Frjáls verslun - 01.12.1981, Blaðsíða 51
( framleiðslusal Gllts. Bjarnhelður Bjamadóttlr og Guðný Ásgeirsdóttir (fjær) að störfum.
kaupin, þurfti mun fleira fólk aö
starfa hér. Jafnhliða umbótunum
höfum við því getað fækkað
starfsliði. Nú starfa hér þrír hönn-
uðir og leirkerasmiðir, þau Þór
Sveinsson, Eydís Lúðvíksdóttir og
Hulda Marísdóttir. Þá er hér einnig
Baldur Ásgeirsson, sem er sér-
fræðingur í mótagerð og mun
hann eini sérfræðingurinn á því
sviði hérlendis. Á skrifstofunni er
auk mín stúlka í hálfu starfi. Annað
starfsfólk vinnur aö framleiðsl-
unni. Velgengni fyrirtækisins
byggist meðal annars á því, að vió
erum með mjög duglegt starfsfólk,
sem getur unnið sjálfstætt."
„Fyrst og fremst
útflutningsfyrirtæki.“
Framleiðslu verksmiöjunnar er
skipt í þrennt. I fyrsta lagi er það
beinn útflutningur og eru helstu
útflutningslöndin Skandinavía,
Þýskaland og Tékkóslóvakía. I
öðru lagi er þaö óbeinn útflutn-
ingur, það er að segja það sem selt
ertil Keflavíkurflugvallar, Ramma-
geröarinnar og fleiri slíkra staða. í
þriðja lagi er það svo heimamark-
aðurinn. En hver þessara markaða
skyldi vera stærstur?
,,Þetta er nú orðið ósköp svipað,
en þó er kannski heimamarkaður-
inn ívið stærstur."
— Er einhver munur á vör-
unum, sem fara á erlendan mark-
að miðað við þann innlenda?
,,Já, þaö má segja, aö útflutn-
ingurinn sé meiri verksmiðjufram-
leiðsla. Þangað fara alls kyns
minjagripir, hlutir sem minna á ís-
land, svo sem hraunleirkerasmíð-
in.“
— Hver er velta fyrirtækisins?
„Veltan er um fimm milljónir."
— Það má segja, að Glit sé allt í
senn útflutningsfyrirtæki, iðnaðar-
fyrirtæki og verslunarfyrirtæki.
Hver þessara þátta er stærstur?
„Glit er fyrst og fremst útflutn-
ingsfyrirtæki. Framleiðsla okkar
hefur náð fótfestu á markaði er-
lendis og meiri hlutinn af fram-
leiðslunni er keyptur fyrir erlendan
gjaldeyri, svo við erum drjúgir við
að afla gjaldeyristekna fyrir land
og þjóð."
Guðný Ásgelrsdóttlr skreytir vasa með
hrauni.
51