Frjáls verslun - 01.04.1959, Side 1
FRJALS VERZLUN
Bílamarkaðurinn
(Fylgirit)
----♦----
Um bíla og bílaviðgerðir
Brátt er liðin hálf öld síðan fyrsta bifreiðin
fluttist til landsins. Á þeim tíma, sem liðin er
frá þessum merkisatburði í samgöngumálum
þjóðarinnar, hefur reynslan orðið sú, að bílarnir
eru og munu verða framtíðarfarartæki okkar á
landi. Það mun vera fátt sem jafn margir óska
sér að eignast eins og bifreið. Engan þarf því
að undra, þótt áhugi manna hér á landi snúist
almennt um bíla, þar sem þeir eru snar þáttur
í öllu daglegu lífi þjóðarinnar.
Með aukinni velmegun íslenzku þjóðarinnar
hefur bifreiðaeign almennings farið ört vaxandi
og má segja, að tilkoma bifreiðarinnar hér á
landi hafi valdið gjörbyltingu, ekki aðeins 1
samgöngumálum þjóðarinnar, heldur og einnig
í lífi fjölskyldna og einstaklinga, sem nú geta
ferðazt um landið þvert og endilangt í eigin
bifreiðum.
Um bifreiðir, innflutning þeirra og annað, er
máli skiptir í því sambandi, hefur mikið verið
rætt og ritað á undanförnum árum. FRJÁLS
VERZLUN birti t. d. árið 1954 í sérstöku fylgi-
riti, er nefndist Bílamarkaðurinnj ýmsar upp-
lýsingar varðandi bíla, gerðir þeirra, verð og
útbúnað, almenningi til gagns og leiðbeiningar.
Fram til ársins 1939 var heildarbifreiðaeign
landsmanna kringum 2150 bifreiðir. í árslok 1944
var tala bifreiða í landinu 4005 en á sama tíma
1953 var hún 11.216. Skiptust fólksbifreiðarnar
það ár milli 82 tegunda, en vörubifreiðarnar
milli 80 tegunda. Um síðustu áramót, 1958—59,
var heildarbifreiðaeign landsmanna hins vegar
komin upp í ca. 19 þúsund bifreiðir, og hefur
bifreiðaeign landsmanna þannig nær tífaldast á
síðustu 20 árum.
í byrjun síðustu styrjaldar voru starfandi hér
á landi aðeins fá bifreiðaverkstæði og tækniút-
búnaður þeirra var þá mjög frumstæður sem
og tækniþekkingin. Þótt tuttugu ár séu liðin síð-
an bifreiðaeign landsmanna fór að vaxa svo ört,
sem raun ber vitni, er langt frá að tækniþekk-
ing og þróun hér á landi hafi haldizt í hendur
við aukningu bifreiðaeignarinnar. Af þeim sök-
um hafa þeir, sem um viðhald bifreiðanna sjá,
þ. e. bifreiðaverkstæðin, átt við ýmis konar
vandamál að etja. Því hefur verið haldið fram
með nokkrum rétti, að þjónusta bifreiðaverk-
stæðanna væri ekki eins góð og möguleikar væru
á, en í því sambandi er rétt að benda á eftir-
farandi staðreyndir máli bifreiðaverkstæðanna
til áréttingar:
1. Stórkostlegar stökkbreytingar hafa orðið á
tiltölulega fáum árum í sambandi við bif-
reiðaeign landsmanna, notkun þeirra og teg-
undafjölda.
2. Tækniþróun í bifreiðum hefur orðið geysi-
lega ör á undanförnum árum, og má segja,
að með hverju ári hafi komið fram ýmsar
FRJÁLS VERZLUN — Bílamarkaðurinn