Frjáls verslun - 01.12.1981, Qupperneq 9
„Betra kerfi hlýtur að vera til
11
Rýmkunin á reglum um
opnunartíma sölubúöa hef-
ur mælst misjafnlega fyrir og
mun það samdóma álit
þeirra er aö reglunum
standa að fyrirkomulagið sé
ekki eins og best verður á
kosið.
Nýju reglurnar, það er að
segja að fá að hafa opið á
laugardögum, tóku gildi í
septemberbyrjun. Þurfa
kaupmenn að sækja sér-
staklega um leyfi til að fá að
hafa opið til nefndar, sem í
eiga sæti þrír fulltrúar, einn
frá Kaupmannasamtökun-
um, annar frá VR og sá þriðji
frá borginni. Nefndin getur
svo veitt leyfi tveimur versl-
unum í sömu grein.
„Þetta fór hægt af stað,"
sagði Ölafur Jónsson, einn
nefndarmanna, ,,en um-
sóknum hefur þó fjölgað
stöðugt. Þrátt fyrir það hafa
komið í Ijós ýmsir annmark-
ar á þessu fyrirkomulagi,
það er mjög dýrt að hafa
opið þessa daga og því er
þetta mun heppilegra fyrir
stærri verslanirnar, þar sem
vöruúrvalið er meira."
Ólafursagði, að það hefði
nokkuð brugðið við, að
verslanir hefðu opið í leyfis-
leysi. Lögreglan hefði þá
þurft að hafa afskipti af þeim
verslunum og setti það
óneitanlega svartan blett á
fyrirkomulagið.
Blómaverslanir eru
margar hverjar orðnar
hálfgerðar gjafavöruversl-
anir og hafa opið til klukkan
22 öll kvöld. Hefur það ekki
mælst vel fyrir af öðrum
kaupmönnum. Sagði Ólafur,
að um þær hefði lítið verið
rætt i nefndinni, enda væri
komin hefð á þær.
„Annars hlýtur að vera til
betra kerfi um opnunartíma
verslana, við erum langt frá
því að vera ánægðir með
þetta eins og það er, enda er
skömmtun af öllu tagi heldur
hvimleið," sagði Ólafur
Jónsson.
Helgason. Fyrsta „Nestið"
var Nesti í Fossvogi og var
það fyrsta fyrirtæki sinnar
tegundar á Islandi. Ári síðar
opnuðu þau Nesti við Ell-
iðaár. Árið 1971 var svo
opnuð bifreiðaveitingastof-
an Nesti á Ártúnshöfða,
sunnan Vesturlandsvegar
og 1977 Smurbrauðsstofa í
Austurveri við Háaleitis-
braut.
( þessi 25 ár hefur Nesti
hf. kappkostað að veita sem
besta þjónustu bæði ferða-
fólki og öðrum vegfarend-
um. Hefur þjónusta fyrir-
tækisins sérstaklega ’mælst
vel fyrir hjá bifreiðastjórum
stærri atvinnutækja, og
vonast forráðamenn
Nestis hf. til þess, að nýi
staðurinn þjóni ferðafólki
betur, en Nesti við Elliðaár
hefur getað gert nú seinni'
ár.
Tekjur af Skyggni langt
umfram áætlun
Tekjur af talsambandi við
útlönd eftir að samband um
Skyggni og sjálfval var tekiö
upp hafa farið 46.6 prósent-
um fram úráætlun.
Að sögn Gústafs Arnar
verkfræðings hjá Pósti og
síma var gert ráð fyrir í
kostnaðaráætlun frá maí
1980, að tekjur fyrstu tíu
mánuði ársins 1981 yrðu
26.850 milljónir króna, en
hafa farið langt fram úr
áætlun. Til dæmis hafa
umfram símtöl til Frakklands
og Þýskalands verið 80
prósent fleiri fyrri hluta
ársins ’81, en gert var ráð
fyrir, 50 til 60 prósent til Sví-
þjóðar og Danmerkur og um
30 prósent til Noregs.
Breytingar á
stjórn IBM
Nokkrar breytingar hafa
nýlega orðið í röðum hinna
ýmsu stjórnenda hjá IBM á
Islandi að undanförnu. Jón
V. Karlsson, sem verið hefur
framkvæmdastjóri kerfis-
fræðisviðs, er nú í eins árs
starfsþjálfun hjá IBM í Dan-
mörku og tók Gunnar M.
Hansson, framkvæmda-
stjóri sölusviðs við starfi
hans. Þá hefur Guðmundur
Hannesson tekið vió nýrri
stöðu deildarstjóra kerfis-
fræðideildar meö ábyrgð á
kerfisfræðiþjónustu DP
véla, eða hinna stærri tölva.
Jóhann Gunnarsson er tek-
inn við sínu fyrra starfi sem
framkvæmdastjóri tækni-
sviðs. Hann starfaði sl. þrjú
ár hjá aðalstöðvum IBM í
París viö umsjón rekstrar-
áætlana tæknisviðs. Hjörtur
Hjartarson, sem var stað-
gengill Jóhanns, er nú á
förum til Dubai þar sem
hann hefur verió ráðinn til 3
ára sem yfirmaður viðhalds-
þjónustu IBM við Persaflóa,
eins og við sögðum frá í
síðustu FV. Allt er þetta liður
í viðleitni IBM til að gefa
stjórnendum tækifæri til
aukinnar menntunar í
breyttu umhverfi og miðla
um leið þekkingu sinni
meðal erlendra starfsmanna
IBM. —
Sex erlend
leiguskip
Á vegum íslensku skipa-
félaganna eru nú sex erlend
leiguskip í förum. Ríkisskip
hefur á leigu strandferða-
skipið Vela, sem siglir á
áætlun innanlands. Eimskip
leigir tvö flutningaskip,
Junior Lotte og Charm, sem
bæði sigla til Bandaríkjanna
og Hafskip leigir þrjú flutn-
ingaskip Lynx, sem siglir til
Danmerkur og Svíþjóðar,
Berit til Finnlands og Gustav
Behrmann, sem siglir til
Bandaríkjanna.