Fregnir - 01.11.1980, Side 6
-6-
kennsla í bókasafnsfræði VIð h.í.
<
Nýr lektor i bókasafnsfraeði
I september s.l. var settur nýr lektor í bókasafnsfræði.
Er það Andras Jablonkay sem hingað kom sem gistilektor 1979
og hefur kennt hérna siðan. Eru þá loksins orðnir tveir
fastir kennarar í greininni. Andras, sem er ungverskur,
hefur M.A.-próf í ensku og rússnesku, M.A.-próf í bókasafns
fræði frá heimalandi sinu og framhaldsgráðu (Certificate
of Advanced Study) frá Bandarikjunum. Hann hefur einnig
lokið doktorsritgerð, en ekki lokið tilskildum prófum.
Hann var háskólabókavörður við Læknisfræðiháskólann i
Debrecen i Ungverjalandi áður en hann kom hingað.
Stundakennsla
Auk lektoranna tveggja eru 14 stundakennarar við kennslu
i bókasafnsfræði i vetur sem er aðeins fækkun þar sem þeir
voru 17 i fyrra.' Alls eru nú á boðstólum 25 námskeið fyrir
utan sameiginlegu skyldugreinarnar fyrir alla deildina, og
er nú jafnframt hægt að taka 90 eíningar i bókasafnsfræði,
eða bókasafnsfræðina eingöngu til B.A.-prófs.
F.ndurmenntun ; =
Nokkuð fer i vöxt að starfandi bókaverðir taki eitt og
eitt námskeið hjá okkur sem nokkurs konar. endurmenntun og
mætti benda mönnum á að nýta sér ennþá betur þennan mögu-
leika. Er bæði hægt að taka fullan þátt i námskeiðunum og
fá fyrir þau einingar og einnig sitja i timum án próftöku.
'i.B.
Nýir bókasafnsfræðingar
S.l. vetur 1979-80 voru nær 70 nemendur við nám auk
þeirra sem hafa lokið...námskeiðum en eiga ólokið B.A.-
ritgerð. Frá okt. 19-79-til okt.1980 '(4 utskrrftir) hafa..’
16 lokið B.A.-prófi með bókasafnsfræði sem aðalgrein og
1 sem lauk 60 einingum til viðbótar við eldra B.A.-próf.
Má þvi telja að alls hafi 17 nýir bókasafnsfræðingar bæst
i hópinn á rúmu ári. Eftirtaldir nemendur luku B.A.-prófi-i
í okt. 1979
Auður Sigurðardóttir
Jóhanna Júliusdóttir
Leonardus Ingason
Þórdis Þórarinsdóttir