Frjáls verslun - 01.02.1958, Page 2
Ávarpsorð fil iesenda Frjálsrar Yerzlunar
Gunnar GuSjónsson,
jorm. Verzlunarráðs Islands:
Þegar nú „Frjáls Versl-
un“ heíur göngu sína
á ný eftir nokkurra ára
hvíld, efa jeg ekki, að sá
atburður ' sje gjörvallri
verslunarstjettinni, sem
og öðrum unnendum
frjálsra þjóðfjelagshátta,
jafn mikið gleðiefni og
mjer.
Það er kunnara en frá
þurfi að segja, að mikið hefir skort á, að versl-
unarstjettin almennt hafi staðið eins þjett sam-
an, og henni bæri, ef hún þekti sinn vitjunar-
tíma. Innan hennar hafa bæði einstaklingar og
hópar viljað róa einir á báti og í ýmsar áttir.
Hún hefir ekki virst vilja eða geta gert sjer
grein fyrir, að í þeirri hríð, sem að henni hefir
verið gjörð á undanförnum árum af þeim fjand-
samlegu öflum, sem ekki aðeins vilja hana feiga,
heldur og alt frelsi borgaranna, er allur útúr-
boruskapur heimska og skammsýni, sem auð-
veldlega getur falið í sjer tortímingu hennar.
Frelsi verslunarinnar varð því aðeins höndlað,
að fyrir því væri barist, og áframhaldandi mun-
um vjer ekki verða þess aðnjótandi, nema þeirri
baráttu verði haldið áfram sleitulaust og enda-
laust. f slíkri baráttu tjóar ekki að fylkingarnar
riðlist. Stundargrið veitt sumum, vara í hæsta
lagi meðan verið er að ráða niðurlögum annara.
Með útkomu þessa fyrsta heftis hinnar endur-
vöktu „Frjálsu Verslunar“, er það hins vegar
von mín, að þáttaski) hafi orðið í viðhorfi versl-
unarstjettarinnar til nauðsynjar sameiginlegra
átaka fyrir því lífsviðhorfi, sem hið fyllsta versl-
unar- og athafnafrelsi byggist á, þar sem að út-
gáfu tímaritsins hafa skipað sjer öll samtök
innan hinnar frjálsu verslunar í landinu, sem
og iðnrekenda. Vonandi verður því tímaritið
ekki aðeins sameiningartákn þessara aðilja, lield-
ur og sá hlekkur, sem á eftir að tengja þá saman
til varanlegs, trausts samstarfs.
Flestum lesendum íslenskra blaða mun nú
algjörlega vera farið að ofbjóða siðleysi mikils
hluta hinnar pólitísku blaðamensku hjer á landi,
og munu líta svo á, eins og raunar virðist nú
vera komið á daginn, að almenningur ljái frekar
eyra heiðarlegum og háttvísum málflutningi, en
vísvitandi rangfærslum, rógi og tækifærissinn-
uðum áróðri.
Jeg óska „Frjálsri Verslun“ fararheilla, í full-
vissu þess, að henni muni takast vel það þýð-
ingarmikla hlutverk, að skýra málstað frjáls at-
hafnalífs fyrir þjóðinni, og vera vígreif í barátt-
unni fyrir því, sem vjer teljum best og rjettast.
==SSf==
Guðmundur H. GarSarsson,
jorm. Verzlunarmannajélags Reykjavíkur:
Með útgáfu þessa heft-
is af „Frjálsri Verzlun“,
hefst nýtt tímabil í sögu
ritsins. Við þessi tímamót
er Verzlunarmannafélagi
Reykjavíkur sérstaklega
ljúft að árna ritinu og út-
gáfufélagi þess allra heilla
, framtíðarbaráttunni fyr-
ir frjálsu athafnalífi á ís-
landi.
Ritið „Frjáls Verzlun“ hóf göngu sína í upp-
hafi ársins 1939 og var það gefið út af Verzlunar-
mannafélagi Reykjavíkur til ársins 1955. Það ár
var mikið umbrotaár í sögu félagsins og mark-
aði tímamót í samskiptum vinnuveitenda og
launþega, en til þess tima höfðu þeir aðilar báðir
átt hlut að félaginu. Verzlunarmannafélag
Reykjavíkur varð að hreinu launþegafélagi á
því ári. Við það áttu sér stað miklar breytingar
á högum þess og höfðu þær m. a. áhrif á útgáfu
„Frjálsrar Verzlunar“.
Með tilliti til sögulegs uppruna ritsins og þess
2
FRJÁLSverzlun