Vísbending


Vísbending - 25.04.2003, Qupperneq 2

Vísbending - 25.04.2003, Qupperneq 2
ISBENDING I stöðugri útþenslu Einhvern tírnann var það eitt af hinum „óvéfengjanlegu“ slagorð- um viðskiptabókmenntanna að einungis tvær leiðir væru færar fyrir- tækjum í viðskiptum: „Að vaxa eða deyja“. Slagorðið lifir enn góðu lífi en leiðirnar til vaxtar hafa reynst torfærari undanfarin misseri en oftast áður. Ahætta í rekstri fyrirtækja hefur aukist verulega og ávinningurinn af „síðasta skrefinu“ í útþenslunni virðist stöðugt faraminnkandi. Mörg stórfyrirtæki virð- astjafnvel komin aðendimörkum heims- ins. Sum hafa þegar farið fram af brúninni. Innri vöxtur yrirtæki hafa nokkra möguleika til útþenslu. Hægt er að greina á milli þessara möguleika með ýmsum hætti. Ein aðferð, og sú algengasta, er að gera greinarmun á innri og ytri vexti. Innri vöxtur eða „náttúrulegur" vöxtur er út- þensla sem byggist á möguleikum fyrir- tækis til þess að fá nýja viðskiptavini eða fá meira út úr þeim viðskiptavinum sem það þegar hefur. Þrjár meginleiðir eru mögulegar í þeim efnurn: a) að fá viðskiptavini til þess að versla oftar, b) að fá þá til þess að versla fyrir meira í hvert sinn og c) að fá þá til þess að greiða meira fyrir „gæðin“. Þessar þrjár leiðir verða ekki til þess að fjölga við- skiptavinum heldur fæst meira út úr hverjum þeirra þannig að velta fyrir- tækisinseykst. Eftil vill ættiþófrekarað kalla þetta lífæð fyrirtækisins en út- þensluleið. Ef fyrirtæki ætlar að halda í viðskipta- vini getur það þurft að bjóða nýjar vörur og þjónustu reglulega sem getur einnig verið leið til þess að fá nýja viðskiptavini. „Nýsköpun" var orð tíunda áratugarins þar sem eina rétta leiðin til lífs og vaxtar var að finna upp nýjar vörur og þjón- ustu. Fyrirtæki eins og 3M og Virgin urðu fyrirmyndarfyrirtækin en stöðugt urðu þar til nýjar vöru- og viðskipta- hugmyndir. Nýtt vöruframboð á tíunda áratuginum margfaldaðist. I rannsókn sem gerð var á nýjunt neysluvörum í Bandaríkjunumárin 1980 og 1998 kom í ljós að 2.112 nýjar matvörutegundir voru kynntartil sögunnarárið 1980en 10.803 vörutegundirárið 1998,393 nýjardrykkj- arvörutegundir komu inn á markaðinn árið 1980 en 2.944 árið 1998 og 1.294 nýjar heilsu- og snyrtivörutegundir komu inn á markaðinn árið 1980 en 9,509 árið 1998. Flestar þessar vörunýjungar eru ekki beint nýjungar heldur miklu frekar ný útfærsla á vörum sem þegar eru til. Þærfullnægjaekki nýrri þörf, eru einungis nýir valkostir. Ef nýjar vörur fullnægja nýrri þörf verður salan gífur- leg en verulega dregur úr sölunni ef margar vörutegundir fullnægja þeirri sömu þörf. Sérhæfingin eykst því stöð- ugt og markaður hverrar vöru verður minni. Fyrirtæki sem ekki hyggjastbjóða nýjar vörur og þjónustu geta vart lifað á samkeppnismarkaði, þó að þau geti vel þrifist á einokunar- eða fákeppnis- markaði, án þess stöðugt að bæta fram- boð sitt þar sem samkeppnisaðilarnir eru yfirleitt fljótir til þess að apa eftir. Nýirmarkaðir Einfaldasta leiðin til þess að finna nýja viðskiptavini er að fara inn á nýja markaði. Þegar vöruframboðið er nýtt snýst leikurinn að mestu leyti urn að ná eins mikilli dreifingu og mögulegt er. Fá fyrirtæki hafa spilað þennan leik betur en Coca Cola, McDonalds, Wal- Marl og nú síðast kaffikeðjan Starbucks. Starbucks herjar á hverja borg fyrir sig og er byrjað á því að koma fyrir kal'fi- börum þar sem umferð gangandi veg- farenda er hvað mest en smárn saman er fyllt upp í eyðurnar í borgarskipulaginu til þess að tryggja að eins lítið ráðrúm sé fyrir samkeppnisaðilana og mögulegt er. Hjá McDonalds var útþenslustefnan einfaldlega besta viðskiptamódelið vegna sérleyfisfyrirkomulags og fast- eignastefnu