Vísbending - 15.10.2004, Side 4
(Framhald af síðu 2)
og krossalistar hafa verið útbúnir til þess
að tryggja að stjórnir séu einnig að leita
í ljósinu. Og það sem meira er, stjórnir
fyrirtækja eru að verða að sérstakri
stofnun í þeim með eigin starfsmenn,
starfsemi og markmið, óteljandi nefndir
og reglugerðir.
Allt snýst þetta um siðferði, segja
menn, en það er erfitt að kenna siðferði
og þegar níutíu til hundrað prósent af
námsefni verðandi stjórnenda snýst um
að ná hámarkshagnaði en einungis brot
af námsefninu fjallar um siðfræði og þá
er ekkert erfitt að ímynda sér hver út-
koman verður.
íkastljósinu
Sögu de Bonos um hinn drukkna
raunsæismann er hægt að yfirfæra á
margt sem fólk gerir daglega ódrukkið.
Ein hlið sögunnar er hins vegar kannski
(Framhald af síðu 3)
dreifa áhættunni með því að fjárfesta í
annars konar starfsemi.
Avinningur
Það er til lítils að bæta áhættustýringu
ef ekkert hefst upp úr krafsinu. Góð
áhættustjórnun er einkum talin skila
eftirfarandi1:
- betri áætlunum um greiðslustreymi
- lægri fjármagnskostnaði
- ntinni hættu á yfirtöku
- minni óvissu um sölu og starfsmanna-
hald
- minni reiðufjáráhættu
Fyrirhvern?
Þ
að eru fjölmargir sem ættu að láta sig
áhæltustjórnunvarðaífyrirtæki,t.d.:
- hluthafar
- lánardrottnar
- starfsmenn
- birgjar
- viðskiptavinir
- stjórnvöld
- stjórnendur
Hagstjórn
Þótt markaðurinn ráði að mestu ferð-
inni geta aðgerðir stjómvalda skipt
talsverðu máli fyrir áhættustýringu í
þjóðfélaginu og afkomu fyrirtækja.
Hagstjórn er ekkert annað en heildar-
áhættustýring þjóðfélagsins. Það er
stutt síðan við bjuggum við miðstýringu
á flestum sviðum. Oft fólst hún samt í
því að leiðrétta afstöðuna milli innlends
og erlends verðlags til samræmis við
það sem gerst hafði á markaði fremur en
að tekið væri frumkvæði að bæta leik-
reglur í heimi viðskiptanna. En nú er
ISBENDING
einmitt siðfræðilegs eðlis, að hinn
drukkni virðist ætla að setjast undir stýri
þó að hann sé svo valtur að hann þurfi
að halda sér í staurinn. Það er kannski
af því að hann er undir ljósinu að þetta
verður opinbert.
Þó að það sé kannski örlítill snún-
ingur út úr sögu de Bonos er það einmitt
besti mælikvarðinn á siðferði hvort að
hlutirnir þoli dagsljósið. Ef ekki þá er
spurning hvort menn ættu ekki að hugsa
sig tvisvar um. Ljósið gerir þannig mál
opinber.
Eins er framlag Mintzbergs til um-
ræðunnar um viðskiptaháskólana mikil-
vægt þar sem það dregur hana fram í
dagsljósið en hún hefur allt of lengi
verið látin kyrr liggja. Að vissu leyti er
hann kannski ósanngjarn gagnvart há-
skólunum en gagnrýnin er engu að síður
réttmæt og mikilvæg fyrir frekari fram-
þróun viðskiptamenntunar bæði hér á
landi og erlendis.
öldin önnur og markaðurinn hefur að
mestu tekið við, sem betur fer.
Enn eimir þó eftir af þeirri hugsun
hjá sumum stjórnmálamönnum að þeir
séu slyngari en markaðurinn í því að
skipa málum á betri veg. Á ég þar ekki
hvað síst við tryggð þeirra við íslensku
krónuna og vaxtavisku þeirra.
Ahrifavaldar
Eg minntist á helstu áhættuþætti í
rekstrarumhverfi fyrirtækja, gengi,
vexti, verðlag og afurða- og áfangaverð.
Upplýsingar um þessar breytur eru
aðgengilegri og gögn tíðari en um pen-
ingamagn og ríkisfjármál. Þess vegna er
heppilegra að nota markaðsbreyturnar
til þess að mæla heildaráhættu fyrir-
tækis. I næstu greinum mun ég fjalla um
hverja skýringarbreytu fyrir sig og byrja
á áhrifum gengisbreytinga á íslensku
krónunni á rekstur fyrirtækja á íslandi.
