Frjáls verslun - 01.07.1994, Blaðsíða 28
MANNAMOT
Helgi K. Hjálmsson forstjóri Tollvörugeymslunn-
ar hf. og Arni Pétur Jónsson framkvæmdastjóri
Zimsen.
Hörður Sigurgestsson forstjóri Eimskips, Indriði Pálsson,
stjórnarformaður Eimskips og Vilhjálmur Fenger, varafor-
maður TVG og framkvæmdastjóri Nathan & Olsen hf.
Arngeir Lúðvíksson, forstöðumaður flugfraktar Flugleiða,
Ævar Guðmundsson, stjórnarmaður TVG og framkvæmda-
stjóri Seifs hf., Edward Skúlason, framkvæmdastjóri V.B. um-
boðsins, og Bragi Ragnarsson, frkvstj. Hafnarbakka.
Þórður Magnússon, stjórnarformaður TVG, og
Jónas A. Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður.
JES ZIMSEN FAGNAR FLUTNINGI
Skipaafgreiðsla Jes Zimsen hf.
hefur flust yfir í húsakynni Tollvöru-
geymslunnar við Héðinsgötu 1-3 í
Reykjavík. Haldið var upp á flutn-
ingana hinn 1. september síðastlið-
inn. Zimsen sérhæfir sig í flutnings-
miðlun og tengdri þjónustu fyrir inn-
og útflytjendur.
Nýja húsnæðið hentar starfsemi
Zimsen vel. Auk Zimsen eru þar úti-
bú Landsbanka íslands, útibú Tolls-
ins, Tollvörugeymslan hf., skrif-
stofa fragktdeildar Bíugleiða. Þá er
vöruafgreiðsla Flugleiða á svæðinu.
Zimsen getur nú boðið viðskiptavin-
um sínum upp á bætta þjónustu þar
sem geysilegur tímaspamaður og
hagræðing felst í því að hafa alla þessa
aðila á sama stað.
Að sögn Ama Péturs Jónssonar,
framkvæmdastjóra Zimsen, má rekja
sögu fyrirtækisins allt aftur til ársins
1894 og hefur starfsemin þróast á
þessum 100 árum frá því að annast
afgreiðslu kaupskipa, sem sigldu til
landsins, yfir í almenna nútíma flutn-
ingsmiðlun fyrir inn- og útflytjendur.
„Eftir að hafa velt fyrir mér nýrri
staðsetningu komst ég að raun um að
þessi staður væri sá hentugasti fyrir
okkur og viðskiptavini okkar,“ segir
Arni Pétur. „Fyrir utan þægindin við
að hafa alla þessa starfsemi á sama
stað er aðkoma hér mjög auðveld og
nóg af bílastæðum."
Helstu starfsþættir Zimsen eru
safnsendingar með flugi, hraðsend-
ingar í samvinnu við United Parcel
Service (UPS) og tollskýrslugerð.
„Safnsendingarnar ganga út á það að
safnstöðvar víðsvegar um heiminn
safna saman vörum frá innflytjendum
sem síðan eru fluttar til landsins sem
ein sending með flugi í samvinnu við
Flugleiðir. Með safnsendingum getur
náðst allt að 40% lækkun á flutnings-
kostnaði.
Tíðni safnsendinga frá Bandaríkj-
unum, Bretlandi, meginlandi Evrópu
og Norðurlöndunum er frá 3-5 ferð-
J
A
TEXTI: SÓLVEIG BALDURSDÓTTIR MYNDIR: KRISTJÁN EINARSSON
26