Vísbending


Vísbending - 20.08.2004, Qupperneq 1

Vísbending - 20.08.2004, Qupperneq 1
V Viku ISBENDING rit um viðskipti og efnahagsmál 20. ágúst 2004 34. tölublað 22. árgangur Heimsmótorinn hikstar Forsetakosningarnar í Bandaríkj- unum hafa, þótt undarlegt megi virðast, dregið athyglina frá hin- unt raunverulegu vandamálum þjóðfél- agsins. Staða og stefna hagkerfisins er eitt þeirra. Bandaríkin eru svo mikilvæg heimshagkerfinu að ekkert sem þar ger- ist getur talist einkamál Bandaríkja- manna. Vandamál þar verða vandamál heimsins, hvort sem mönnum líkar það betur eða verr. Mótorinn ú, þegar slagurinn í kringum for- setakosningarnar nálgast suðu- punkt, er varla hægt að finna áreiðanleg gögn eða umfjöllun um bandaríska hag- kerfið. Ef menn eru jákvæðir þá eru þeir örugglega repúblikanar og demókratar ef þeir eru neikvæðir. Hlutlaust mat finnst varla enda er þjóðin klofin í herðar niður og spunameistararnir í fullu starfi. Laglínan virtist þó nokkuð skýr; eftir niðursveiflu sem náði kreppuskilgrein- ingunni hefur bandaríska hagkerfið verið að taka við sér síðastliðið ár, hagvöxturáþriðjaársfjórðungi 2003 var 8%, minni á þeim fjórða, en samt 4%, og 4,5% á fyrsta ársfjórðungi þessa árs, en „einungis“ 3% á öðrum ársfjórðungi. Þetta er talsvert lægra en 4,5-4,7% hag- vöxturinn sem bandaríski seðlabankinn spáði á þessu ári sem þýðir að hagvöxt- urinn þarf að verða 5,25% það sem eftir er ársins. Engu að síður er það ekki minni hag- vöxtur en ætlað var sem veldur áhyggj- um, sérstaklega í kosningaslagnum, heldurfjöldi starfa íþjóðfélaginu. I apríl síðastliðnum var blásið á svartsýni hinnar „atvinnulausu uppsveiflu" (sjá 12. tbl. 2004) þegar í Ijós kom að rúmlega 300 þúsund störf urðu til í marsmánuði og þegar ljóst varð að niðurstöður yrðu svipaðar í apríl var veislan komin á fullt skrið. Tölur í júní skyggðu hins vegar á gleðina enda voru innan við 100 þúsund störf sköpuð en þá var álitið að það væri einungis tímabundið bakslag tengt þessum eina mánuði og var því almennt spáð að 200 þúsund störf yrðu til í júlí. Markaðurinn fékk því ákveðið tauga- áfall þegar einungis 32 þúsund ný störf komu upp úr hattinum. Þó að spunasér- fræðingar Hvíta hússins hafi séð björtu hliðarnar þá varð sú staðreynd vatn á ntyllu demókrata sem hafa bent á að Bush sé fyrsti forsetinn síðan Herbert Hoover mætti til endurkjörs árið 1932 sem hefur með sér færri störf í hagkerf- inu í lok kjörtímabils en í upphafi þess. Hins vegar er erfitt að meta hvort þetta er merki um að uppsveifla bandaríska hagkerfisins sé að missa móðinn. Alan Greenspan hefur litlar áhyggjur og hefur ítrekað sagt að þetta sé einungis stutt hlé á blússandi uppsveiflu. Aftur á móti hafa bandarískir neytendur slak- að á eyðsluæðinu og dróst neysla saman um 0,7% í júní, samkvæmt könnun há- skólans í Michigan. Slæmt atvinnu- ástand getur haft áhrif á eyðsluna þegar bjartsýnina þrýtur. Eftir allt þá eru það bandarískir neytendur sem hafa lyft hagkerfinu með einbeittri eyðslu og skuldasöfnun, sem er komin í 115% af ráðstöfunartekjum, síðustu misserin. Án þeirra vantar olíuna á eldinn. Olía og sprengjuhætta Eyðsla neytenda er olían sem knýr bandaríska mótorinn áfram. Aftur á móti gæti það verið hin eiginlega olía og verð hennar sem setur strik