Vísbending


Vísbending - 07.01.2005, Qupperneq 2

Vísbending - 07.01.2005, Qupperneq 2
V ISBENDING Nýsköpun í nokkrum víddum r sland er í vaxandi mæli að verða nýsköpunarþjóðfélag, íslensk fyrir- tæki leggja meiri áherslu á nýsköpun en áður og jafnvel Islendingar stunda æ meir nýsköpun. Eða svo viljum við trúa. Þörf fyrir nýsköpun hefur aukist þar sem þjóðfélagið hér hefur að mestu leyti náð í skottið á öðrum þjóðfélögum, og vel það, hvað varðar tækni og þróun. Hinn alþjóðlegi markaður gerir ekki nokkru fyrirtæki kleift að vera eyland lengur og heimsfrægð á Islandi dugar ekki lengurti! þess að fullnægja hinu íslenska egói. Þess vegna þarf enn frekar að festa nýsköpun í sessi í íslensku þjóðarsálinni. Víddir nýsköpunar Harvard-prófessorinn Michael Porter hefur haldið því fram, undanfarin þrjú ár í skýrslu World Economic Forum um samkeppnishæfni þjóða, að Island sé eitt þeirra landa sem sé komið í flokk með svokölluðum nýsköpunarþjóðum og geti þar af leiðandi ekki lengur einungis apað eftir öðrum þjóðum til að uppskera öra auðsæld. Nú þarf nýsköpun að vera leiðandi þáttur í auðsældarsköpuninni. Porter hefur einnig bent á að auðsældar- sköpun þjóðar sé að miklu leyti saman- lögð auðsældarsköpun þeirra fyrirtækja sem í landinu eru þannig að beint og óbeint er hann að tala um aukna nýsköpun í fyrirtækjageiranum. Það eru hins vegar I sjálfu sér ekki fyrirtækin sem skapa nýjungamarheldurstarfsmennfyrirtækj- anna sem nýta auðlindir og aðstæður sem fyrirtækjaumhverfið býður upp á til þess að skapa nýjungarnar. Nýsköpun einstaklinga eða hóps fólks þarf heldur ekki að snúast um fyrirtækjareksturheld- ur geta þær t.d. verið félagslegs eðl is eða persónulegar. I eðli sínu snýst nýsköpun um breytingu, þ.e. nýbreytni eðanýjungar á einhverju sviði. Nýjungin getur hins vegar verið mismunandi mikil „nýjung“, allt frá því að vera einungis lítil nýbreytni í það að vera stökkbreyting. I viðskipta- bókum er einnig talað um að breytingin geti átt sér stað á mismunandi þáttum fyrirtækisins, þ.e. vöruný- breytni, þjónustunýbreytni eða aðgerðamýbreytni. Með öðrum orðum mætti segja að nýjungin geti falist í því hvað framboðið felur í sér og ‘ hvemig það lítur út, hvemig það er borið á borð og hvemig það er matreitt. Aðgerðamý- breytnin snýst að miklu leyti um aukna framleiðni, að skapa meira eða betra framboð með minni fyrirhöfn eða tilkostnaði. Nýsköpun í kúrfunni Igreininni Darwin and the Demon sem birtist í Harvard Business Review á síðasta ári (júlí-ágúst, 2004) íjallaði GeoffreyA. Mooreumlíftímakúrfuna og nokkur stig nýsköpunar sem hann sýndi hvarværuákúrfunni. í lauslegri þýðingu ög frjálslegri túlkun mætti útskýra þá nýsköpunarþætti sem hann nefnir með eftirfarandi hætti (en sjálfurseturMoore þá ekki fram skipulega): Markaðsnýsköpun — skapar nýjan ört vaxandi markað, yfirleitt með því að nýta tækninýjungar. Dæmi: Tilkoma Inter- netsins. Notkunarnýsköpun — nýtir tækni af ein- um markaði og færir inn á annan til að þjóna nýjum tilgangi. Dæmi: Rafræn reikningagerð. Vörunýsköpun — tekur vöru eða fram- boð og breytir því. Dæmi: Tölvur