Vísbending


Vísbending - 17.08.2001, Page 4

Vísbending - 17.08.2001, Page 4
(Framhald af síðu 3) sem telja að dollarinn geti áfram um langt skeið haldið verðgildi sínu? Auðveldara væri að taka slíkar „nýir-tímar-kenn- ingar“ alvarlega ef ekki einnig vildi svo til að þetta eru sömu röksemdir og hágengismenn héldu fram um miðjan níunda áratuginn rétt áður en dollarinn féll. Má ætla að veruleg lækkun a gengi dollarans hefði þegar á allt er lilið óhagstæð áhrif á heimsbúskapinn við núverandi aðstæður og horfur? Þetta er auðvitað margslungin spurning sem ekki vinnst tími ti 1 að svara hér til neinnar hlítar. En í því sambandi má rifja upp að flestir telja nú að gengislækkunin á seinni hluta níunda áratugarins hafi verið óhjákvæmileg og nauðsynlegur þáttur í því að koma á betra jafnvægi í alþjóðlegum efnahagsmálum og efla bandaríkst atvinnulíf. Krugman lýkur umræddri grein á sinn hátt: „Hafið ekki áhy ggjur af O 'Neill; mikið fall dollarans er í nánd og við ættum að fagna því.“ (Framhald af síðu 1) 42% minni árið 1998 en 1990. Einka- neyslan dróst þó minna saman, um 10%, vegna mikils niðurskurðar til hernaðar- mála. í Úkraínu varð þó 44% samdráttur á einkaneyslu. Virði fastafjármuna nam árið 1998 17,4% af virði þeirra í upphafi áratugarins. Miðstýring kommúnismans miðaði, að minnsta kosti að vissu leyti, að jafnri skiptingu auðs þar sem nauðsynjar voru niðurgreiddar og matur var frír í ríkis- fyrirtækjum. Eftir að kerfið var slitið úr sambandi lækkaði óðaverðbólga raun- laun mikið þannig að þrátt fyrir meira framboð og úrval varð leið almúgans ekki greið að gnægtaborði kapítal- ismans. Fátækt hafði verið lítil sem engin en varð almenn á tíunda áratugnum, jókst úr 1% af heildarfólksfjölda 1987- 88 í að meðaltali 29% árin 1993-95 í Eistlandi, Lettlandi og Litháen. I Rúss- landi jókst hún úr 2% í 50%, í 63% í tíkraínu, í 66% í Moldóvu og úr 12% í 88% í Kirgisistan á sama tíma. Til samanburðar breyttist þetta hlutfall úr 1,4% í 12% að meðaltali í Póllandi, Tékklandi, Ungverjalandi, Slóveníu og Slóvakíu. Þrjár meginástæður hafa verið nefndar fyrir því að fyrrum Sovétríkjum vegnaði mun verr en Austur-Evrópu- löndum á umbreytingatímabili tíunda áratugarins. I fyrsta lagi varð veik peninga- og efnahagsstefna til þess að óðaverðbólga gróf um sig. í öðru lagi var einkageirinn í höndum fámenns hóps sem auðgaðist hratt á meðan aðrir sátu eftir og spilling blómstraði vegna bágborinnar lagaumgjarðar. Og í þriðja lagi var ekki hreyft við landbúnaðar- geiranum sem hefur smám saman hrömað en framleiðslan var 42% minni árið 1998 en 1990. Að lokum má einnig nefna að stofnanaumgjörðin í Austur- Evrópu var mun sterkari en í fyrrum Sovétríkjunum og hefur það auðveldað mjög umskiptin þar. Framtíðin Fjármálakreppan sem skall áíTaílandi árið 1997 knésetti rússneska björn- inn ári síðar. Eftirað5 milljörðum Banda- ríkjadala af fjárframlagi Alþjóðagjald- eyrissjóðsins hafði verið eytt í að reyna að halda uppi gengi rúblunnar í nokkrar vikur hrundi það með braki og brestum. Erlent fjármagn hvarf eins og dögg fyrir sólu og rússneska ríkið gat engan veginn staðið við skuldbindingar sínar. Þá varð mörgum nóg boðið og afskrifuðu Rússland endanlega. Síðustu tvö ár hefur hins vegar birt nokkuð yfir og hagvöxtur var 5,4% árið 1999, 8,3% árið 2000 og áætlað er að hann geti orðið 4% á þessu ári en það eru sennilega efri mörk spárinnar. Að sama skapi sýna tölur frá Alþjóða- gjaldeyrissjóðnum að Sambandsríkin tólf, þ.e. fyrrum Sovétríkin að undan- skyldum Eistlandi, Lettlandi ogLilháen, skiluðu þegar á heildina er litið 2,7% hagvexti árið 1999 og 5,6% árið2000. Þá er áætlað að hagvöxtur þeirra geti orðið um 3,8% á þessu ári. Einkum tvennt hefur gert þetta að verkum, raunlækkun rúblunnar og mikil hækkun orkuverðs. Einnig má leiða líkum að því að umbætur síðasta áratugar séu að einhverju leyti