Vísbending


Vísbending - 19.08.2005, Qupperneq 3

Vísbending - 19.08.2005, Qupperneq 3
ISBENDING A baug við lögin Heimildarmaður Þorvaldar Gylfa- sonar í háloftunum kann að hafa haftréttfyrirsérþegarhannsagði: „bráðum fellurstærsta bomba, semfallið hefur á íslenzkt samfélag frá öndverðu" og átti þá við ákærur ríkislögreglustjóra gegn Baugi. Ymislegt í ákæruatriðunum hljómar eins og að „hentisemin“ hafi stundum ráðið ferðinni í sjóðs- og bók- haldsmálum félagsins frekar en að farið hafi verið eftir ströngustu reglum. Engu að síður er erfitt að sjá hvaða „bomba“ er falin í efnisatriðum ákærunnar þó að ásakanir um fjár- og skattasvik séu alvar- legar. 1 samanburði við olíumálið erþetta meira eins og hurðarsprengja. „Bomban“ kann hins vegar að vera af öðrum toga og felast í umbrotum kerfisins en óvíst er hvort það springur eða lappast niður, þ.e. hvort að það er misnotað af hálfu fámennrar valdaklíku eða hvort það er úrræðalaust gagnvart yfirgangi hinna gráðugu. Mannorðsmorð? jaldan hefur ástleysi tveggja manna hvors til annars verið eins vel auglýst og í tilviki Davíðs Oddssonar og Jóns As- geirs Jóhannessonar. „Mannorðsmorð“ á báða bóga eru hætt að vekja sérstaka athygli eða hafa einhverja þýðingu. Þannig er nýjasta útspil Baugsfeðga, að líkja stjómarháttum á Islandi við stjóm- arhætti Mugabes í Simbabve, dæmi um stórkarlalegar og afar ósmekklegar upphrópanir sem hafa einkennt þessi samskipti. Aróðursstríðið í fjölmiðlum minnir þannig á gamla brandarann um hróp tveggja manna þvert yfir stóra sal inn í Háskólabíói. Sá fyrri kallaryfir salinn: „Sæll Jón, hvenær slepptu þeir þér út af Hrauninu?“ og hinn síðari svarar um hæl: „Nei, blessaður Davíð, ertu hættur að lemja konuna þína?“ Ásakanirnar eru þess eðlis að það er erfitt að bera þær af sér nema fólk sjái hversu illkvittnar og kjánalegar þær eru. Málsvöm þeirra Baugsfeðga er að þessi óvild hafi farið út í þær öfgar að ríkislögreglustjóra hafi verið att út í að finna upp sakir á þá til þess að brjóta mætti upp Baugsveldið. Þetta verður að teljast ein ofsalegasta samsæriskenning sem hefur verið sett fram lengi en það þýðir ekki endilega að hún sé með öllu ósönn. Þó er ólíklegt að nokkurn tímann muni finnast gögn eins og í grænmetis- og olíumálinu sem geta stutt þessar full- yrðingar. Það er kannski heldur ekki keppikefli þeirra feðga heldur að skapa untræðu um uppruna og tilgang ákærunn- ar. Ólíklegt er þó að það hafi mikil áhrif á niðurstöðu málsins þó að dómskerfið sé ekki endilega þar með sagt ósnertanlegt fyrir áhrifum áróðurs og valdabaráttu. Með þessari málsvöm gætu Baugs- feðgar verið að skjóta sig í fótinn þar sem samsæriskenningin verður afar reyf- arakennd ef þeim tekst ekki að sanna sakleysi sitt fyrirdómstólum, sérstaklega ef á að draga dómskerfið inn í kenning- una. Á hinn bóginn krefst þetta þess að dómskerfið þarf að finna þá feðga seka um alvarleg og stórfelld brot svo að rétt- læta megi þá meðferð sem málið hefur fengið. Ef þeir verða dæmdir saklausir eða einungis sekir um smávægileg brot er staða þeirra, h vað varðar skaðabótamál gegn ríkinu, afar vænleg. Með því að draga nafn Davíðs inn í þessa umræðu er eins og verið sé að leggja annars vegar mannorð hans undir á móti mannorði þeirra feðga þar sem niðurstaða málsins verður „morð“ á öðru hvoru þeirra. Gegn græðginni Iviðtali við Vísbendingu (51. tbl. 2003) fyrir tæpum tveimur árum lýsti Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráðherra, áhyggjum sínuni af stofnanakerfinu: „Það er ekki vafi á því að eftirað markaðurinn varð frjáls og viðskiptaleg landamæri nánast hurfu þá eru