Vísbending - 13.05.2005, Side 4
V
ISBENDING
(Framhald af síðu 2)
allan af spjótum semþeir láta bresku ridd-
arasveitina ríða inn í og ná þannig á vald
sitt mikilvægasta trompi breska hersins.
Skotamir unnu þann bardaga með her-
kænsku að hætti Tzu. Breski kóngurinn
virðist þó betur lesinn en Wallace og félag-
ar í bardagafræðunum þar sern hann gerir
samning við einstaka smákónga Skota
í seinni orrustunni. Þannig brýtur hann
niður bandalag Skotanna með pólitískum
þrýstingi ogpeningagjöfum. Smákóngam-
ir svíkja Wallace og félaga á ögurstundu
og Wallace er því dæmdur til þess að tapa.
Báðir þessir sigrar em þess vegna eins og
beint upp úr bardagalist Sun Tzu, þó út frá
mismunandi köfium bókarinnar. Niður-
staðan er að leiðtogamir verða að skilja
heildarhugmyndafræðina til þess að láta
ekki koma sér á óvart þegar á vígvöllinn
er komið.
Praktísk ráð
ony Soprano í þáttunum The Sopranos
er í einum þættinum fenginn til þess að
lesa TheArt ofWar og er gáttaður á því að
bók sem skrifuð var fyrir 2.500 árum eigi
enn erindi í nútímanum. Hann bendir á að
þetta sé besta bókin sem hann hafi lesið um
stefnumótun og bardagalist. Þetta er rétt
hjá sjónvarps-mafíósanum. Bókin á enn
erindi við þá sem eru í stjómunarstöðum
í fyrirtækjum og er jafnvel skyldulesning
fyrir þá. Þó að samkeppnisfræðin hafi að
vissu leyti tapað trúverðugleika sínum á
síðustu ámm vegna þess að menn hafa
farið að leggja aukna áherslu á neytendur,
nýjungar og vöxt markaðarins á hún enn
mikilvægt erindi í þeim geira ef ætlunin
er að komast af til lengri tíma. Sam-
keppnisfræðin gengur að miklu leyti út
á að skilja stöðu og stefnu, styrkleika og
veikleika samkeppnisaðila. Leikjafræðin
hefúr svo hjálpað til við að skilja hvemig
samkeppnin eða bardaginn getur þróast.
Hin einföldu ráð Tzu eiga enn erindi vegna
þess að þau em þumalfingursreglur um
hvemig á að heyja bardagann. Það er að
minnsta kosti ljóst að leiðtogi sem þekkir
þessi ráð eröllu beturbúinn en sá sem þekk-
ir þau ekki. Það er einnig mikilvægt að
hafa sömu þekkingu og andstæðingurinn
þar sem þessi einfalda hugmyndafræði
var mörgum stjómendum kunn á tíunda
áratuginum. I hnotskum snýst þessi list
um að greina og skilja aðstæður og and-
stæðinginn, að byggja upp viðeigandi hæfi-
leika, annars vegar leiðtogahæfileika og
hins vegar hæfni og liðsanda starfsmanna,
að skilja helstu leikbrellumar, geta lesið
og svarað brellum andstæðingsins og geta
ffamkvæmtliugmyndirstefhumótunarinn-
ar. Ef skilningi á neytendum og hæfni til
þess að bregðast við þörfum þeirra er svo
bætt við þekkinguna eru stjómendur vel
búnir fyrir bardaga viðskiptalífsins.
(Framhald af síðu 1)
lífsleiðinni en áður. Að meðaltali var
aldurinn um 26 ár hér á landi árið 2000
þegar konur byrjuðu að eignast börn en
hann var um 21 ár árið 1970. I Noregi
hefúr þetta hlutfall farið úr 24 ámm árið
1970 í 30 ár árið 2000. Svipaða sögu
er að segja frá öðmm löndum. Einnig
hefur fjölskyldan rninna gildi en áður,
sem hugsanlega dregur úr fjölda þeirra
barna sem hver kona er tilbúin til að
eignast. Svarið virðist að einhverju leyti
vera fólgið í að stór hluti bama verður
til utan hjónabands en um 50% bama á
Norðurlöndunum fæðast utan hj ónabands
samkvæmt tölum OECD.
Ef munurinn á fátækum löndum og
ríkum er skoðaður, sem og þær breytingar
á fæðingartíðni sem verða þegar ríkidæmi
þjóða vex, virðist vandinn felast í því að
forgangsröðunin breytist í þjóðfélagi sem
efnast vel. Þannig ráða menningarlegir
þættir þessari þróun frekar en peninga-
skorlur barnafólks. Segja má að fæðing-
artíðnin falli með auknu frelsi, sem felst
í fleiri valkostum. Hugsanlega lifir fólk
þá meira spennandi lífi en afleiðingin er
að þjóðin eldist hraðar en ella.
