Frjáls verslun - 01.07.1994, Page 45
milli eiginfjár og heildarfjármagns
fyrirtækis. Það endurspeglar gjald-
hæfni þess og fjárhagsstöðu. Þetta
hlutfall lækkar skarpt auki fyrirtæki
skuldir sínar hratt.
VELTUFJÁRHLUTFALL
Veltufjárhlutfallið sýnir hlutfallið á
milli veltufjármuna og skammtíma-
skulda. Algeng þumalputtaregla er að
hafa þetta hlutfall í kringum 1,0. Að
veltufé nemi svipaðri fjárhæð og
skammtímaskuldir. Veltufjárhlutfall,
sem er lægra en 1,0, gefur til kynna
að grípa þurfi til sérstakra aðgerða til
að greiða tilfallandi skammtímaskuld-
ir.
ÁRSVERK OG BEIN LAUN
Fjöldi ársverka merkir stöðugildi
hjá fyrirtækjum. Oft fer fjöldi árs-
verka saman við fjölda starfsmanna.
Sé munur stafar það af því að fyrir-
tækið er með margt fólk í hlutastarfi.
Dæmi: Símavarsla er eitt ársverk í
fyrirtæki. Tveir starfsmenn í hálfs-
dagsstarfi kunna hins vegar að sinna
því, annar fyrir hádegi og hinn eftir
hádegi.
Annað dæmi: Fyrirtæki ræður 40
starfsmenn til viðbótar í 3 mánuði yfir
sumarið til að mæta sumarleyfum
fastra starfsmanna. Það gerir 10 árs-
verk. Annars þarf að draga laun sum-
armanna frá heildarlaununum.
Athugið að aðkeypt vinna verktaka
er hvorki talin með í ársverkum fyrir-
tækis né í beinum launagreiðslum til
starfsmanna sem eru á bak við árs-
verkin.
Orlofsgreiðslur á eftirvinnu fast-
ráðinna starfsmanna og allar orlofs-
greiðslur til lausráðinna teljast til
beinna launa. Athugið að launatengd
gjöld eru að öðru leyti alls ekki inni í
tölum okkar um bein laun.
MEÐALLAUN
Meðallaun eru meðallaun á árs-
verk. Útkoman sýnir meðallaunin í
fyrirtækinu. Ef meðallaun allra fyrir-
tækja eru lögð saman sést hvað hvert
fyrirtæki greiðir að jafnaði há meðal-
laun. Meðallaun allra starfsmanna
fást hins vegar með því að leggja sam-
an bein laun og deila í þá tölu með
samanlögðum fjölda ársverka.
Sl kjalaskápar J
Margar stærðir og gerðir
9*
GÆÐI og ÖRYGGI
BEDCO&
MATHIESEN HF
Bæjarhrauni 10, Hafnarfirði. Sími 9 I -65 1000.
EF ÞÚ ÁTT
AÐ STÝRA FUNDI
HÖFUM VIÐ ALLT
SEM TIL ÞARF.
INTER GRAND HOTELS & RESORTS
Hvernig líst þér á að slaka á
í Bláa lóninu eftir erfiðan fundar-
dag? Og eiga síðan ánægjulegt §
kvöld á fimm stjörnu veitingastað*.
FLUG HÓTEL er fyrsta flokks
hótel í næsta nágrenni við flug-
völlinn. Þar er fullkomin aðstaða
til ráðstefnu og funda fyrir allt að
70 manns. Á hótelinu eru 39 vel
búin herbergi og 3 svítur.
Auk þess er í húsinu bílaleiga,
banki og bílageymsla.
Þeir sem koma fljúgandi fá
ókeypis akstur til og frá flugvelli.
FLUG HÓTEL kemur þægilega
á óvart.
HAFNARGATA 57
230 KEFLAVÍK
SÍMI: (92) 15 222
FAX: (92) 15 223
‘ Cosmopilitan Traveller 12/93
43