í reikninginn. Um miðjan ágústmánuð var verð á hráolíu á góðri leið með að fara yfir 50 dollara markið og líkurnar með frekar en á móti að olíuverð geti hækkað enn meira. Þetta eru mikil viðbrigði þegar olíuverð hefur að jafnaði verið um 30 dollarar frá aldamótum og var komið langleiðina niður í 10 dollaraí lok tíunda áratugarins. Þrátt fyrir að hækkandi olíu- verð sé ekki sarni ógnvaldurinn fyrir heimshagkerfið og áður þá hefur niður- sveifla yfirleitt fylgt í kjölfar olíuhækk- ana. Olíuverð umfram 50 dollara myndi jafnast á við hækkunarhrinuna árið 1990 sem leiddi til niðursveiflu um heim allan (sjá einnig 21. tbl. 2004). Svo hátt verð í einhvern tíma myndi án vafa skera tals- vert af hagvaxtarspá bandaríska seðla- bankans, hugsanlega jafna hana við jörðu ef tekið er með í reikninginn að áhrifin stigmagnast með hærra olíu- verði. Hugsanlega má að einhverju leyti rekja minni eyðslu almennings til olíu- verðhækkana þó að það skjóti skökku við í samanburði við Evrópu og Asíu þar sem almenningur er að auka eyðslu frekar en að draga úr henni. En hækkandi olíuverð hefur ýtt undir verðbólgu, um 4,9%, og vaxtahækkanir en bandaríski seðlabankinn hækkaði vexti um 0,25 stig hinn 10. ágúst síðastliðinn, í annað sinn á þessu ári, í 1,5%. Það er þó langt innan einhverra hættumarka en áframhaldandi hækkun verðbólgu og svo vaxta þegar atvinnusköpun lætur á sér standa gæti haft veruleg áhrif á uppsveifluna. Þrátt fyrir að olían sé eldfim þá er lítil sprengjuhætta af verðþróun olíu. Fjár- lagahallinn er hins vegar tímasprengjan í bandarískahagkerfinu (sjá 6. tbl. 2004) en hann er um 5% af vergri landsfram- leiðslu. Hallinn er að vissu leyti afleiðing þess að hagkerfinu var ekki leyft að lenda heldur knúið í uppsveiflu með aukinni opinberri eyðslu og skattalækk- unum. Það er líka fátt sem bendir til þess að það verði tekið á vandanum þegar forsetaframbjóðendur hætta sér ekki út á þá braut að ræða hallann. Allar líkur eru á að hallinn eigi eftir að halda áfram að aukast og eins skuldasöfnunin. Martin Wolf, dálkahöfundur Financial Times, orðaði það svo að Bandaríkin væru á „hæglætis róli til hruns“. V axandi halli og skuldasöfnun getur ekki endað öðruvísi en illa, skellurinn verður þeim mun alvarlegri því lengur sem vanda- málið fær að vinda upp á sig. Hikstinn eimshagkerfið hefur gengið inn í tímabil hækkandi vaxta (sjá 17. tbl. 2004) þar sent verðbólgan læðist á ný. Hagvaxtarhorfur virðast hins vegar góðar. Olía getur þó sett strik í reikning- inn en einnig felst hættan í því að banda- ríska hagkerfið fari að slaka á eftir að hafa verið drifkraftur heimshagkerfisins. Allar líkur eru á því að allt heimshagkerfið hiksti ef gangtruflanir verða í mótor bandaríska hagkerfisins. Heimildir: Economist, Financial Times og Bureau of Economic Analysis. 1 Menn hafa nú áhyggjur af því að bandaríska upp- sveiflan sé eitthvað að missa móðinn. 2 Guðmundur Magnússon fjallar um íslenskan hag- vöxt, tilurð hans og þróun. Sjávarútvegurinn er ekki 3 lengur vaxtarbroddurinn. Þelta er önnur grein Guð- mundar í greinaflokki um ísland og umheiminn. 4 Sum skref í lífshlaupi fyrir- tækja og fólks eru svo afdrifaríkaðförinni verður ekki aftur snúið.

x

Vísbending

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.