Vísbending - 20.05.2005, Qupperneq 4
ISBENDING
(Framhald af síðu 3)
árinu 2003 að varlega áætlað megi gera
ráð fyrirað íyrirhveijaprósentu aukning-
ar hlutfalls utanríkisviðskipta af lands-
framleiðslu aukist landsframleiðsla á
mann um a.m.k. 'A úr prósentu til langs
tíma. Miðað við 12 prósenta aukningu
hlutfalls utanríkisviðskipta af landsífam-
leiðslu við inngöngu Islands í ESB og
EMU myndi landsframleiðslaámannauk-
ast varanlega um 4% til langs tíma sem
samsvarar yfir eitt þúsund Bandaríkja-
dollara. Þessi áhrif yrðu augljóslega því
meiri sem aðildarríki myntbandalagsins
eru fleiri.
Óvissan
Rétt er að hafa í huga að þessar niður-
stöður eru háðar töluverðri óvissu.
í fyrsta lagi er skammt liðið síðan evran
var tekin upp og því ólíklegt að öll lang-
tímaáhrif hennar á alþjóðaviðskipti séu
komin fram. Ahrifin gætu því verið meiri
en mat okkar gefur til kynna. Á móti
þessu koma efasemdirmargra um varan-
leika myntbandalagsins, komi ekki til
nánari pólitískur samruni með aukinni
samræmingu ríkisfjármála. I öðru lagi
er eingöngu einblínt á áhrif evrunnar á
alþjóðaviðskipti. Ekki er tekið tillit til
mögulegaaukinsgagnsæismarkaðskerfis-
ins eða til aukinnar sérhæfingar, sam-
keppni og dýpkunar fjármálamarkaða.
Að sama skapi er ekki tekið tillit til
kostnaðar við það að missa sjálfstæða
peningastefiiu til að glíma við ósamhverf-
ar hagsveiflur. Söguleg reynsla bendir
til að Jjetta geti verið mikilvægur missir
fyrir Island. Á móti kemur hins vegar að
aukin alþjóðaviðskipti hafatilhneigingu
til að samþætta hagsveiflur milli landa
(Framhald af síðu 2)
leið sem fyrirtækið hyggur á. Þetta er
eins og með drykkjuna — gakktu hægt
um gleðinnar dyr. Olíklegt er annað en
að Welch hafi stuðst við bestu fáanleg
gögn í flestum ákvörðunum sínum þó
að hann hafi sýnt það oftar en einu sinni
að hann gat tekið umdeildar ákvarðanir
sem reyndust hinar ágætustu.
r
I minningunni
Ilok bókarinnar svarar Jack Welch
spurningum sem hann fékk á sig í
fyrirlestrar ferð sinni um heiminn. Ein
spumingin er um hvort að hann telji að
hann muni komast til himna. Svarið sem
Welch gaf var að það væri langtímaplanið.
En hann skoðar þó einnig spurninguna
út frá því fyrir hvað hans verði minnst
þegar hann hverfur frá. Hann segist vilja
að sín verði minnst fyrir að vera mikill
talsmaður hreinskilni og verðleika og
að trúa því að allir verðskuldi tækifæri.
þótt líklega tæki nokkuð langan tíma
fyrirþau áhrif að koma fram. I þriðja lagi
gæti verið að möguleg viðskiptaaukn-
ing myntbandalagsaðildar fyrir Island
sé ofmetin í tölfræðiniðurstöðum okkar
þar sem þær lýsa áhrifúm aðildar fyrir
hið „dæmigerða" Evrópuland. Hugsan-
leg sérstaða íslenskra utanríkisviðskipta
hvað varðar uppbyggingu gæti bent til
þess að fara þyrfti varlega í að yfirfæra
þessar niðurstöður á ísland. í þessu
samhengi gæti verið lærdómsríkt að
líta til Færeyja sem er í myntbandalagi
við Danmörku en stendur þó utan ESB.
Hátt vægi Danmerkurí utanríkisviðskipt-
um Færeyja (um 30% samanborið við
8% hlutdeild Danmerkur í viðskiptum
lslands)ogopnanleiki færeyskahagkerfis-
ins (100% hlutfall utanríkisviðskipta af
landsframleiðslu samanborið við 70%
hér) virðist þó ekki vera í ósamræmi
við að innganga í myntbandalagið gæti
aukið opnanleika íslenska hagkerfisins
um ofangreind 12 prósent.
r
Akvörðunin
r
Akvörðun um aðild Islands að ESB
og EMU hlýtur að byggjast á mati
á fjölda þátta, bæði hagrænum og stjóm-
málalegum. Það er rétt að hafa óvissuna
í huga við mat á mögulegum kostum og
göllum á inngöngu. Þar em aukin utan-
ríkisviðskipti Islands aðeins einn þáttur
af mörgum.
1. Þessi grein er byggð á „Out in the cold? Iceland’s trade per-
formance outside the EU“ sem höfundur skrifaði ásamt Francis
Breedon við Imperial College í London og birtist í rannsóknar-
ritgerðarröð Seðlabanka íslands (Working Paper Series, nr. 26).
