Vísbending


Vísbending - 24.09.2004, Qupperneq 4

Vísbending - 24.09.2004, Qupperneq 4
ISBENDING Leikur að læra Aðrir sálmar Ein af hinum undarlegu þversögn- um samtímans er að fólk notar sömu aðferðirnar til að læra og áður þótt upplýsingaflæðið aukist stöð- ugt og þörfin fyrir þekkingu verði sífellt meiri. Stærðfræðinemar sem glíma við Calculus í dag gera það á sama hátt og stærðfræðinemar fyrir hundrað árum. Áherslurnar hafa að vísu breyst og tæknin gerir alla útreikninga auðveldari en það er ekki hægt að halda því fram að stúdentar í dag hafi meiri skilning á því sem þeir eru að gera en stúdentar fyrir hundrað árum. Stundum virðist eins og fæstir kunni rökfræði og að draga álykt- anir eins og Sókrates kenndi. Það eina sem virðist hafa gerst er að tíminn á skólabekknum er stöðugt að lengjast og símenntun virðist snúast meira um sífellda upprifjun en uppbyggingu þekkingar. Hverniglærirþú? Ymsar kenningar hafa komið fram á síðustu áratugum um hvernig best er að kenna og læra en þær virðist hafa haft takmörkuð áhrif á skólakerfið enn sem komið er. Ein slík er kenning Gard- ners um margþátta greind (e. multiple intelligences) sem segir að greind eða hæfni skiptist í nokkur form sem fólk hefur til að bera í mismiklu mæli. Gardner hefur sett fram hugmynd um að til séu sjö slík form, þ.e. mál-, tón-, rök-, rúm-, hreyfi-, dóm- og félagsgreind. Vegna þess að fólk hefur þessi greindarform í mismiklum mæli þá eiga flestir auð- veldara með því að læra með einni aðferð en annarri. Peter Drucker, hinn aldni stjórnunargúrú, virðist hafa komist að svipaðri niðurstöðu. í bókinni Manage- ment Challenges for the 21s' Century segir hann frá því að hvernig mörgum snjöllum rithöfundum gekk afleitlega í skóla. „Skýringin er að fyrsta flokks rithöfundar læra yfirleitt ekki með því hlusta og lesa. Þeir læra af því að skrifa.“ Drucker hefur nokkuð til síns máls enda lítur hann á sjálfan sig í þessu ljósi. Hann heldur því jafnframt fram að fólk eigi að gera sér grein fyrir því hvernig það lærir og það eigi að nýta þá þekk- ingu. Hann segir: „I raun má segja að af öllum mikilvægustu þáttum sjálfsþekk- ingar sé auðveldast að tileinka sér þessa. Þegar ég spyr fólk „Hvernig lærir þú?“ veit flest fólk það mætavel. En þegar ég spyr „Nýtir þú þér þessa þekkingu?“ eru fáir sem gera það. Samt sem áður er þessi þekking lykillinn að árangri — eða öllu heldur dæmir fólk sjálft sig til árangursleysis ef það nýtir þessa þekk- inguekki.“SjálfurbýrDruckeryfirmeiri þekkingu á rekstri fyrirtækja en nokkur annar og hefur allt fram á tíræðisaldurinn verið fremsti viðskiptaritrithöfundur heimsins. Hann talar því af eigin reynslu og það er ýmislegt sem bendir til að hann hafi rétt fyrir sér. Líklegt er að fólk ætti auðveldara með að byggja upp þekkingu og ná árangri ef það vissi hvernig það ætti að læra og myndi nota þær aðferðir sem henta því best. Þá væri leikur að læra. ✓ Ihlaupahjólinu Fyrirtæki verða einnig að læra. Þau gera það í gegnum starfsmenn sína og menningu fyrirtækisins. Flest fyrir- tæki virðast hins vegar eiga í sömu erfið- leikum og mannfólkið, þ.e. að vera í stöðugri upprifjun frekar en uppbygg- ingu og læra með aðferðum sem bera engan árangur. Þau eru stundum eins og naggrísinn í hlaupahjólinu, alltaf á fullri ferð en komast ekkert áfram. Oft hafa þau ekki einu sinni hugmynd um hvert er markmiðið með rekstrinum. Gamli góði Sókrates gæti þá verið hjálp- legur. Umfram allt verða þó fyrirtæki, eins og fólk, að læra hvernig þau eiga að læra. Ut á það gengur leikurinn. (Framhald af síðu 3) viðskiptaráðherra