Vísbending


Vísbending - 20.08.2004, Síða 2

Vísbending - 20.08.2004, Síða 2
ISBENDING Guðmundur Magnússon hagfræðingur Igrein minni um lífskjaraklifur kom fram að ísland er meðal þeirra tíu þjóða sem við mesta hagsæld búa í heiminum. Það er ekki úr vegi að íhuga hverjar eru helstu skýringar á þessum góðu lífskjörum. Hagvöxtur verður til með framlagi ótal einstaklinga sem vinna einir sér, í fyrirtækjum eða stofnunum, eða láta peningana vinna fyrir sig. Framfara- brautin liggur ekki beint upp á við, oft eru tálmar á leiðinni og krókur að keldu. En með uppsafnaðri reynslu og þekk- ingu er haldið áfram veginn og klifrað upp á við. I slóðinni má rekja spor frum- kvöðla og hugvitsmanna, leiðsögu- manna og verkmanna. Þótt fjallgangan lúti nokkrum almennum lögmálum er erfitt að gefa út nákvæman vegvísi fyrir þá sem ætla að klífa önnur fjöll. Þess vegna er svo erfitt að gefa öðrum for- skrift að framförum. Ýmislegt hefur þó verið prófað í þeim efnum, og það með skelfilegum afleiðingum, eins og marx- ismi, maóismi og haftabúskapur. En markaðshagkerfið hefur reynst farsæl- ast þótt það sé ekki gallalaust. Skýringar / Afram veginn Tafla 1. Hlutfallslegur vöxtur vergrar landsframleiðslu frá 1970 til 2000 Island Irland Lúxemborg Veldisvöxtur 1970- 1980 6,1 4,6 2,6 1980- 1990 2,7 3,6 4,8 1990-2000 2,6 7,0 5,4 Meðalvöxtur 1970- 1980 6,4 4,8 2,7 1980- 1990 2,8 3,7 5,0 1990-2000 2,7 7,3 5,5 Þær skýringar sem hæst ber á framför- um á íslandi eru framleiðni í fisk- veiðum, vinnusemi, orkubúskapur, frelsi í viðskiptum, alþjóðleg verkaskipt- ing, tækni og hugvit. Fiskurer enn helsta útflutningsvaran. Rannsóknir sýna að hagvöxtur hefur ekki verið mestur hjá þeim þjóðum sem eru ríkastar að nátt- úruauðlindum. Þetta er sennilega eink- um vegna þess að þær þjóðir flytja auð- lindirnar mestmegnis út óunnar. Enda má sjá þess glögg merki að velmegun hér á landi hefur vaxið eftir því sem hærra verð fæst fyrir fiskinn, hvort sem hann er fluttur nýr á markað eða sem fullunnin afurð. Jafnframt hefur verið þróaður hátæknibúnaður fyrir sjávarútveg sem hefur verið seldur á alþjóðlegum markaði. Nýtingu orku til útflutnings má einnig skýra með hlutfallslegum yfir- burðum okkar til þess. Vöxturinn hefur verið skrykkjóttur af ýmsum kunnum ástæðum. En eins og hjá öðrum velmegunar- þjóðum eru það þjónustugreinar sem hafa vaxið hraðar en frumvinnslu- og úrvinnslugreinar; verslun og viðskipti, fjármálastarfsemi, flutningar og fjar- skipti, ferðaþjónusta og hugbúnaður, menntun og heilsugæsla, veitingarekst- ur og tómstundaiðja og þannig mætti lengi telja. Staðtölur En hvað segja tölur um hagvöxt, fram- leiðni og framlag einstakra atvinnu- greina til landsframleiðslunnar? Á 1. mynd má sjá upphæð lands- framleiðslu Islendinga á föstu verðlagi og í jafnvirðisgildum 1970-2002. Mynd- in segir reyndar lítið ein og sér. Á 2. mynd er landsframleiðsla Islendinga sýnd í afstöðu til nokkurra annarra landa. Vegna þess að um fjárhæðir er að ræða en ekki breytingar milli ára fer lítið fyrir Islandi. Við sjáum þó glöggt hvernig halli línanna eykst í lokin hjá öllum þjóðunum og hvernig Irland tekur fram úr Islandi síðustu árin. Hagvaxtartímabil Lítum yfir farinn veg. Samkvæmt töl- unum í I. töflu var hagvöxtur meiri á íslandi 1970-1980 en næstu tvo áratugi þar á eftir. Þessu er öfugt farið hjá írum og Lúxemborgurum - og reyndar fleiri OECD-ríkjum þótt það sé ekki tilgreint í töflunni. Þetta vekur upp ýmsar spurn- ingar sem einungis er unnt að svara með rannsóknum. Ég get þó ekki staðist freistinguna að setja hér fram nokkrar hugleiðingar. Þrátt fyrir olíuskellina og verðbólguna á 8. áratugnum tókst að halda framleiðslunni gangandi. Fiskafli Mynd 1. iMndsframleiðsla á íslandi frá 1970 til 2004 Mynd 2. Landsframleiðsla í nokkrum viðmiðunarlöndum frá 1970 til 2004 - DANMORK - FINNLAND -ÍSLAND LÚXEMBORG -NOREGUR - ÍRLAND 2

x

Vísbending

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.