2. Löndin eru Austurríki, Belgía, Bretland, Danmörk, Grikkland,
Holland, Finnland, Frakkland, írland, ísland, Ítalía, Noregur,
Portúgal, Spánn, Sviss, Svíþjóð og Þýskaland.
3.Þessirþættirerustærðlandanna,fjarlægðmilIiþeirra, þaðhvort
þau deila landamærum og tengsl tungumála þeirra.
Enn fremur segist hann vilja að sín verði
minnst fyrir að aldrei að leyfa sjálfum sér
að falla i þá gildru að verða fórnarlamb.
Það lýsir sennilega ágætlega því sem
mætti kalla stefnumótun þess leiðtoga
sem nefnist Jack Welch.
[ Vísbendingin )
rr ' N
Isíðasta kafla bókarinnar Að sigra
svarar Jack Welch spurningum sem
hann var spurður á fyrirlestraferð sinni
um heiminn. Eins og flestir muna þá kom
hann einnig við á Islandi og spumingin
sem hann svarar úr þeim leiðangri er
um framtíð Evrópusambandsins. Það
er áhugavert að hann telur framtíð þess
bjarta til lengri tíma litið og sá árangur
sem þegar hefur náðst ntikið afrek. Hann
telur að hin nýja Evrópa, þ.e. Austur-
Evrópulönd, eigi eftirað leiða framþróun
ysambandsins til öflugri kapítalisma. y
Aðrir sálmar
v___________________________________✓
C \
Gerum könnun
egar þessi sálmur birtist verður Ingi-
björg Sólrún væntanlega orðin for-
maður Samfylkingarinnar. Kannanir að
undanfömu benda allar í sömu átt. En sitt
er hvað könnun og könnun. Á vefsvæðinu
heimur.is hafa birst tvær kannanir um
þetta efni, sú fyrri í janúar, sú seinni í
byrjun maí. Þar var spurt „Hvern vilt þú
sjá sem formann Samfylkingarinnar?" í
fyrra skiptið, en í það seinna „Hvort vilt
þú sjá Össureða Ingibjörgu sem formann
Samfylkingarinnar?" Það var sem sé ljóst
að verið var að spyrja fólk hvem það vildi
heldur. Fréttablaðið gerði könnun í janúar
ogspurði:„Hvertelurþúlíklegastaðverði
formaður Samfylkingarinnar?" Þetta er
allt önnur spuming en niðurstaðan var
engu að síður túlkuð sem sigur fyrir Ingi-
björgu. Menn geta velt því fyrir sér hver
niðurstaðanhefði orðið ef spurt hefði verið
fyrir síðustu forsetakosningar hver menn
héldu að væri líklegasti sigurvegari þeirra.
Nær allir hefðu svarað Ólafur Ragnar en
hann fékk þó ekki atkvæði nema 42,5%
þeirra sem vom á kjörskrá. Auðvitað geta
menn svo deilt um túlkun á niðurstöðum.
Sú staðreynd að fleiri kjósendur annarra
flokka en Samfylkingarinnar vildu Öss-
ur en Ingibjörgu í könnuninni á svæðinu
heimur.is gæti bent til þess að menn teldu
hann viðráðanlegri keppinaut. En það gæti
líka þýtt að menn teldu hann vænlegri til
samstarfs. Síðastliðið miðvikudagskvöld
birti Stöð 2 könnun sem gerð er af Plúsn-
um. Þar kom frarn meiri stuðningur við
Ingibjörgu en Össur meðal landsmanna
allra. Þessi könnun orkar rnjög tvímælis.
Hjá Plúsnum skrá menn sig viljuga til
þess að svara könnunum og úrtakið er
því sjálfValið og brýtur fyrsta lögmál úr-
taksfræðinnar. Þetta sama fyrirtæki sendi
nýlega út könnun þar sem mönnum var
gefinn kostur á því að styðja Ingibjörgu
en ekki Össur. Það birti svo yfirlýsingu
um að um auglýsingu hcfði verið að ræða.
Kannski var það, en trúverðugleikinn hafði
beðið hnekki. Það sem skiptir mestu máli
fyrir könnunarfyrirtæki er að reyna að
finna sannleikann, hvaða skoðun sem
aðstandendur þeirra eða viðskiptavinir
kunna að hafa. - bj
V J
'^Ritstjóri og ábyrgðarmaður: \
Eyþór Ivar Jónsson.
Útgefandi: Heimur hf., Borgartúni 23, 105
Reykjavik.
Simi: 512-7575. Myndsendir: 561-8646.
Netfang: visbending@talnakonnun.is.
Máifarsráðgjöf: Málvisindastofnun Há-
skólans.
Prentun: Gutenberg. Upplag: 700 eintök.
Öll réttindi áskilin. © Ritið má ekki afrita án
leyfis útgefanda._________________
4