Vísbending


Vísbending - 29.03.2002, Page 1

Vísbending - 29.03.2002, Page 1
ISBENDING 29. mars 2002 13. tölublað V i k u r i t um viðskipti og efnahagsmál 20. árgangur Olíuáhrif Flest bendir til þess að bensínhækk- un núna um mánaðamótin muni gera limbó-dans aðila vinnumark- aðarins undir svokallað rautt strik í verð- lagsmálum erfiðan. Eftir 0,4% hækkun neysluverðsvísitölunnar, upp í 221,8 stig í mars, er svigrúmið lítið fyrir neðan strikið, sem sett var sem 222,5 stig, eða einungis 0,3% og tvær verðmælingar til baka. Vægi bensínverðs í neysluverðs- vísitölunni er 4,2% og þ.a.l. þarf það einungis að hækka um 7,5 krónur til þess að vísitalan hækki um 0,3%. Sú hækkun er þó ekki meiri en svo að bensínverð væri rúmlega einni krónu lægra (og rúm- lega 1 % lægra) en það var síðast þegar heimsmarkaðsverð á olíu fór upp í 25 Bandaríkjadollara á túnnu. En heims- markaðsverð á olíu hefur hækkað hratt frá því í nóvember þegar það var komið niður í 17 Bandaríkjadollara á tunnu. Enn sem áður hefur olía víða áhrif. Verðhækkun? vert á alla spádóma þá hefur olíuverð haldið áfram að hækka á þessu ári og mjög hratt að undanfömu. Nokkrir sam- verkandi þættir hafa ráðið þar mestu um. Horfur um að bandaríska hagkerfið, sem notar um ljórðung af allri olíu, sé búið að sigla öldudalinn og sé að rétta úr kútnum hafa ýtt undir aukna olíu- notkun. Opec-framleiðsluríkin drógu úr olíuframleiðsl u í janúar og á fundi sínum þann 15. mars síðastliðinn var ákveðið að halda þeirri framleiðslu, 21,7 milljón tunnum á dag, fram í júní þegar ríkin hittast næst. Hræðsluþátturinn hefur þó kannski vegið hvað mest í verðhækkunum und- anfarið þar sem stríðshótanir Banda- ríkjamanna gegn írökum (og írönum) hafa valdið óvissu á markaðinum. A síðustu tveimur vikum hefur olíuverðið hækkað um 3 Bandaríkjadollara eða 14% að stórum hluta vegna ótta við hernað í Mið-Austurlöndum. Svo virðist sem full áslæða sé til að hafa áhyggjur af þessum áhrifaþætti vegna þess að margt bendirtil að Bandaríkjamenn stefni leynt og ljóst að stríði við Iraka, t.d. kom það til tals í heimsókn forsætisráðherra Dan- merkur til Bandaríkjaforseta rétt fyrir páska. Það er ekki Ijóst hvað myndi gerast ef slíkt stríð yrði háð enda færi það verulega eftir því hversu lengi það myndi vara. Flestir eru þó minnugir þess að olíuverð hækkaði um 130%, úr 40 dollurum í 92 dollara, í byltingunni í íran árið 1979 og um sama hlutfall, úr 20 dollurum í 46 dollara, í Persaflóastríðinu árið 1990. írakarframleiðaum 10%afþeirriolíu sem Opec-ríkin dæla á markaðinn en þau framleiða samtals um þriðjung af heimsframleiðslunni. Arás á Irak hefði því vissulega skammtímaáhrif á verð á olíu þó einungis væri vegna samdráttar í framleiðslu. Einnig er hætt við að stríð í Mið-Austurlöndum gæti haft áhrif á olíuflutningafrá svæðinu, sem afturgæti haft veruleg áhrif á verðlag á olíu. Jafnvel þó að ekki komi til stríðsátaka er ólíklegt annað en að olíuverð haldist um og yfir 25 dollarar á tunnuna þangað til að Opec-ríkin auka framleiðslu sína á ný. Framboð ó að Opec-ríkin geti haft mikil áhrif á olíuverð þá leika ríki utan sam- takanna, Mexíkó, Noregur og Rússland, lykilhlutverk. Á síðustu mánuðum