Vísbending - 19.08.2005, Side 4
ISBENDING
^ Mynd 6. Samanburður á tœkjaeign í nokkrum löndum (% afheimilum)
island Bandarikin * O E c S •o s s u. ■o I ea Íft n Italía Holland c c i m « •o j2 ‘> </) Svlss -o c « I CQ
Sjónvarp 98 98 98 95 97 98 95 98 97 93 98
Pvottavél 92 90 74 88 88 96 89 67 72 78 88
Myndbandstæki 84 83 63 35 42 25 50 40 48 41 69
Örbylgjuofn 80 86 31 19 36 6 22 9 37 15 48
Tólva 80 40 3D 20 20 14 25 11 29 23 25
Purrkari 41 82 30 12 17 10 27 5 18 27 32
Uppþvottavét 56 53 36 32 34 18 11 11 31 32 11
(Framhald afsíðu 1)
Stórt húsnæði
Samkvæmt neyslukönnun Hagstof-
unnarbýr hin venjulega íslenska fjöl-
skylda í 118 fermetra húsnæði með fjórum
herbergjum. Meðalíjöldi i fjölskyldu er
2,6einstakIingarogþarafleiðandi erfer-
metraíjöldi húsnæðis á hvern Islending
um 45 fermetrar. Þetta eru mikil um-
skipti þegar torfbæimir sem Islendingar
bjuggu í við upphaf tuttugustu aldarinnar
eru skoðaðir. Þetta er líka heldur stærra
húsnæði en aðrir Evrópubúar eru vanir
fskv. skýrslu frá Heritage Foundation).
I Evrópu er meðaltalið 37 fermetrar og
meðalijölskyldan, sem er 2,5 einstak-
lingar, hefur 91 fermetra til ráðstöfunar.
Með öðmm orðum, íslenska ijölskyldan
hefur 30% meira pláss en meðalfjölskyld-
an í Evrópu og hver einstaklingur um
22% meira húsnæði.
í samanburði við Bandaríkjamenn
búa íslendingar hins vegar þröngt en
meðalijölskyldan þar, sem er 2,6 einstak-
lingar, hefúr 174 fermetra til ráðstöfunar
og hver einstaklingur þar með um 67
fermetra, sem er 49% stærra húsnæði en
hver íslendingur býr í. Fermetrafjöldi á
hvem íbúa á Islandi er engu síður mikill
og svipaður því sem gerist annars staðar
á Norðurlöndunum en í Danmörku er
stærðin um 52 fermetrar á hvem íbúa en
43 fermetrar í Svíþjóð miðað við tölur
frá árinu 2000.
Tækjaæði
Islenska þjóðin á mikið af tækjum
samkvæmt neyslukönnun Hagstof-
unnar. Næstum öll heimili hafa isskáp
(98,6%), sjónvarp (97,6%), heimilissíma
(92,4%) og þvottavél (91,8%) og bíll
(87%), myndbandstæki (84,4%), farsími
(84,6%), örbylgjuofn (80,1%) og tölva
(79,8%) eru einnig staðalbúnaður á heim-
ilum. Mikill meirihluti heimilahefureinn-
ig frystiskáp (66,8%) og uppþvottavél
(56,4%). Mynddiskaspilari (41,6%),
þurrkari (41%), leikjatölva (25,5%) og
myndbandsupptökuvélar (23,4%) eru
heldur ekki óalgengar á heimilum lands-
manna. Þessi tækjagleði heimilannaerþó
ekkert sjálfsögð enda minnir hún ólíkt
meira á bandarískheimili en evrópsk (sjá
mynd 6). Jafnvei hinNorðurlöndin standa
okkur talsvert að baki í tækjasöfnuninni
og fá lönd í heiminum nálgast íslendinga
í tölvueign. lslendingar eru greinilega
fljótir að tileinka sér nútímatækni og
þægindi á heimilum landsins.
Neysluþjóðin
Islendingar eru ríkir og þeim finnst
gaman að eyða peningum. Þjóðin býr
rúmt, ertækjaóð og neytirþess sem henni
finnst gott. 1 flestum tilvikum hefur hún
efni á þessum lífsstíl en það er þó spurn-
ing hvort hún geti viðhaldið honum tii
lengri tíma í ljósi þess hve skuldsetning
heimilanna er mikil. Þrátt fyrir stökkið
frá örbirgð til allsnægta virðist þjóðin þó
enn vera óseðjandi.