(Framhald af síðu 3)
Þannig gætu ríkarþjóðirtekið sig saman
og myndað sjóði sem keyptu valrétti í
afkomu þjóða. Þó er líklegra að slíkt
fyrirkomulag henti betur hvað varðar
einstakar framkvæmdir og verkefni.
Þróunin er reyndar í þá átt nú þegar.
Það vekur athygli að Shiller stingur
ekki upp á tryggingu á hlutabréfaeign.
Þetta er sennilega vegna þess að hann
heldur því fram að menn verði þá allt-
of uppteknir af hlutabréfamarkaðnum,
kaupi væntingar og sprengi upp verð
hver fyrir öðrum. Þetta valdi svo hruni
þegar bólan springur og ónauðsynlegum
sveiflum á einingaverði til lengri tíma
litið. Þar sé eins dauði annars brauð.
Hvað sem öllu líður hvetja tillögur
Shillers okkur til umhugsunar um eigin
hag og samkennd með náunganum.
( Vísbendingin )
Knattspyrnan og hópíþróttir almennt
snúast sífellt meira um stefnumótun
og striðsáætlun í líkingu við bardagalist
SunTzu. Sennilegaerenginn Islendingur
betur að sér í slíkri bardagalist en Guðjón
Þórðarson, fyrrverandi þjálfari Stoke
og íslenska landsliðsins. Honum fylgir
hins vegar sama vandamálið og mörgum
nútímastjórnendum, að þeir eru fyrstir
til að yfirgefa vígvöllinn og hálfklárað
verkefnið ef betra tækifæri býðst annars
staðar. Eftir situr höfuðlaus herinn með
Vþljósa hernaðaráætlun._______________
Aðrir sálmar
\_____________________________,/
r \
Alþingi lýkur
Margirbýsnastnúyfirlöngu sumarfríi
þingmanna. Þeir séu nú að fara í
fimm mánaða frí og taki sér þar að auki
löng jóla- og páskafrí, svo að ekki sé talað
um frí vegna nefndarstarfa. Það liggur
við að öll þessi fríaupptalning sé eins og
í gamla daga í Æskunni. Þeir sofa átta t íma
á dag, það eru alls 122 dagar á ári. Svo
borða þeir í klukkutíma, það eru 15 dagar
og svo framvegis. A endanum kemur í ljós
að þingmenn vinna bara í klukkutíma og
það ereinmitthann sem fer í að lesaþennan
sálm. En hefði þjóðfélagið eitthvert gagn
að því að þingmenn ynnu lengur? Hlutverk
þingmanna er að búa til lög. Margir halda
að þingmenn eigi að stjóma landinu en
það er misskilningur. Þingið á að búa til
reglumar sem farið er eftir. Ríkisstjómin
á að stýra rekstri ríkisins frá degi til dags
en best er að fólk almennt stjómi sér sjálft.
Þaðergottað lagaumhverfi sébæði frjáls-
legt og stöðugt. Þess vegna er það ekkert
sérstaklega heppilegt að sifellt sé verið
að hræra í lögum. Afkastamikið þing er
ekki endilega gott þing. Fólk vill vera sem
mest í friði. Auðvitað skiptir það máli að
lög séu réttlát og skynsamleg.
Það var reyndar ógnvekjandi að heyra
upplýsingamar úr s vari utanríkisráðherra
um reglur Evrópusambandsins sem hér
hafaverið innleiddaráámnum 1994-2004.
Teknar eru saman tilskipanir, reglugerðir
og ákvarðanir. Af þessum fjölda voru
2.527 teknar inn í EES-samninginn og
Islendingar innleiddu 2.227 þeirra. Þetta
þýðir að það er nánast innleidd ein ný
regla hvem virkan dag. Það hlýtur að
vekja menn til umhugsunar um það hve
stóran þátt Islendingar eigi i því að móta
þessar reglur. Á Alþingi er unnið mjög
gott starf í þeim málum sern þingið fær
nægan tímatil þess að afgreiða. Þingmenn
bæta þá oft miklu við þegar þeir hafa séð
umsagnir margra aðila. En hve stóran hlut
eiga Islendingar i þessum 2.227 reglum
sem innleiddar hafa verið á undanfömum
áratug? Mistökin verða þegar rnenn fara
ekki nægilega vel yfir málin og eins og
Ögmundur Jónasson sagði svo vel: „Til
þess eru mistökin að læra af þeim. Til þess
eru vítin að varast þau.“ - bj
''Ritstjóri og ábyrgðarmaöur: A
Eyþór ívar Jónsson.
Útgefandi: Heimur hf., Borgartúni 23, 105
Reykjavík.
Sími: 512-7575. Myndsendir: 561-8646.
Netfang: visbending@talnakonnun.is.
Málfarsráðgjöf: Málvísindastofnun Há-
skólans.
Prentun: Gutenberg. Upplag: 700 eintök.
Öll réttindi áskilin. © Ritið má ekki afrita án
leyfis útgefanda.
4