þær stofnanir hér sent eiga að sjá til þess að lögum og reglum sé fylgt, s.s. Fjármálaeftirlitið, Ríkis- lögreglustjóri, Skattrannsóknarstjóri, Skattstofa og slíkir aðilar, mjög á eftir tímanum. Þeir sem starfa á markaðin- um eru afar fljótir að finna nýjar leiðir sem hið gamla kerfi veit varla út á hvað ganga. Eftirlitsaðilamir halda bara áfram að eltast við tuttugu og fimm kallinn hér og þrjátíu kallinn þar hjá Jóni og Gunnu sem er mjög ósanngjarnt ef það er síðan raunin að stórar upphæðir fljóta framhjá eftirlitinu. Ekki þannig að ég vilji að menn séu að eltast við alla hluti og gefa sér fyrirfram að menn séu að fara út fyrir öll mörk. Það er samt enginn vafi að þessi tilbrigði eru til eins og í hinum stóru skattamálum, þar sem rnenn eru að reyna að fela þetta allt saman með tengslum sínum við útlönd. Þeir ganga á svig við allar þær reglur sem hér gilda afþví að eftirlitsstofnanirnareru litlarog fámennar og hafa ekki náð að fylgjast eins hratt með breytingum og þeir sem starfa á markaðinum.“ Þetta er sennilega kórrétt greining hjá Davíð á hinu íslenska stofnana- kerfi, flestir sérfræðingar hafa fyrir margt löngu áttað sig á að það er eng- an veginn í stakk búið til þess að mæta þörfum nútímaþjóðfélags. Það er ókostur smáríkisins að það er erfitt að halda úti öflugum og skilvirkum stofnunum sem þjónaþví hlutverki sem samfélagið æskir af þeim. Skilaboðin voru einnig skýr, það var kominn tími til að leggja áherslu á stórfiskana í stað þess að vera í stöðug- um eltingarleik við smáfiska. Olíumálið, Baugsmálið og sú herör sem ríkið virðist ætla að skera upp gegn erlendum eignar- haldsfélögum bendir til þess að það sé mjög ákveðin stefnubreyting að eiga sér stað í stofnanakerfinu. Þetta eru án vafa breytingar sem eru Davíð að skapi en i fyrmefndu viðtali sagði hann: „Eg vil að lögreglan sé ekki að skipta sér af málum nema ástæða sé til en þá verða menn líka að gera það almennilega og fylgja því fast eftir og ekki gera mannamun í þeim efnum og taka bara litlu kallana alla tíð. Með sarna hætti vil ég að skattalögin séu skýr og klár, rnenn séu sem allra mest látnir í friði og þeim treyst en j afnframt að skattayfirvöld gefist ekki upp að eiga við þá sem geta ráðið her endurskoðenda og lögfræðinga ti 1 að verja sig og eru j afnvel svo yfirþyrmandi öflugir að stofnanimar ráða ekkert við þá.“ Það versta sem getur gerst í réttarkerfi erþegar saklausireru dæmdir sekir. Þará eftir er þó fátt verra en réttarkerfi þar sem sumir geta keypt sigút úr stórfelldum lög- brotum þótt minni kallar séu húðstrýktir fyrir miklu vægari brot. Spillingarbælið etta mál hefúr ekki dregið upp glæsi- lega mynd af Islandi. Á aðra höndina er Island spillingarbæli þar sem fámenn- ur hópur peningamanna getur gert hvað sem þeir vilja og jafnvel stjómað al- menningsálitinu með því að eiga eigin áróðursmaskínur. Á hina höndina er Island spillingarbæli þar sem fárnenn pólitísk valdaklíka gerir það sem henni sýnist og fer með sameignir þjóðarinnar eins og henni hentar. Báðarþessar myndir stangast talsvert á við þá mynd sem hingað til hefúr verið dregin upp af Islandi sem ávallt er meðal siðprúðustu landa í alþjóðlegum könnunum og fyrirmynd annarra þjóðfé- laga hvað varðar jafnræði og réttlæti. Það hlýturþvíað veratalsverðurandlitsmissir ef önnur hvor spillingarmyndin reynist raunsannari lýsing en hvítþvegin ásjónan. Verst er náttúrulega ef ásakanimar á báða bóga em réttar en þá er ísland nær því að vera á við Nígeríu hvað spillingarmálin snertir. Það er vissulega „bomba“. 3

x

Vísbending

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.