Myml 7. Stcerð meðalhúsnæðis á
mann í nokkrum löndum (fermetrar)
Sandarikin
Danmörk
Lúxemborg
island
Sviþjöð
Þýskaland
Evrópa
Finnland
Bretland
írtarvd
Portúgal
Vísbendingin
Efnisatriði ákærunnar á hendur
stjómendum Baugs voru sennilega
ekki eins alvarleg og margir óttast, og
aðrir vonuðust til. í versta falli sýna þau
að stjómendurnir eru stórir smákrimmar
en ekki stórglæpamenn. Ymislegt hefur
verið tínt til sem margir aðrir í íslensku
viðskiptalífierusennilegaeinnigsekirum.
Margt af þessu eru bölvaðir ósiðir í fyrir-
tækjarekstri og eiga þar ekki heima. Þetta
erþvígotttilefni íyriraðrastjómendurog
eigendur íslenskra fyrirtækja að hugsa
Vsinn gang._____________________________J
Litlir seppar
Grundvöllurinn undirrökfræði nútím-
ans er að ákveðnir hlutir séu svo
sannir að allir viðurkenni þá. Um þá þarf
ekki að rökræða. Þannig er það til dæmis
þannig öllum er ljóst að sólin kemurupp á
morgnana og sest á kvöldin. H in eðlilega
skýring á þessu er sú að sólin snúist i
kringum jörðina. Þegar lögð vom fram
rök um að þessi skýring væri röng voru
menn lengi að viðurkenna það. Skoðanir
manna á því hvað væri rétt i málinu fóru
saman við stjórnmálaskoðanir þeirra á
þeim tírna. Þeir sem trúðu í blindni á
forsjá kaþólsku kirkjunnar aðhylltust þá
kenningu að jörðin væri flöt og sólin sner-
ist í kringum hana. Rök skiptu ekki máli.
Kirkjan hafði útbreiddasta fjölmiðlanet
allratíma til þess að haldakenningu sinni
á lofti. A endanum voru það samt rökin
sem sigruðu og nýr sannleikur varð til.
Vegna þess hve langt vísindin hafa
náðhættirokkurtil að brosa að forfeðmm
okkar fyrir fávisku þeirra og heimsku.
En hefur margt breyst? Enn þann dag í
dag virðast menn geta leikið á almenn-
ingsálitið eins og fiðlu. í Bandaríkjun-
um er það svo að 80% svertingja telja
að O.J. Simpson hafi ekki drepið konu
sína, 90% hvítra telja að hann hafi gert
það. Göbbels, áróðursmálastjóri Hitlers,
sagði að ef lygin væri endurtekin nógu oft
yrði hún sannleikur. Auðvitað er ekki þar
með sagt að allur áróður sé lygi. Grund-
völlurinn undir heilbrigð skoðanaskipti
er að fjölmiðlar séu frjálsir og að þeir
fylgi ákveðnum grundvallarreglum. Þeg-
ar ekki er hægt að treysta ljölmiðlum
lengurerþjóðfélagiðíhættu. Samagildir
um stjómvöld. Það er mjög alvarlegt ef
stór hluti þjóðarinnar treystir ekki lög-
reglu og yfirvöldum. Alitaefni fara fyrir
dómstóla og dómstólar eiga að dæma
að lögum. Það eru ekki rök um sekt eða
sakleysi eins að annar kunni líka að hafa
brotið af sér. Maður sér í anda Franklín
Steiner segja lögreglunni: „Látið mig í
friði þangaðtil þiðeruðbúnirað rannsaka
söluna á ríkisbönkunum!" Menn verða
að bera ábyrgð á verkurn sínum og fara
að lögum. Allir hafa trú á héraðsdómi í
Baugsmálinu. Bíðum dóms hans. - bj
ý'Ritstjóri og ábyrgöarmaöur:
Eyþór Ivar Jónsson.
Útgefandi: Heimur hf., Borgartúni 23, 105
Reykjavík.
Sími: 512-7575. Myndsendir: 561-8646.
Netfang: visbending@talnakonnun.is.
Málfarsráðgjöf: Málvlsindastofnun Há-
skólans.
Prentun: Gutenberg. Uppiag: 700 eintök.
Öll réttindi áskilin. © Ritið má ekki afrita án
leyfis útgefanda.
4