Fregnir - 01.11.1980, Page 2

Fregnir - 01.11.1980, Page 2
-2- VI. LANDSFUNPUR BÓKAVARÐAFÉIAGSINS Dagana 4.-6. september 1980 var haldinn í Norræna húsinu í Reykjavík 6. landsfundur Bókavarðafélags íslands. Lands- fundir, sem haldnir eru annað hvortr ár, eru vettvangur, þar sem bókavörðum víðs vegar af landinu gefst kostur á að kynnast og skeggræða það., sem efst ;er á baugi í bókasafns- málum. Yfirskrift fundarins var "Bókasafnið er upplýsinga- miðstöð", oq mðrkuðust umræður af því. Alls sóttu- fundinn um 73 bókaverðir og sveitarstjórnarmenn, en áuk þess var unokkúð um, að bókaverðir litu inn og hlýddu á einstaka dagskrárliði. í tengslum við landsfundinn var haldið námskeið í Lög- bergi, húsi lagadeildar Háskóla Islands, dagana 1.-4. sept. Mánudaginn 1. sept. var fjallað um skipulagningu safnkosts, og hafði Margrét Geirsdóttir veg og vanda af því, en henni til aðstoðar voru I>órdís Þorvaldsdóttir og t>óra Hólm. Kvöld- vaka var svo haldin í sal Trésmiðafélags Reykjavikur, og var þar glatt á hjalla. 2.-4. sept. hélt Greta Renborg lektor við Bibliotekshögskolan i BorSs fyrirlestra um almannatengsl bókasafna og stjórnaði hópvinnu. 31 bókavörður sótti nám- skeiðið, og var almenn ánægja rikjandi með árangurinn. Sjálfur landsfundurinn var settur að kvöldi 4. sept. i .kjallara Norræna hússins, en þar hafði m.a. verið komið upp sýningu frá Þjónustumiðstöð bókasafnai Danmörku á ýmiss konar búnaði íyrir bókasöfn. Forseti íslands frú Vigdis Finnbogadóttir sýndi bókavörðum þá vinsemd að vera við setningu landsfundar og flytja ávarp. Að setningu lokinni var kynningarkyöld fyrir þátttakendur i kaffistofu Norræna hússins. Aðalfundur Bókavarðafélags íslands var haldinn að morgni 5. sept. Bryddað var upp á ýmsum málum, en timinn reyndist þvi miður svo naumur, að varla vai? hægt að gera nokkru efni viðhlitandi skil. Stjórn félagsins ér óbreytt. Eftir aðalfundinn kynntu þau Willy Rolst og Eva Wúrzt Þjónustu- miðstöð bókasafga ÍDanmörku og gengu með landsfundar- gestum um sýningu Þjónustumiðstöðvarinnaf i kjallara Norræna hússins. Eftir hádegi voru flutt erindi téngd yfirskrift fundarins. Lektorarnir Greta Renborg og Andras Jablonkay töluðu um almenna upplýsingamiðlun. Helgi Bernódusson bókavörður

x

Fregnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.