hefur samvinna Opec við Mexíkó og Noreg haft veruleg áhrif til hækkunar. Rússland hefur hins vegar leikið tveimur skjöldum og er „svikarinn“ í framleiðslusamráðinu sem hefur gert það að verkum að verð hefur hækkað minna en ella. Rússar gerðu samkomulag við Opec um að draga úr framleiðslu, sem þeir gerðu í opinbera geiranum en juku hana hins vegar í einkageiranum þannig að heildar- framleiðslan stóð í stað, sem vakti litla kátínu innan Opec. Það er erfitt að meta hvað Rússar munu gera á næstu mán- uðum en ef þeir draga einnig úr fram- leiðslu er hætt við að olíuverð stígi enn hraðar en það hefur gert að undanfömu. Rússnesk olía hefur reyndar alla tíð haft gífurleg áhrif á heimsmarkaðinum. Flestir hafa sennilega gleymt því að í upphafi olíubyltingarinnar undir lok nítjándu aldarinnarþegarolía(kerosene) var aðalljósgjafi heimsins þá var það olía frá Rússlandi sem „stöðvaði" heims- markaðsyfirráð bandaríska olíurisans Standard Oil. Alla tíð síðan hefur olía frá Rússlandi haft mikil áhrif á olíumark- aðinn þó að hún hafi sjaldan verið jafnmikilvæg og nú. Vonir standa líka til að mikilvægi Rússlands eigi eftir að aukast með skynsamlegri stýringu olíu- auðlindanna og með mögulegum nýjum olíuuppsprettum. Engu að síður eru áhrifin tiltölulega máttlítil í samanburði við tangarhald Opec-ríkjanna á olíumarkaðinum. Eitt- hvað um tvo þriðju hluta alls olíuforða heimsins er að finna í Opec-ríkjunum og það sem meira er þá á vægi þeirra eftir að aukast á komandi árum. Miðað við nú- verandi framleiðslu þá munu olíubirgðir utan Opec-ríkjanna endast í um 25 ár en olíubirgðir innan Opec-ríkjanna um 100 ár. Því er ekki ólíklegt að innan tíu til tuttugu ára komi hátt í 90% framleiðsl- unnar frá Opec-ríkjum. Þar er framleiðsl- an líka langódýrust. Allt frá því að Gaddafi Lýbíuleiðtogi byrjaði að þjóðnýta olíufyrirtækin í kjölfar valdarsánsins árið 1969 hefur olía verið þungaviktarþáttur í heimspólitík- inni. Mikilvægi Mið-Austurlanda sem aðalolíuframleiðanda heimsins hefur valdið vaxandi áhyggjum á Vestur- löndum, sérstaklega eftir hryðjuverkin 11. september og vegna sífelldrar ólgu. Það er hins vegar fátt um góð ráð þó að það sé ljóst sé að Vesturlönd verða að dreifa áhættunni með því að finna nýjar olíuuppsprettur og nýja orkugjafa. Hvorugt virðist hins vegar í augsýn. Sökudólgur rátt fyrir verðstýringu Opec þá er það framboð og eftirspurn sem ræð- ur mestu um verðmyndum á olíumark- aðinum eins og öðrum mörkuðum. Þó að margbúið sé að spá stöðugleika á þessum markaði er hætt við að það verði áfram skammt stórra högga á milli sem gerir hagkerfi heimsins viðkvæmara og getur jafnvel sett verðlagsmál úr skorð- um hér á íslandi. Og það er fátt annað að gera en að benda í austur. Olía hefur enn sem áður Hannes Hólmsteinn Giss- ^ GylfiMagnússonfjallarum æ fræðingur. FáirbjuggustviÁ I mikil áhrif á þróun efna- 1 urarsonfjallarumafhverju -2 frægasta hagfræðing sam- /| því að hann myndi vinna 1 hagsmála heimsins og hér íslendingar voru eitt sinn tímans sem er þó ekki hag- Nóbelsverðlaunin hvað þá á Islandi. fátæk þjóð. fræðingur heldur stærð- Óskarsverðlaunin! 1

x

Vísbending

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.