Frjáls verslun - 01.12.1981, Side 59
fjármyndunar og fjárfestingar en
minni verðbólga og lægri nafn-
vextir. Hver vill ekki að þetta séu
orð að sönnu?
Meiri framleiðsla
eða verðbólga?
Röksemdafærslan fyrir hag-
stæðum áhrifum aðgerðanna
stendur og fellur með því hvort
skattalækkunin leiðir til aukinnar
framleiöslu eöa meiri verðbólgu.
Líkurnar fyrir framleiðsluaukningu
eru áreiðanlega meiri í Bandaríkj-
unum en í ríkjum sem háð eru
miklum innflutningi. Þar myndi
talsvert af aukinni eftirsþurn bein-
ast að innfluttum vörum og þjón-
ustu og þar með auka framleiðslu í
öðrum löndum. í Bandaríkjunum
er einnig hefð fyrir almennri hluta-
fjáreign almennings. Síðast en
ekki síst ríður á traustri stjórn
efnahagsmála í þó nokkur ár, því
að hvort tveggja er að það tekur
tíma að auka afkastagetu og hætt
er við að aukinn kaupmáttur leiði
til verðhækkana og kauphækkana
og þar með verðbólgu sem dragi
úr framleiðsluaukningu. Er ekki
ólíklegt að stjórn Reagans hafi
m.a. tekið ólöglegu verkfalli flug-
umferðarstjóra föstum tökum til að
sýna hve ákveðin hún er í því að
láta ekki spilla fyrir áhrifum að-
gerðanna með óhóflegum kaup-
kröfum. Þá er mikilvægt að fyrir-
hugaður niðurskurður ríkisút-
gjalda takist. Ella verður verulegur
halli á fjárlögum, sem valda mun
þenslu. Athyglisvert er að í fræði-
legri útlistun fyrir þingmönnum er
ekki minnst á útgjaldahliðina. Á
áreiðanlega eftir að heyrast rama
kvein víöa þegar seglin verða
dregin saman á ýmsum sviðum fé-
lagsmála og heilbrigðismála.
Samkvæmt fræðunum er að
öðru jöfnu unnt að auka fram-
leiðslu og þar með fjölga vinnandi
fólki án verðbólgu, þegar afkasta-
geta er vannýtt. Á sama hátt er
talið að skattalækkun leiði til
verðbólgu, þegar ekki er unnt að
sinna aukinni eftirspurn með meiri
framleiðslu, þ.e. fleiri krónur
keppa um sama magn og áöur.
Þetta gildir einnig þótt í minna
mæli sé þegar skattar og útgjöld
eru lækkuð um sömu upphæð á
fjárlögum (t.d. ef fjárlög eru halla-
laus fyrir og eftir lækkun). Ástæð-
an er sú að einstaklingar (og fyrir-
tæki) eyða ekki öllu strax heldur
spara hluta af því sem ella hefði
farið í skatt og ríkið eytt strax.
Peningamagn
og vextir
Til þess að dæmið gangi upp
verður að sjá til þess að peninga-
framboð verði í samræmi við
framleiðslumarkmið. Því er stefnt
aö því að draga úr peningamagni
og reiknað með hærri veltuhraða
peninga. Reyndar eru hagfræð-
ingar komnir í hár saman út af því,
hvort hinir háu vextir sem nú ríkja
hamli gegn fjárfestingu og fram-
leiðsluaukningu eða ekki. Sumum
hefur jafnvel dottið í hug að fara
aftur yfir á gullmyntfót, þ.e. að
gulltryggja dollarann til þess að
undirstrika styrkleika hans og hafa
þannig áhrif á eftirvæntingar um
stöðu hans í framtíðinni.
Afnám hafta
Ýmsir fylgismenn Reagans telja
að hið oþinbera hafi á undanförn-
um áratugum komið á alls konar
dýru eftirliti með varningi og þjón-
ustu, svo sem varðandi hollustu-
hætti, mengunarvarnir og gæði.
Hafi þetta valdið hinu opinbera og
fyrirtækjunum kostnaðarauka,
sem neytendur verða að greiða
fyrir beint og óbeint. Með afnámi
reglugerða á þessu sviði yrði eftir-
litið fært í hendur neytenda sjálfra,
sem sé heillavænlegast til lengdar.
Skattvísitala
Reiknaö hafði verið út að skatt-
greiðslur almennings myndu auk-
ast um 21% á næstu þremur árum
vegna vaxandi verðbólgu, ef
skattstigar voru óbreyttir. Þetta er
vegna þess að Bandaríkjamenn
hafa ekki beitt skattvísitölu á sama
hátt og (slendingar, þ.e. að leið-
rétta skattstiga, skattfrádrætti og
skattafslætti fyrir verðbólgu ár-
lega. Erum við á undan öðrum í
þessum efnum. I sumum kennslu-
bókum er rætt um þetta sem
fræðilegan möguleika! Svíar t.d.
fóru að beita skattvísitölu fyrir ein-
ungis tveimur árum.
í lokaumræðum í bandaríska
þinginu var skotið inn ákvæði um
að tekið skyldi tillit til verðlagsþró-
unar við skattgreiðslur til ríkisins.
Þetta kemur þó ekki til fram-
kvæmda fyrr en 1985, þegar 25%
skattalækkunin hefur runnið sitt
skeiö.
Hvernig fer?
í því umróti sem verið hefur í
heiminum síðan um 1968 hafa
hagfræðingar orðið að hugsa upp
á nýtt. Nú kemur allt í einu maður
sem beitir gömlum aðferðum í nýj-
um heimi.
Árangurinn fer mikið eftir því
hvort honum verður treyst til þess
að standa við orö sín og gefa ekki
eftir fyrir öllum þrýstihópunum.
Leikir sem lærðir um allan heim
bíða spenntir eftir því að sjá
hvernig fer. Elsti forsetinn hefur
sett höfuð sitt að veði fyrir áhrifum
sem taka langan tíma að koma í
Ijós.