Vísbending - 10.11.2000, Side 3
ISBENDING
Stefnumörkun í ríkisfj ármálum
Þórður Friðjónsson
t hagfræðingur
Skemmst er frá því að segj a að staða
ríkisfjármála hefur batnað mikið á
undanfömum ámm. Til marks um
það er mikill afkomubati og lækkun
skulda ríkisins. A þessa mælikvarða
hefur ótvírætt náðst mikill árangur.
Skiptari skoðanir em hins vegar þegar
litið er á aðra mælikvarða. Þar skiptir
líklega tvennt mestu máli. Annars vegar
hversu vel ríkisfjármálin hafa gegnt
hagstjómarhlutverki sínu og hins vegar
hvemig hlutur hins opinbera hefur
þróast í hagkerfmu. Hér á eftir er ætlunin
að fjalla nánar um þessi atriði, bæði það
sem vel hefur verið gert og það sem
betur má gera.
r
Arangur
Eins og mynd 1 sýnir var afkoma hins
opinbera slæm framan af tíunda
áratugnum, fer síðan batnandi um
miðjan áratuginn og undir lok hans er
hún orðin mjög góð. Horfur fyrir þetta
ár og það næsta em einnig góðar. Þessu
er lýst svo í fjárlagafrumvarpinu fyrir
2001 að horfur séu á að „þriðja árið í röð
verði afgangur á ríkissjóði meiri en 20
milljarðar króna, eða samanlagt um 80
milljarðar ffá árinu 1999“. Afkomubatinn
kemur fyrst og ffemst fram í ríkisfjár-
málunum en síður hjá sveitarfélögum.
Myndin sýnir bæði afkomu ríkis og
sveitarfélaga sem hlutfall af landsfram-
leiðslu og jafhframt samanlagða afkomu
hins opinbera.
Það gefur augaleið að svona mikill
afgangur kemur sér vel til að grynnka á
skuldum ríkissjóðs, enda er stefnt að
þvi að þær verði komnar niður í 100
milljarða í lok næsta árs borið saman við
170 millj arða króna i árslok 1997. Efþessi
áform ganga eftir fer hrein skuldastaða
ríkissjóðs úr 32% sem hlutfall af lands-
framleiðslu niður í 14% á umræddu
árabiliogheildarskuldirnarlækkaúr46%
í 26%. Þegar hið opinbera er tekið sem
heild (ríkissjóður, sveitarfélög og
almannatryggingar) eru sömu hlutföll
vegna heildarskulda 53% 1997 og 34%
2001.
Þessar tölur tala sínu máli. Staða
ríkisfjármála hefur tekið stakkaskiptum
á fáum árum. Hagsveiflan skýrir auð-
vitað að hluta þennan árangur. A fyrri
hluta áratugarins var lægð í efnahags-
málum en á þeim síðari hefur verið mikill
uppgangur. Það er jafnan svo að staða
ríkissjóðs veikist í niðursveiflu og
styrkist á ný þegar hagkerfið nær sér á
strik. Þessi hagsveifluþáttur skýrir þó
ekki allan batann. Afkoman hefur batnað
ár frá ári að undanfömu þótt leiðrétt sé
fyrirhagsveiflunni. Stjóm ríkisfjármála
hefur því verið beitt með beinum hætti
til að dragaúr sveiflunni í efnahagslífinu.
Vaxandi samneysla
Ein leið til að skýra nánar hvað liggur
að baki þessum breytingum er að
skoða þróun tekna og gjalda hins
opinbera. Mynd 2 sýnir umrædda þróun
heildarútgjalda og heildartekna sem
hlutfall af landsframleiðslu á árunum
1990-1999 með áætlun fyrir þetta ár og
spá fyrir það næsta. Þar vekur athygli
að tekjur hins opinbera hafa stóraukist
á þessum árum. I byrjun áratugarins
námu þær um 36% af landsframleiðslu
en í lokhanstæplega41 %, þ. e. árið 1999
- síðasta árið sem tölur liggja fyrir um.
Gert er ráð íyrir að þetta hlutfall lækki
síðan á þessu og næsta ári niður undir
40%. Hækkunin á þessum árum nemur
því 4-5 prósentustigum af landsfram-
leiðslu, eða sem samsvarar 30-35
milljörðum króna. Utgjöldin stóðu hins
vegar nær því í stað þegar litið er til
áranna 1990 annars vegar og 1999 hins
vegar, þótt myndast hafi kúfur milli
þessara ára þegar efnahagslægðin var
dýpst.
Þessi þróun er nokkuð á annan veg
í aðildarríkjum OECD þar sem hag-
sveiflan hefur verið svipuð og hér á
landi. Staða opinberra fjármála hefur
víða styrkst á þessu árabili, en þar hefur
ávinningurinn í ríkari mæli birst í lækkun
útgjalda en hækkun tekna. í Banda-
ríkjunum er þessu til dæmis nánast öfugt
farið miðað viðísland. Þarhafaútgjöldin
lækkað um 4 prósentustig miðað við
landsframleiðslu á síðustu tíu árum á
sama tíma og tekjumar hafa hækkað um
innan við 2 prósentustig. Á írlandi og
í Noregi hafa útgjöldin lækkað verulega
(um 8 prósentustig) án þess að tekjumar
hafi aukist; reyndar hafa þær minnkað
umtalsvert sem hlutfall af landsfram-
leiðslu á írlandi.
Þróun samneyslunnar í samanburði
við önnur lönd sýnir þetta enn skýrar.
Á mynd 3 má sjá samneysluna sem
hlutfall af landsframleiðslu fyrir nokkur
lönd. Eins og myndin sýnir hefur þetta
hlutfall víðast hvar farið lækkandi en
I sland sker sig úr með hækkandi hlutfall.
Útgjöld til samneyslu hafa því jafnt og
þétt verið að aukast hér á landi á sama
tíma og þau hafa farið minnkandi annars
staðar. Það er umhugsunarefni hvert
stefnir í þessum efnum. Er það vilj i okkar
að sífellt stærri hluti af ráðstöfunarfé
þjóðarinnar fari til samneysluútgjalda?
Hvað á ríkið að vera stórt?
Annað umhugsunarefni er þáttur
ríkisfjármálanna í hagstjórninni. Þótt
stefnan i ríkisfjármálum hafi falið í sér
aukið aðhald að efnahagslífinu á undan-
fömum ámm er ljóst að það hefur ekki
verið nægilegt til að koma í veg fyrir
mikinn viðskiptahalla og þenslu. Það er
auðvitað hægara sagt en gert að tryggja
viðunandi jafnvægi í þjóðarbúskapnum
með aðhaldssamri ríkisfjármálastefnu
þegar aðstæður eru þannig að reka
(Framhald á síðu 4)
Mynd 1. Afkoma hins opinbera
(hlutfall af landsframleiðslu)
Mynd 2. Tekjur og gjöld hins opinbera
(hlutfall af landsframleiðslu)
3