Fregnir - 01.11.1980, Side 14
-14-
KYNNING Á STARFSEMI UPPLÝSINQAÞJÓNUSTU RANNSÓKNARÁÐS
Upplýsingaþjónusta Rannsóknaráðs (UR) hefur að undan-
förnu kynnt starfsemi sína með því móti að þeim er hugsan-
lega geta hagnýtt sér þjónustuna hefur verið boðið að vera
viðstaddir þegar tðlvuleitir eru framkvamdar (2-3 skipti
í viku), en það er oftast kl. 11-12 á morgnéma- Þessi
tími getur þó verið breytilegur.
Bókaverðir eru velkomnir á kynningar þessar samkvÆmt
samkomulagi við undirritaðan. Þeir sém hafa áhuga-geta
haft samband í sima 29920 og 29921 kl. 9-13 virka daga.
Þess má einnig geta að haldnir hafa veiið allmargir
kynningarfundir um starfsemi UR og upplýsingamál almennt
að undanfðrnu fyrir ýmsa smáhópa (10-20 manna).
Þeim sem hafa áhuga á slíkum fundi er bent að að hringja
í undirritaðan. Auk þess eru að sjálfsögðu veittar allar
upplýsingar i sima um starfsemina. Nánari upplýsingar um
UR er að finna i ársskýrslu 1978-79. Þar er m.a. lýst
framkvæmd tölvuleitar. Skýrslán er þóstsend þeim sem
vilja gegn 2.000 kr. greiðslu.
Jón Erlendsson
FRÁ DESTAL >• •*
Aóalfundur DESTAL (Deildar starfsfólks i almennings-
bókasöfnum) var haldinn laugardaginn 6. sept. 1980. Erla
Jónsdóttir, Bókasafni Garðabæjar, var endurkjörin formaður.
Aðrir i stjórn eru: Hrafn Harðarson, Bókasafni Kópavogs og
Rebekka Guðfinnsdóttir, Bókasafni Njarðvikur. Til vara
voru kosnar Elfa Björk Gunnarsdóttir, borgarbókavörður
og Elin Guðmundsdóttir, Bústaðaútibúi Borgarbókasafns.
Gestur fundarins var Gunnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri
BSRB. Skýrði hann frá nýafstöðnum aöalkjarasóunningum og
væntanlegum sérkjarasamningum. Þá komu fundarmenn með
fyrirspurnir um uppbyggingu og störf BSRB og ræddu m.a.
möguleikann á þvi að gera Bókavarðafélagið eða DESTAL að
aðildarfélagi.