farnar að skila sér. Það er þó of snemmt að fara fagnandi af stað því að ekki er ólíklegt að rúss- neska hagkerfið, rétt eins og flest öll fyrrum Sovétríkin, eigi enn eftir nokkra þrautagöngu áður en leiðin verður greið. Síðustu tíu árhafaleikiðþessi ríki grátt og margt hefði betur mátt fara í umbyltingunni. Það er þó allsendis óvíst að leiðin hefði orðið greiðari undir stjórn Gorbatsjovs. Það versta er yfirstaðið og bjartsýni gætir bæði innanlands og á meðal alþjóðastofnanna. Það sést í ljós fyrir enda ganganna. Heimildir: The World Economy - Á Millennial Perspeclive e. Angus Maddison (OECD, 2001), Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, Heimsbankinn og OECD. ( Vísbendingin ) f - \ Samkvæmt nýútkominni bók breska hagfræðingsins Angus Maddison, The World Economy - A Millennial Per- spective, hefur mannfjöldinn 22-faldast á sfðustu þúsund árum. Verg lands- framleiðsla hefur 300-faldast á sama tímabili og tekjur á mann hafa 13-faldast. Nær öll þessi tekjuaukning hefur orðið á síðustu 180 árum því írá 1000 til 1820 jukust tekjur einungis unt 50% umfram fólksfjölgun. Frá 1820hafatekjurámann aftur á móti áttfaldast. Á sama tíma hefur mannfjöldinn fimmfaldast.________ ISBENDING Aðrir sálmar V___________________________________/ - s Hausinn af essi orð drottningarinnar í Lísu í Undralandi glymja nú í eyrum þegar blóðþyrstir stjórnmálamenn reyna að gæða sér á skýrslu Ríkisendurskoðunar um mál Árna Johnsens. Það er greinilegt að Jóhanna Sigurðardóttir vill ná að gera sér mikinn mat úr litlu hráefni. Henni gremst mjög ef ekki fá fleiri hausar að fjúka en Árna. Framganga þeirra sem ætla sér að negla einhvern, einhvers staðar, (eða taka af lífi svo notað sé líkingamál Jóhönnu) er nánast brjóst- umkennanleg. Af atburðum undanfar- inna daga má ráða að Gísli Einarsson og Jóhanna telja að hlutverk ákærandans henti sér vel. Það er vafasamt að úr því hlutverki náist langtímaávinningur þó að fjölmiðlar sækist eftir blóðþyrstum stjórnmálamönnum enda er hasar gott sjónvarpsefni. Hvað er að axla ábyrgð? Eiga allir að segja af sér embættum, ef einhverjum í kringum þá verður eitth vað á? Er það ábyrgari afstaða en að vinna að því að koma í veg fyrir að slíkt gerist í framtíðinni? Mikil vægt er að rugla ekki saman ábyrgð og uppgjöf. Það er auðvitað skylda þeirra sem gæta fjár- muna skattgreiðenda að gæta þess, sem best þeir mega, að þeir séu ekki mis- notaðir. Formleg kerfi tefja auðvitað fyrir, t.d. er ekki arðbært til skemmri tíma litið að færa bókhald, en sá stjórnandi mun vandfundinn sem ekki sér hve mikilvægt stjórntæki bókhald getur verið (svo ekki sé talað um mikilvægi þess við eftirlit). Fundargerðir voru ekki færðar í byggingarnefnd Þjóðleikhúss- ins og margir kannast við að ekki er mjög algengt að fundargerðir séu not- aðareftirá. Þæreruþó mikilvæg staðfest- ing á því hverjir eru á fundum, hvað er rætt og hvaða ákvarðanir teknar. Það eru líkamörg dæmi um að menn sem vilja koma ábendingum á framfæri geti látið bóka athugasemdir í fundargerðir. Þær eru þá sönnunargagn um það sem sagt hefur verið. Þó er ekki hægt að láta líta svo úl að athugasemdir um eitt fjalli um eitthvað allt annað. Athugasemdir End- urbótasjóðs menningarbygginga fjöll- uðu t.d. um skort á áætlunum en ekki undarlega nefndarvinnu þar sem á fjöl- marga fundi í tveggja manna nefnd var í mesta lagi annar boðaður. - BJ V___________________________________/ ÓRitstjórn: Eyþór l'var Jónsson ritstjóri ogN ábyrgðarmaður og Benedikt Jóhannesson. Útgefandi: Heimur hf., Borgartúni 23, 105 Reykjavík. Sími: 512-7575. Myndsendir: 561-8646. Netfang: visbending@talnakonnun.is. Málfarsráðgjöf: Málvísindastofnun Há- skólans. Prentun: Gutenberg. Upplag: 700 eintök. Öll réttindi áskilin. © Ritið má ekki afrita án leyfis útgefanda. 4

x

Vísbending

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.