króna á síðasta
ári. Önnur lönd sem fá lága einkunn eru
ekki mikilvæg útflutningslönd fyrir
Islendinga. Þó var flutt út fyrir 1 milljón
til Ekvador, 5,4 milljónir til Kenía, 0,8
milljónir til Tansaníu og 14 milljónir til
Indónesíu á síðasta ári. Nígería, sem er
eitt mesta spillingarbæli heimsins, er hins
vegar eini markaðurinn fyrir herta þorsk-
hausa frá Islandi og voru vörur fyrir 992
milljónir að verðmæti fluttar þangað út
á síðasta ári (98% var hertir þorskhaus-
ar), en það samsvarar 0,7% af verðmæti
heildarvöruútflutnings síðasta árs. Eftir
að SIF yfirtók Skreiðarsamlagið fyrir
fimm árum hefur fyrirtækinu tekist að
tryggja að þessi viðskipti gangi nokkuð
snurðulaust fyrir sig.
✓
I sinni villtustu mynd
Arið 1992 lét Útflutningsráð gera
athugun á Kamtsjatkasvæðinu . Sá
sem fór fyrir þeirri athugun sagði síðar
í viðtali að þar væri „kapítalisminn í sinni
villtustu mynd“. Það kom líka á daginn
þegar IS hóf samstarf sitt við rússneska
fyrirtækiðUTRFþarílokárs 1995.Mútur
og spilling voru fastur hluti af kerfinu
og allt var til sölu hvort sem menn áttu
það eða ekki. IS-menn reyndu að breyta
kerfinu með því að hætta greiða mútur
en fengu bágt fyrir. Engu að síður er
talið að ÍS hafi greitt 7% af sölutekjum
fyrir afurðir í „þróunarsjóð“ til
stjórnenda UTRF, sem aldrei spurðist
meira til. Þetta er í sjálfu sér eðlileg tala
þar sem skv. rannsóknum Alþjóða-
bankans árin 1998 og 1999 þá fóru
almennt 7% af tekjum fyrirtækja í Albaníu
og Lettlandi og 15% tekjum fyrirtækja í
Georgíu í mútur. Samstarfinu á milli ÍS
og UTRF lauk með sviplegum hætti
þegar rússneska fyrirtækið rifti samn-
ingum við IS einhliða og olli þar með IS
verulegu tjóni.
Þegar best lét, árið 1996, þá voru
tekjur IS af útflutningi til Kamtsjatka um
276 milljónir króna og hagnaður fyrir-
tækisins náði hámarki það ár, eða um
160 milljónum króna. Áhættusöm svæði
geta því skilað miklum gróða. Samkvæmt
tölum frá Sameinuðu þjóðunum skilaði
Afríkusvæðið mestri arðsemi allra
Spilling landa, 20 óspilltustu og
spilltustu lönd lieims
Danmörk 10,0 80 Armenía 2,5
2 Finnland 9,8 Bólivía 2,5
3 Nýja-Sjáland 9,4 82 Ekvador 2,4
Svíþjóð 9,4 Rússland 2,4
5 Kanada 9,2 84 Albanía 2,3
ísland 9,2 Georgía 2,3
7 Singapúr 9,1 Kasakstan 2,3
8 Holland 9,0 Kirgisistan 2,2
9 Noregur 8,9 Pakistan 2,2
Sviss 8,9 Úganda 2,2
11 Lúxemborg 8,8 90 Kenía 2,0
12 Ástralía 8,7 Paragvæ 2,0
13 Bretland 8,6 Júgóslavía 2,0
14 Þýskaland 8,0 93 Tansanía 1,9
15 Hong Kong 7,7 94 Hondúras 1,8
írland 7,7 Úsbekistan 1,7
17 Austurríki 7,6 96 Aserbaídsjan 1,7
18 Bandaríkin 7,5 Indónesía 1,7
19 Síle (Chile) 6,9 98 Nígería 1,6
20 Israel 6,8 99 Kamerún 1,5
landsvæða heimsins að meðaltali af
beinni erlendri fjárfestingu frá 1991-
1997. Arðsemin liggur fyrst og fremst í
ódýrum aðgangi að náttúruauðlindum,
sem krefjast mikilla fjárfestinga til þess
að hægt sé að vinna þær, og ódýru
vinnuafli. I Kamtsjatka vantaði rúss-
neska fyrirtækið fjármagn sem IS gat
útvegað í staðinn fyrir aflahlutdeild. Á
móti kemur að áhættan í mörgum af
þessum ríkjum er mikil fyrir utan hefð-
bundna viðskiptaáhættu, s.s. pólitísk
áhætta að fyrirtæki verði tekið eignar-
töku eða starfsmenn hreinlega myrtir.
Erlend olíufyrirtæki í Alsír eyða t.d. sem
nemur 8-9% af fjármagni sínu í örygg-
isvamir og í 4-5% í Kólumbíu skv. tíma-
ritinu Economist.
Gull eða glópagull
Oft er freistandi fyrir fyrirtæki að fara
á ókunnar slóðir þar sem von er á
gulli og grænum skógum en það getur
hins vegar reynst dýrkeypt. Fyrirtæki
verða með öllum tiltækum ráðunt að
tryggja sig fyrir þeirri áhættu sem þar er
að finna. Best er þó að leita sér nær og
finna traustan grundvöll til þess að
byggja upp erlend viðskipti í stað þess
að elta gullið í blindni. Sjaldnast eru slík
ævintýri þess virði að farið sé út í þau
og alls ekki ef ævintýrin eru svo mikil að
þau geti dregið fyrirtæki til dauða. Þá er
nú betur heima setið en af stað farið.
1
Það er tvennt ólíkt að
starfa þar sem spilling
ræður ríkjum og þar sem
hún vart þekkist.
2
Virgin-fyrirtækið hefur
búið til skapandi andrúms-
loft til þess að koma á fót
nýjum fyrirtækjum.
3
Þorvaldur Gylfason pró-
fessor gerir tillögu að því
hvemig hægt væri að
flokka stjómmálaflokka í
4
annað en hægri og vinstri
flokka. Hann flokkarþá með
hliðsjón af réttlæti og
hagkvæmni.
1