með innbyggt netmótald. Aðgerðarnýsköpun — gerir aðferðir til að koma framboði á markað skilvirkari. Dæmi: Tölvusala Dell áNetinu. Upplifitnarnýsköpun—geriryfirborðsleg- ar breytingar til að breyta því hvernig neytendur upplifa framboð á vöru og þjónustu. Dæmi: Amazon.com bendir kaupendum á áhugaverðar bækur sem tengjast fyrri kaupum þeirra og ráfi, þ.e. áhugasviði þeirra. Kynningarnýsköpun — breytir þvi hvemig fyrirtæki nær til viðskiptavina. Dæmi: Uppboð á Netinu. Viðskiptalíkansnýsköpun — breytir því hvemig fyrirtækið skapar virði. Dæmi: Gillette tekur að selja rakvélarblöð í stað rakvéla. Skipulagsnýsköpun — nýtir breytingar í umhverfinu til að endurskipuleggja markaðsaðstæður. Dæmi: bankarbreytast úr viðskiptabönkum í fjárfestingar- banka. Þó að skilin á milli einstakra skil- greininga séu ekki mjög skýr lýsa þessir þættir ágætlega hvemig nýbreytni getur átt sér stað með mismunandi hætti og að fyrirtæki hafaólíkarþarfirámismunandi stigum líftíma síns. Markaðsnýsköpun, notkunarnýsköpun og vörunýsköpun eiga sér stað þegar fyrirtækja eru ung og stjómendurþeirrarenna enn blint í sjóinn um framboðið (svo að vísað sé í BCG- líkanið, sjá mynd) en aðgerðamýsköpun á sér stað þegar framboðið hefúr náð ákveðinni fótfestu og er vaxandi stjarna. Þegar framboðið er komið á beinu braut- ina, sem óvíst er hve löng er, og vöxturinn er lítill og spurningin er um að mjólka framboðið, er mest þörf fyrir nýsköpunina h vað varðar uppIifunogkynningu.Að lok- um þegar hallar undan fæti, eftirspurnin dregst saman og allt er smám saman að fara í hundana er þörf fyrir nýsköpun í viðskiptalíkaninu og skipulaginu ef ekki illa á að fara. Hugsanleg nýbreytni Michael Hammer segir frá því í grein- inni Deep change sem birtist í Har- vard Business Review á síðasta ári (apríl, 2004) hvernig æðstu stjómendur fyrir- tækja hafa í raun lítinn áhuga ánýsköpun. Þeir hafi hvorki áhuga á að sty ðj a hana né hvetja til hennar, heldur snúist líf þeirra sífellt meira um viðskiptasamninga, upp- kaup og sameiningar, enda vekur það mesta athygli hluthafa, stjórnarmanna og fjölmiðla. Þaðþarfekki leita langttil þess að sjá slík dæmi og virðist ágreiningurinn um hvað er mikilvægast stundum skekja topp pýramídans. En á meðan hægt er að nýta skala- og stærðarhagkvæmni til virðissköpunar er þó kannski ekki eins brýn þörf fyrir að sá nýjum fræjum. Þó kemur að því að staða fyr- irtækja, eins og bankanna, verður slík að það er ólíkt meiri akkurafnýsköpun en frekari uppkaupum. Það er súmynd sem Michael Port- er dregur upp af Islandi í heild sinni út frá mæli- kvörðum um samkeppn- ishæfni. Auðlindirnar munu ekki nægja enda- lausttil þess að viðhalda þeirri hagsæld sem þjóðin upplifir um þessar mundir, það er kominn tími til að sá nýjum fræjum. Þróun líftímakúrfunnar í Ijósi nýsköpunar (og með hliðsjón af Boston Consulting Group líkaninu) I, X 0. ' V !r) %., % • % Stjnnin Mjólkurkýf X \ X V ' Tækni- aðlöaun y Spuniingnt'inei'ki Humltif \ -► Tinii Heimild: Byggt á skýringarmynd Moors og BCG-likaninu. 2

x

Vísbending

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.