Vísbending


Vísbending - 10.11.2000, Síða 4

Vísbending - 10.11.2000, Síða 4
(Framhald af síðu 3) verður ríkissjóð með gríðarlega miklum afgangi til að ná því markmiði. Ekki er auðvelt að sannfæra þjóðina um nauð- syn enn meiri afgangs þegar hann er mikill fyrir. Engu að síður eru ríkisfjár- málin öruggasta tækið í því skyni og það er óneitanlega hagstjómarhlutverk þeirra að tryggja slíkt jafnvægi. Áherslurtil framtíðar r Iíjárlagafrumvarpinu er lýst stuttlega stefhunni í ríkisfj ármálum til lengri tíma en eins árs með framreikningum fyrir árin 2002-2004. Þar segir meðal annars: „Samkvæmt þessum útreikningum mun áframhaldandi aðhaldssöm stefna í ríkisfjármálum geta leitt til stórfelldrar lækkunar skulda á áranum 2002-2004. Það erþví raunhæftmarkmið aðpeninga- legar eignir ríkisins nemi hærri fjárhæð en skuldir, þ. e. að hrein skuldastaða verði neikvæð fyrir lok ársins 2004.“ Þetta er að mati höfundar skynsamleg stefnumörkun og væri æskilegt að útfæra hana nánar. Þar að baki þurfa að liggja áætlanir um útgjöld og tekjur eftir einstökum liðum og stefnumörkun um þátt hins opinbera í ráðstöfun þjóðar- teknanna. Ekki er síður mikilvægt að marka skýra stefnu um hlut ríkisins - og hins opinbera - í þjóðarbúskapnum og hafa þá í huga þau umhugsunarefni sem nefnd voru hér að framan. (Framhald af síðu 1) anum, American Express, Dow Jones, Wal-Mart, Kmart, Gap, Boeing, Intel, American Airlines, F ord og fleiri til. Þetta eru ólíkar hetjur frá árinu á undan þegar netfyrirtæki voru alls staðar efst á lista og Jeff Bezos, stofnandi Amazon.com, var maður ársins að mati tímaritsins Times. Amazon.com og nokkrir aðrir risar standa þó enn þó ólíklegt sé að þeir muni allir standa til frambúðar. Netið er ekki dáið þó að nýjabrumið sé farið af því. í nýlegri spá Forrester Research segir að sala á Netinu muni nema 8,6% af heildarsölu á vörum og þjónustu á heimsvísu árið 2004 og velta um 3.200 milljörðum Bandaríkjadala. Endirinn Leiknum er ekki lokið heldur hefur hann breyst. Árið 2000 hefur þrátt fyrir allt gertNetið að möguleika sem öll fýrirtæki horfa til. Bæði gömul og ný fýrirtæki gera sér grein fýrir því að Netið mun hafa veraleg áhrif á framtíðarmögu- leika þeirra. Þó að áhættuíjárfestar hafi dregið saman seglin að undanfomu er ekki þar með sagt að þeir séu sestir í helgan stein, þó margir eigi vissulega í erfið- leikum, því að samanborið við þriðja ársfjórðung ársins 1999 var virði fjár- mögnunarsamninga tvöfalt meira á þessu ári. Áherslurnar hafa hins vegar breyst og kröfurnar eru meiri. Vatnaskil hafa orðið í þróun Netsins í viðskiptum á þessu ári en Netið á eftir að hafa mikil áhrif þegar fram í sækir þó að heiminum verði ekki snúið á hvolf eins og margir virtust vera að spá í byrj un ársins. Aprílmánuður var þess vegna ekki upphafið á endinum heldur miklu frekar endirinn á upphafinu. í N ó að IKEA, Starbucks og Wal-Mart séu að mörgu leyti ólík íýrirtæki er margt keimlíkt með þeim. Eitt af því er árangursrík starfsmannastefna. Allt eru þetta fýrirtæki sem hafa náð alþjóðlegri útbreiðslu en engu að síður hefur þeim öllum tekist að halda vel í starfsfólk sitt. Þó ótrúlegt megi virðast þá era peningar ekki ástæðan. Þau hafa hins vegar öll gert starfsmenn sína að þátttakendum í fýrirtækjarekstrinum með því að auka skilning þeirra á rekstrinum, gefa þeim ábyrgð og eignartilfinningu.__________ í Vísbendingin ) ISBENDING Aðrir sálmar _____________________________________y ( 7 ' N Arðsemi og auðn Poul Nyrap Rasmussen, forsætisráð- herra Dana, flutti áhugavert erindi á fundi Dansk-íslenska verslunarráðsins. Þar sagði hann meðal annars að skattar á iýrirtækjum í Danmörku hlytu að lækka þar til þeir yrðu sambærilegir við það sem lægst gerðist annars staðar. Hann átti von á því að smám saman myndu skattar á hagnað fýrirtækja í Evrópu- ríkjum ná minnsta samnefnara. Annars myndu fýrirtækin hreinlega taka sig upp og færa sig til ríkja þar sem skattar væru lægstir. Hins vegar yrðu skattar á einstakl- inga áfram ákvörðun hvers lands um sig og greinilega engan bilbug á forsætisráðherranum danska að finna í því efni. Hann taldi ekki neina hættu á því að einstaklingarnir flýðu skatta- ánauðina. Þetta sýnir að þrátt fýrir frelsi einstaklinga til þess að vinna hvar sem er innan Evrópska efnahagssvæðisins eru flestir enn bundnir átthagafjötrum af ýmsum ástæðum. Þess vegna geta ríkisstjómir og sveitarfélög leyft sér að skattleggja þegnana hátt til þess að fjármagna óráðsíu vegna þess að það er erfitt að flýja álögumar. Hér á landi eru undantekningartilvik til um menn sem hafa svo litlar tekjur að þeir verða að fara til erlendra borga til þess að geta lifað af laununum. Flestir þrauka áfram hér heima. Svigrúm til þess að lækka skatta almennt er þó mjög mikið hér- lendis og ekki aðeins vegna tekju- afgangs ríkissjóðs. Ef svonefndur persónuafsláttur væri felldur niður væri hægt að lækka almenna skattprósentu mjög mikið. Persónuafslátturinn er í raun og veru aðeins styrkur ríkisins til atvinnulífsins sem getur þannig greitt lægri laun en ella. Eðlilegra væri að dreifa byrðum jafnt á alla þegna með flatri og lágri skattprósentu, en með henni ykist vinnuþrek og framleiðni. Það var einnig nýstárlegt fýrir Islending að heyra Nyrup segja frá því að danska ríkið væri að meta arðsemi ýmissa samgöngumannvirkja, t.d. brúar til Þýskalands. Hér á landi er á samatíma verið að huga að gangnagerð yfir í Héðinsfjörð, hrjóstrugan eyðifjörð. Ekki þarfflókna útreikningatil þess að reikna arðsemi þeirrar framkvæmdar. v________;________________________ ÁRitstjórn: Eyþór Ivar Jónsson ritstjóri ábyrgðarmaður og Benedikt Jóhannesson. Útgefandi: Talnakönnun hf., Borgartúni 23, 105 Reykjavik. Sími: 561-7575. Myndsendir: 561-8646. Netfang:visbending@talnakonnun.is. Málfarsráðgjöf: Málvísindastofnun Há- skólans. Prentun: Gutenberg. Upplag: 700 eintök. Öll réttindi áskilin. © Ritið má ekki afrita án leyfis útgefanda. 4

x

Vísbending

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.