Frjáls verslun - 01.12.1981, Blaðsíða 20
100 stærstu fyrirtæki 1980
Röð FYRIRJÆKI Heildar- Sl.tr. Meðal- Beinar Meðal-
(í svigum velta í vinnu- fjöldi launa- árslaun
röðin 1979) milljörðum vikur starfs- greiðslur í mill-
milljónir króna manna jónum kr.
91 ( 79) Hvalur h.f. 4.228 6622 127 1558 12.3
92 (102) Eggert Kristjánsson h.f. 4.228 1343 26 189 7.3
93 ( 94) Kaupfélag Svalbarðseyrar 4.166 3719 72 569 7.9
94 ( 88) Tangi h.f. Vopnafirði 4.148 6291 122 1053 8.7
95 (130) Frosti h.f. — Álftfirðingur h.f. Súð. 4.145 5464 105 1114 10.6
96 ( 91) Jón Loftsson h.f. — JL-húsið 4.100 2103 40 336 8.4
97 (135) Stálvík h.f. Garðabæ 4.000 5164 99 851 8.6
98 ( 67) Brimborg h.f. (Daihatsu) 3.978
99 (104) Árvakur h.f. (Morgunblaðið) 3.963 7947 153 1413 9.2
100 ( 93) Hampiðjan h.f. 3.918 10497 202 1194 5.9
Nokkrar „óeðlilegar
breytingar“
Því er ekki að leyna að nokkrar
„óeðlilegar breytingar" hafa orðið
á lista Frjálsrar verslunar yfir
stærstu fyrirtæki. Óeðlilegar
breytingar eru hér settar innan
gæsalappa vegna þess að þær
orka tvímælis samkvæmt þeim
reglum sem tímaritið hefur sett sér
við gerð listans. Breytingarnar
þurfa þó alls ekki að vera rangar
frá sjónarmiði eigenda eða for-
ráðamanna þessara fyrirtækja eöa
samkvæmt lögformlegrar stöðu
þeirra.
í fyrsta lagi er lagalegrar stöðu
fyrirtækis gætt. Ekki er þó algjör-
lega farið eftir því heldur nánar
farið ofan í hlutina. Sé formlegt
hlutafélag, sameignarfélag eða
sameignarfélag, svo ekki sé
minnst á einkafyrirtæki í nánu
rekstrarsamhengi og í meginhluta
eignarsamhengi við annað fyrir-
tæki þá eru þau talin saman nema
annars sé óskað. Þetta er megin-
regla við gerð lista yfir stærstu fyr-
irtæki. Eftir að farið er að raða fyr-
irtækjum eftir veltu hvers árs þá
kom í Ijós — og skiljanlega — að
forráðamenn fyrirtækja og einnig
þeir sem unnið hafa að lista yfir
stærstu fyrirtæki hafa ekki ávallt
sömu skoðun í þessu máli. Þeirri
reglu hefur þó verið fylgt strang-
lega, að ráðamenn fyrirtækja hafa
lokaorðið í málum þessum, þó svo
Ijóst sé að ,,lista“ smiðir séu ekki
ávallt sammála.
Að lokum verður að geta þess
að nokkurfyrirtæki á listanum hafa
skiptst eða sameinast af því sem
við getum kallað eðlilegum orsök-
um.
20