frá nefnd sem skipuð vartil að fjallaum þetta efni. Hins vegar stendur fyrir dyrum að innleiða fjöl- margartilskipanirESB umfjármálamark- aðinn á næstu misserum. f þjóðmála- umræðunni í aðdraganda þessara mála virðist viðskiptalífið eiga undir högg að sækja. Hugarfarið á mörgum bæjum virðist vera á þá lund að festa eigi í lög þrengra umhverfi en ástæða er til — og jafnvel þrengra en annars staðar er að finna. Varað er við þessunt viðhorfum hér og hvatt til þess að leitað verði hag- kvæmra lausna á þeim viðfangsefnum sem blasa við í anda þess hugarfars sem kom íslandi í fremstu röð á sviði efna- hagsmála í heiminum á síðustu fimmtán árum. Vfsbendingin Arið 1967 skrifaði Eisenhower, forseti Bandaríkjanna, grein þarsem hann sagði frá því að Marvin Bower, fram- kvæmdastjóri McKinsey & Co., hefði gefið honum gott ráð varðandi leiðtoga- hæfni en Eisenhower bar mikla virðingu fyrir Bower. Ráðið vareitthvað á þá leið að maður „ætti alltaf að taka starf sitt alvarlega en aldrei sjálfan sig.“ Þetta eru umhugsunarverð orð því að stund- um virðist sem svo að þessu sé þveröf- ugt farið, fólk taki sjálft sig allt of alvar- Uega en alls ekki starf sitt. Gefur á bátinn Það var góð ákvörðun hjá Brimi og skipverjum á Sólbaki að gera sjálf- stæða samninga við sjómenn. Árum saman hafa samningar við þá verið því marki brenndir að þó að tækninýjungar geri það að verkum að hægt sé aðfækka í áhöfn þá hefur það ekki borgað sig vegna þess að viðþótarhlutur hvers um sig hækkar svo mikið að launaspamaður erenginn. Samningarnirhjá Brimi ganga fyrst og fremst út á það að hægt sé að fullnýta fjárfestinguna. Skipverjar njóta hluta ábatans en ekki alls. Fyrir nokkrum áratugum kom fram ný tækni í prentun. Gamla aðferðin, þar sem blöð og bækur voru sett upp á blýplötur, var niiklu mannfrekari en sú nýja sem byggði á töl vu- og Ijósmyndatækni. Víða um lönd gengu prentarar berserksgang og brutu hinarnýju vélarsem„rænduþástörfum.“ Hér á landi tókst þó að afstýra slíku. Utgefendur og prentarar tóku höndum saman um að innleiða hina nýju tækni. Til eru eldri sögur af því þegar vefstólar voru brotnir í spunaverksmiðjum. Auð- vitað vildi enginn snúa til baka núna en svona er þetta því miður oft að verka- lýðurinn og einkum forysta hans stend- ur gegn hagræðingu. Vonandi verður þetta frumkvæði eigenda Brims og skipverja á Sólbaki til þess að verkalýðs- forystan fæst til þess að ræða þessi mál sem fleyta íslenskri útgerð og sjómanna- stétt inn í nýja öld. Mannsæmandi laun Kennarar eru í verkfalli. Þeir hafa greinilega ekki ráðið sér góða almannatengslastofu. Þegar foreldrar vilja koma börnum sínum í gæslu og fyrirtæki hlaupa undir bagga heyrast háværar raddir um verkfallsbrot. Kenn- arar meina nemendum að sækja bækur í skólana. Hvort tveggja lýsir ntiklu vanmati á eigin ágæti. Frá sjónarhóli leikmanns virðist sjónarmið kennaranna það að þeir séu fyrst og fremst gæslu- menn barnanna og hætta sé á því að börnin læri sjálf af bókunum, sem vænt- anlega minnkar þá þörfina á kennurum. Engin ástæða er til þess að gera lítið úr kennurum. Störf þeiiTa eru mikilvæg og menn eiga að bera virðingu fyrir þeim. Líka kennarar sjálfir. - bj flitstjóri og ábyrgðarmaður: Eyþór ívar Jónsson. Útgefandi: Heimur hf., Borgartúni 23, 105 Reykjavík. Sími: 512-7575. Myndsendir: 561-8646. Netfang: visbending@talnakonnun.is. Málfarsráðgjöf: Málvísindastofnun Há- skólans. Prentun: Gutenberg. Upplag: 700 eintök. Öll réttindi áskilin. © Ritið má ekki afrita án leyfis útgefanda. 4

x

Vísbending

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.