I. Hér er stuðst við L. Oxelheim og C. Wihlborg: Managing in
the Turbulent World Economy.: Corporate Performance and
Risk Exposure. Wiley, 1997.
( Vísbendingin )
f - - X
rátt fyrir að tilraunir hafi verið gerðar
til að innleiða flautaramenningu, þ.e.
að skapa aðstæður fyrir fólk að ljóstra
upp um svik og spillingu í fyrirtækjum
og stofnunum, bæði í Evrópu og í Banda-
ríkjunum er árangurinn mjög takmark-
aður. Víða í Evrópu hefur verið komið
upp sérstökum símalínum fyrir flautara
— í Bandaríkjunum eru slíkar línur
kallaðar „sjálfsmorðslínur". Það er
reyndar svo komið að sum fyrirtæki virð-
ast í auknum mæli beita fyrirbyggjandi
aðferðum til þess að þagga niður í fóiki.
v------------------------------/
Aðrir sálmar
v___________________________________/
- - N
Skiptir máli hvor vinnur?
eir Bush og Kerry hafa nú lokið öllum
þremur kappræðum sínum og flestir
virðast telja að Kerry hafi staðið sig
betur. Það kom undirrituðum á óvart
hve málefnaleg umræðan var þrátt fyrir
allt og hve vel þeir virtust báðir vera
með staðreyndir á hreinu, þó svo að
þeir hafi ekki flaggað sömu staðreynd-
unum. Rökræður af þessu tagi virðast
henta Kcrry vel, hann var yfirvegaður
og virðulegur meðan Bush virkaði
stundum óstyrkur. Þeir sem vonuðust
til þess að Bush kæmi út eins og kjáni
hafa samt örugglega orðið yfir von-
brigðum. Ekkert af þessu ætti samt að
skipta máli heldur fyrst og fremst skoð-
anir þeirra félaga á þeim málum sem
forsetinn ræður eða hefur áhrif á. Og
vissulega kom fram áherslumunur. Það
er ólíklegt að annar forseti en Bush hefði
farið í stríð gegn Irak. Bush hefur staðið
fyrir miklum skattalækkunum sem Kerry
styður ekki. En það getur enginn spólað
til baka og sá forseti sem tekur við
embætti í janúar tekur við stöðunni eins
og hún er núna og verður að spila úr
henni. Clinton var forseti í átta ár. Hann
reyndi með aðstoð konu sinnar að efna
til breytinga á heilbrigðis- og trygginga-
kerfinu en komst ekkert áieiðis. Hann lét
fyrirtækin í friði og ferill hans var tíð-
indalítill ef frá er skilið tómstundagaman
hans. Að vísu var hann ekki eins gikk-
glaður og þeir Bush-feðgar og það kann
að hafa sannfært hryðjuverkamenn uni
að Bandaríkjamenn væru gungur sem
óhætt væri að ráðast á. Eilífar hótanir
hans um hernaðaraðgerðir í Júgóslavíu,
hótanir sem hann stóð svo ekki við,
urðu eflaust til þess að minnka virðing-
una fyrir embættinu.
Hins vegar eiga menn ekki að búast
við mikilli umbyltingu þó að Kerry vinni
sigur. Repúblikanar rnunu væntanlega
halda meirihluta sínum í deildum þings-
ins og hann mun ekki geta vaðið yfir þá.
Hinn frægi dálkahöfundur George Will,
lýsti því snemma á þessu ári að banda-
rískt stjórnkerfi byði hreinlega ekki upp
á byltingar. Þess vegna eiga menn ekki
að gera sér of háar vonir um sinn mann,
né heldur óttast of mikið að andstæð-
ingurinn vinni. Ásýndin er önnur en
undir yfirborðinu breytist minna. - bj
V___________________________________
/Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Eyþór ívar Jónsson.
Útgefandi: Heimur hf., Borgartúni 23, 105
Reykjavík.
Sími: 512-7575. Myndsendir: 561-8646.
Netfang: visbending@talnakonnun.is.
Máifarsráðgjöf: Málvísindastofnun Há-
skólans.
Prentun: Gutenberg. Upplag: 700 eintök.
Öll róttindi áskilin. © Ritið má ekki afrita án
leyfis útgefanda.
4