Vísbending


Vísbending - 11.08.2006, Qupperneq 4

Vísbending - 11.08.2006, Qupperneq 4
V ISBENDING 90 dagar Fyrstu níutíu dagar nýs stjómanda fyrirtækis eru líklegir til þess að skipta sköpum um hvemig fram- haldið verður. Fyrstu þrír mánuðimir eru tími til þess að byrja upp á nýtt og gera þær nauðsynlegu breytingar sem þarf að gera. Þetta er mikilvægur tími fyrir stjómendur til að skapa tengsl innan fyrirtækisins og vinna fólk á sitt band. Talað er um að forseti Bandaríkjanna fái 100 daga til þess að sanna sig svo að ekki er til of mikil mælst að nýr formaður Framsóknai-flokksins sanni sig á 90 dögum eins og stjómendur fyrirtækja að þurfa jafnan að gera. Leiðarvísirinn Harvard-manninum Michael Watkins hefur tekist að skapa sér sérstöðu sem gúrúinn í umbreytingum tyrirtækja og fyrstu dögum stjómenda. Bók hans, The First 90 Days, er stundum kölluð biblía nýrra stjómenda. Bókin er ágætur leiðarvísir um hvað stjómendur þurfa að hafa í huga þegar þeir taka við nýju fyrir- tæki eða hafa verið færðir á toppinn úr stöðu millistjómenda. I meginatriðum setur Watkins fram tíu atriði sem eru gmnnur bókarinnar og hér á eftir verða þau sýnd (þó ekki í beinni þýðingu). Vertu reiðubúinn. Fyrstu níutíu dagamir marka ákveðinn áfanga þar sem stjórn- andinn á að hætta að vera kostnaður fyrir fyrirtækið og fara að skila því auknu virði. Stjómandinn þarf að skipta þessum níutíu dögum í styttri áfanga til að átla sig á hvemig förinni miðar. Áhinnbóginn þarf stjómand- inn að átta sig á nýjum aðstæðum og leggja áherslu á að sjá heildarmyndina en ekki einungis leggja áherslu á eigin styrkleika. Lœrðu hratt Það er ekki hægt að læra allt í einu heldur þarfí fyrsta lagi að forgangsraða því sem þarf að læra. I öðm lagi þarf að finna bestu leiðina tilþess að læraþað sem til þarf, finna þá sem geta gefið réttu upplýsingam- ar og veitt mikilvægt innsæi. Þetta snýst um að finna þekkingarauðlindimar innan og utan fyrirtækisins. 1 þriðja lagi þarf að tengj a lærdómsferlið inn áheildaráætlunina þannig að hver áfangi sé skýr. Tengilu stöðu og stefnu. Nauðsynlegt er að skilja stöðuna sem fyrirtækið er í áður en stefhan er ákveðin. Þetta snýst um að skilgreina áskoranimar og tækifærin sem fyrirtækið stendur ffarnmi fyrir og móta aðgerðaáætlun um hvemig á að takast á við þessa þætti. Tiyggðu sigra sein fyrst. Að vinna sigra fljótt og ömgglega skapar stemmingu innan fyrirtækisins og trú á að nýr maður geti í raun skapað fyrirtækinu framtíð. Fyrstu þrjátíu dagamir ganga út á að skapa trúverðugleika, næstu sextíu að bæta árangurinn. Annars vegar þarf langtímamarkmið og hins vegar skammtímamarkmið senr hægt er að ná og fagna áður en um of langt líður. Senuiu uin sigra. Leiðtoginn þarf að vera sammála eigendum, stjómendum eða stjóm um hver staðan er og hver árangurinn getur orðið á fyrstu þremur mánuðum, sem og í framtíðinni, og komast að samkomulagi þar um. Um leið þarf að ákveða með hvaða hætti samskiptin eiga að vera. Mótaðu fyrirtœkið. Það þarf að móta stefhu, skipulag og kerfi sem taka mið af hæfileikum og menningu fyrirtækisins. Það þarf að finna hverju þarf að breyta og bæta og hvar þarf að byrja að byggja upp hið nýja fyrirtæki. Byggðu upp hópinn. Það þarf krafta alls hópsins sem stýrir fyrirtækinu til að breyta því og þess vegna er nauðsynlegt að by ggj a upp traustan hóp fólks til að leiða það áffam. Þá þarf að ákveða hverjir eiga að vera í hópnum og hverjir ekki og hvemig á að hvetja þá og meta. Tryggðu samstöðu. Það þarfað nátil þeirra sem hafa áhrif í fyrirtækinu og fá þá til að vinna í takt við breytingamar með því að sannfæra þá um ágæti þeirra. Þetta snýst um að skilja innri tengsl í fyrirtækinu, hverjir em lykilaðilar og i hverju áhrif þeirra em fólgin, og nýta sér