Vísbending


Vísbending - 19.08.2005, Side 1

Vísbending - 19.08.2005, Side 1
V Vi k u ISBENDING rit um viðskipti og efnahagsmál 19. ágúst 2005 33. tölublað 23. árgangur íslenska neysluþjóðin Hagstofa íslands birti nýlega rannsókn á útgjöldum heimil- anna2001-2003. Þessiútgjalda- rannsókn gefúr ágætar vísbendingar um h vernig íslenska þjóðin lifir og eyðir pen- ingunum sínum. Islendingar eru ríkir á flesta mælikvarða og eyða peningunum í samræmi við það. Utgjaldadreifing Einkaneysla er óvíða meiri en hér á landi, eða um 16 þúsund Bandaríkja- dalir á mann á ári. I Evrópu er hún einungis hærri í Lúxemborg, 17 þúsund dollarar, en í Bandaríkjunum erhún hærri en nokkurs staðar annars staðar, eða um 23 þúsund dollarar á mann á ári. Hvemig eyðir svo íslenska þjóðin peningunum? Samkvæmt 1.915heimilaúrtakiHag- stofunnar er skipting neysluútgjalda eins og sjá má á mynd 1. Langstærsti hlutinn er vegna húsnæðis, hita og rafmagns, eða 22,5%, en matur og drykkjarvörur (15,2%), tómstundir og menning (13,9%) og ferðir og flutningar (12,9%) em stærstu útgjaldaliðirnir þar á eftir. Samanlagt útskýra þessir fjórir þættir um 65% af neyslu þjóðarinnar. Aðrir þættir vega minna en það er athyglivert að áfengi vegur um 3,7% af neysluútgjöldum en menntun vegur hins vegar 0,6%. Astæða þess er að ríkið niðurgreiðir menntun en leggur gjöld á áfengi. Engu að síður er Mynd 1. Hlutfallsleg skipting neyslu íslenskra heimila Hótel og veitinga5t. Aörar vörur og 5% 1 bjónusta Maturog 7% drykkjarvörur 15% Afengi og tóbak 4% Fö: og skór 5% 5% Menntun 1% Tómstundir og menning 14% Feröirog flutningar 13% Husnæöi, hiti og rafm. 22% það umhugsunarvert af hverju heimilin eyða ekki meira til menntunar, umfram þá grunnmenntun sem er í boði ríkisins, og segir þetta ýmislegt um forgangsröðun þjóðarinnar. Kjöt, gos og bús Hagstofan á til skemmtilegar magn- tölur á einstökum vörutegundum frá árinu 1957 til ársins 2003. Samkvæmt þeim tölum virðist kaífineysla að mestu hafa staðið í stað áþessu tímabili, smjör- notkun lítillega dregist saman og neysla á eggjum tók stökk á áttunda og níunda áratuginum en dróst svo verulega saman á þeim tíunda. Samanburður á kjöt- og fiskneyslu bendir til þess að matarvenjur Islendinga hafi breyst talsvert frá því um miðja öldina þar sem fisk- og kjötneysla var jöfn. Síðan þá hefur kjötið haft vinn- inginn og hefur kjötneysla aldrei verið meiri en nú og er enn að aukast á sama tíma og neysla á fiski virðist vera drag- ast eitthvað saman. Verð, þægindi og úrval ráða talsverðu um neysluhegðunina sem endurspeglast kannski í þróun á kart- öfluneyslu, sem hefur dregist saman um helming þrátt fyrir að ýmsar kartöflu- nýjungar hafi verið settar á markað á undanfornum árum. Tvennt vekur sérstaka athygli í tölum um magnþróun á einstökum neysluvörum, annars vegar samanburður á mjólkur- og gosneyslu og hins vegar áfengisneysla. Samanburður á mjólkurneyslu og gos- neyslu sýnir að á sama tíma og gosneysla hefur stöðugt aukist hefur mjólkumeysla dregist saman, 1 íkast því að um staðkvæm- ar vömr sé að ræða. Nú er svo komið að Islendingar drekka jafnmikið af gosi og þeir drekka af mjólk. Tölur um sölu á lítrum af alkóhóli sýna að þjóðin eykur stöðugt drykkjuna og drekkur að jafnaði 74% meira alkóhól núna (fimmfalt meira í seldum lítrum áfengisdrykkja) en hún gerði árið 1986. Efíslenska þjóðin erþað sem hún í sig lætur þá draga kjöt, gos og bús upp ágæta mynd af henni. (Framhald á síðu 4) Mynd 2. Neysla á kaffi, smjöri og eggjum á mann frá 1957 (kg) Mynd 3. Neysla á kjöti og fisk á mann J'rá 1957 (kg) Mynd 4. Neysla á mjólk og gosi á mann frá 1957 (kg) SÓSíððZISlSS aaíBiiiOióiOO Mytul 5. Neysla á alkahóllitrum á mann frá 1980 1 íslendingar njóta þess sem stendur ti 1 boða og það kem- ur fram í neysluhegðun þjóðarinnar. 2 Kynlífsþörfmannsinshefur Stjómendur Baugs hafa nú komiðauglýsendumvelþar A formlega veriðákærðirfyrir sem þeir geta alltaf notað fjársvikogíþvífelstákveðin erótík til að ná athygli. Tlþ(ii)'tþa. 4 Framhald af forsíðugrein þar sem neysla á Islandi er borinsamanviðEvrópulönd og Bandaríkin.

x

Vísbending

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.