fyrirtækisins (sjá 15. tbl.). Þó verður að greina á rnilli útþenslu fyrir- tækis innanlands og erlendrar útrásar þess. Eðlilegt þykir að fyrirtæki reyni að dreifa framboði sínu á öllum heima- markaðinum en að fara á erlenda markaði hefur jafnan þótt stærra stökk. Sú stökk- fjarlægð er þó alltaf að styttast. Á móti kemur að heldur hefur dregið úr vaxt- armöguleikunum. McDonalds virðist verakomið að endimörkum í alþjóðlegum vexti, þó að enn sé hægt að benda á óunna markaði, þar sem ný stefnumótun fyrirtækisins byggir á að draga úr út- þenslunni. Bandarísk stórfyrirtæki vaxa ekki jafnhratt nú og var í byrjun tíunda áratugarins.Til dæmismánefnaað vöxt- ur General Electric á erlendum mörkuðum var um 22% frá 1992 til 1996 en 16%frá 1996 til 2000, vöxtur Hewlett Packard var23% frá 1992 til 1996 en 6% frá 1996 lil 2000 og vöxtur Motorola var 25% frá 1992 til 1996 en 13% frá 1996 til 2000. Ástæðan er að mestu leyti sú að alþjóð- leg samkeppni hefur aukist gríðarlega, ekki einungis að alþjóðleg fyrirtæki fari inn á sömu markaðina heldur eru heima- fyrirtækin einnig betur í stakk búin en áður til þess að takast á við erlenda samkeppni. Fyrirtæki eru einnig miklu fljótari til að læraen áður. Þessi útþenslu- leið er því kannski ekki eins fýsileg og hún var eitt sinn. Fyrirtæki á smáum markaði eins og þeirn íslenska eiga þó fárra annarra kosta völ. Ytri vöxtur meðan innri vöxtur snýst um að eyna „að gera hlutina sjálfur“ þá snýst ytri vöxtur um að reyna að stytta sér leið með því að nýta sér hæfileika annarra. Þetta er annars vegar gert með einhvers konar samstarfi þar sem kostn- aðinum og ávinningnum er skipt á milli aðila eða með yfirtökum og sameining- um. Samstarfshugmyndafræðin var mjög vinsæl á fyrri hluta tíunda áratug- arins en sameiningar og yfirtökur hafa verið ær og kýr útþenslustefnu fyrir- tækja frá því á seinni hluta tíunda áratug- arins. Frá árinu 1995 hækkaði heildar- virði á sameiningum og yfirtökum úr 400 milljörðum bandaríkjadalaí rúmlega 1.400milljarðaárið 1999. Síðanþáhefur verulega dregið úr stórum sameiningum og yfirtökum en heildarvirði slíkra samn- ingaíBandaríkjunumvarum700milljarð- ar bandaríkjadala árið 2001. Sameiningar eru ýmist til þess að fá stærri markaðs- hlutdeild eða til þess að komast inn á nýja markaði. Hér á landi hefur t.d. mátt sjá miklar sameiningar í bankageiranum þar sem Fjárfestingabanki atvinnulífs- ins og Islandsbanki sameinuðust og nú síðast Kaupþing og Búnaðarbanki. Svipaða sögu má segja af sjávarútvegs- ge i ran u nt og hj á ly fj afy rirtækj um. B akka- vör og Össur hafa einnig beitt uppkaup- um og sameiningum til þess að ná frekari fótfestu á erlendum mörkuðunt með, að því er virðist, góðum árangri. Þessi leið er þó ekki alltaf, reyndar sjaldnast, eins árangursrík og hún lítur út fyrir að vera á teikniborðinu en er hins vegar vinsæl söluvara banka og fjárfestingarfyrir- tækja. Aftur á móti felst nokkurt tækifæri í því fyrir íslensk fyrirtæki að hlutabréfa- markaðurinn hefur haldið haus á íslandi en skrapar nú botninn víðast hvar annars staðar í Evrópu. Einaleiðin Afyrstu æviárum fyrirtækis verður vöxtur að vera eitt af meginmark- miðum þess til þess að það geti skapað sér rekstrargrundvöll. Vöxtur hlýtur einnig að verða eitt af aðalmarkmiðum hvers fyrirtækis þó að það þurfi ekki að verameginmarkmiðið. títþenslanerhins vegar dæmd til þess að verða erfiðari á komandi árum en hún hefur verið hingað til. En ef ofangreindar leiðir eru skil- greindar sem útþensluleiðir fyrirtækis er ljóst að fyrirtæki getur ekki lifað lengi án þess að ná góðum tökum á einhverri þeirra. Þá er útþensla eina leiðin. 2

x

Vísbending

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.