það. Haltujafnvœgi. Það er erfitt að halda utan urn margþætt verkefni og þess vegna þarf stjómandinn að einbeita sér að því sem virkar, tileinka sér aga og korna sér upp ráðgjafaneti. Það þarf að meta stöðuna reglulega með hjálp ólíkra ráðgjafa til að koma í veg fyrir einangrun stjómandans. Hvettu liðsheilílina og leikmennina. Það er nauðsynlegt að hj álpa einstaklingum og hópum að ná tilskildum árangri með því að hvetja þá og verðlauna, mæla og meta árangur og setja fyrir nýjar áskoranir. Oft snýst þetta um að gefa fólki ábyrgð. Arangur er skilyrði rír mánuðir eru stuttur tími en upphafið er yfirleitt ávísun á framhaldið svo að það er mikilvægt að vel takist til á þessu tímabili. Aðþremurmánuðum liðnum eiga áhrifnýs stjórnanda að vera farinn að skila sér og árangur á að vera farinn að sjást. Ef stjómandanum hefur ekki tekist að gera breytingar á fyrstu þremur mánuðunum mun honum að öllum líkindum ekki takast að gera neinar breytingar yfir höfuð, þ.e. hann ræður ekki við verkefnið. Flokks- menn Framsóknaiflokksins ættu því að gera sér grein fyrir því að ef ekkert hefur gerst í flokknum þegar komið er fram í desember hafa þeir ekki valið sér fomiann sem telst óskoraður leiðtogi. Aðrir sálmar V___________________________________> Tölum um staðreyndir Skattar og tekjur em aðalumræðuefni manna þessa dagana. Fátt skiptir meira máli en að skattkerfið hvetji fólk til þess að vinna sér sem mest inn og svíkja ekki undan skatti. Því miður virðist umræðan alveg á skjön við þessi grundvallarsjónarmið. I nýlegri grein í Vísbendingu komu fram útreikningar sem bentu til þess að launatekjur skiptist álíka jafnt milli manna nú og verið hefur und- anfarinn áratug. Þessi niðurstaða kom undirrituðum á óvart því að hún er þvert á það sem allir virðasttelja. Miðað var við tölur frá ríkisskattstjóra og launatekjur fyrir skatta. I sömu grein er jafnframt reiknaður út G ini-stuðull fyrir fj ármagns- tekjur. Hann hefur stórhækkað á sama tíma. 1 báðum tilvikum var stuðullinn reiknaður fyrir hjón. Á sama tíma heldur áfram umræða í þjóðfélaginu þar sem vitnað er i niðurstöður fræðimanna um að ójöfnuðurinn í launum aukist stöðugt. Einhver kynni að telja að niðurstöður stangist á, en svo er ekki. Nú geta fræði- menn auðvitað ekki stýrt því hvernig menn skilja niðurstöður þeirra, en svo vel vill til að ég fékk upplýsingar um að þar væri verið að tala um ráðstöf- unartekjur, launa- og ijármagnstekjur samanlagðar, eftir skatta. Þetta stenst vel, en það eru fjármagnstekjurnar sem fara á færri hendur nú en fyrir áratug. Vísbendingargreinin sýndi að launa- tekjur í öllum hópum hafa aukist um rúmlega 50% að raunvirði á áratugnum. Fjármagnstekjur hafa líka aukist í öllum hópum. Þær hafa rúmlega þrefaldast hjá þeim sem rninnst hafa en nærri tutt- ugu- og fimmfaldast hjá þeim sem fá mest. Hagur allra hópa hefur því vænkast mikið. Oréttlætið virðist vera að sumir hafa fengið mun meiraen aðrir. Þeir sem mest fá eru jafnframt þeir sem auðveld- ast eiga með það að færa skattaheimili sitt úr landi. Sumir hafa þegar gert það, eflaust meðal annars vegna þess að þeim er sti 1 It upp sem sakamönnum fyrir að fá góðar tekjur. Stjómmálamenn og fleiri vilja setja á hátekjuskatt að nýju. Mun brýnna er að lækka skattprósentuna til þess að sem flestir tekjuháir vilji borga skatta á Islandi. - bj V J f ^itstjóri og ábyrgöarmaöur: Á Eyþór Ivar Jónsson. Útgefandi: Heimur hf., Borgartúni 23, 105 Reykjavík. Sími: 512-7575. Myndsendir: 561-8646. Netfang: visbending@talnakonnun.is. Málfarsráðgjöf: Málvísindastofnun Há- skólans. Prentun: Gutenberg. Upplag: 700 eintök. Öll réttindi áskilin. © Ritið má ekki afrita án leyfis útgefanda._________________ 4

x

Vísbending

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.