Alþýðublaðið - 20.07.1969, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 20.07.1969, Blaðsíða 6
lakara. Hann geröist hálfruglaöur, þannig aö hann hræddist útilegumenn og talaði mest um þá og þá hættu, sem af þeim slataöi bæöi íyrir menn og fénaö. Einn þessara útilegumanna var allra mestur og hættulegastur. Það var Stóri-Kolur. Hann átti heima inn viö Fiskivötn fyrir innan Túná eöa Tungnaá og fyrir austan Stórasjó ,sem er innstur allra þessara Fiskivatna. Þar var, eftir því, sem Jón sööli sagði, aöalaösetur útiiegumanna, cg þar var Stóri-Kolur, voidugri en allir aorír útilegumenn. Inn til Veiöivatna fóru menn af Landinu síöari hluta sumars og fengu þar oft á skömmum tíma mikla veiöi, stóran og feit- an silung. Þessir menn máttu ekki síöur en aórir gæta sín fyrir Stóra-Kol. Arni prófastur Þóiarinsson segir í fyrr- nefndum endurminningum sínum, að Jón söðli hafi álitið Stóra-Kol eiga heima uppi á Quðnasteini, hæst uppi á Eyjafjallajökli. Þaö er áreiöanlega hinn mesti misskiln- ingur, því aö fyrir innan Stórasjó átti hann heima og hvergi annars staöar. Flitt er annaö mál, aö hanri gat brugöið sér aö heiman annaö kastiö, og var hann þá jafnan viösjárveröur. Enn fremur segir Árni prófastur Þórar- insson, aö Jón sööli hafi trúað því, aö allur sá fiskur, sem veiddist í Faxaflóa, kæmi undan Vogastapa. Þetta er einnig misskilningur. Jón haföi, eins og áöur get- ur, lengi róið í NjarÖvíkum, og þaöan er tæplega meira en hálfrar klukkustundar róöur inn undir Vogastapa. Jón heíur sennilega, allt frá því aö hann fór fyrst til sjávar, þekkt munnmælin um þaö, hvernig á því stóö, aö nýgenginn neija- fiskur fékkst oft fyrr undir Stapanum en annars staöar í Bugtinni, og ég er því viss um, aö hann hefur aldrei ruglazt í því. Þaö hafði lengi verið reynsla manna, að degi síðar en fiskurinn kom inn undir land í Grindavík, var komið mokfiski undir Vogastapa, án þess aö vart yröi við göngu í Garösjó eða annars staðar í sunnan- veröri Bugtinni fyrr en eftir vikutíma eða svo. Fiskurinn hlaut því aö komast beinni leiö undir Stapann, og þóttust menn þess fullvissir, að hann færi eftir göngum langí niðri, er lægju undir Stapanum og hraun- inu alla leiö suður á fiskimið Grindvíkinga Hvort svo hefur verið, veit sennilega eng- inn með vissu. Hitt er aftur á móti víst, aö netjafiskurinn kom um langt skeið fyrst undir Stapann, err dreifðist ekki það- an vestur eða noröur um Bugtina. Bæöi GarÖ- og Leirumenn biðu komu hans inn fyrir Skagatá og inn í GarÖsjó. Þetta gekk þannig eða svipað þessu mjög lengi. Err svo tók smám saman fyrir aflabrögðin und ir Stapanum, og voru þau nærri horfin, þegar ég kom fyrst til sjóróðra suður í GarÖ á vetrarvertíðinni 1879. Ég heyröi oft um þetta talað, á meðan ég reri í Garö inum, menn töldu fiskinn nálega hættan að ganga undir Stapann. Hiö sama sögðu Keflvíkingar, þegar ég var þar á vertíöinni 1882. Allt hefur Jón söðli vitað um þetta, löngu áður en útilegumannaflugurnar komust í kollinn á honum, og gat hann þess vegna ekki villzt í því, enda heyröi ég aldrei þessa vitleysu um fiskinn undir Stapanum eftir honum hafða. Hitt er aftur á móti ekki ótrúlegt, sem prófasturinn segir, aö menn hafi gert sér leik aö því að segja honum ósannar sögur, eftir að hann var orðinn veikur, og hafa þei,, er slíkt gera, oft þótzt menn að meiri, ef þeir gátu þannig leikið á vesalinga. Síðari hluta ævinnar iét Jón lengstum fyrirberast í Reykjavík. En hvort hanri átti annars staðar lögheimili en í Fljóts- hlíðinni, veit ég ekki. Hann átti fjölda vina og kunningja í Reykjavík, er hann nú heimsótti, og mun hann iengi hafa nctiö góðs hjá flestum þeirra. Á þessum árum ævinnar varð hann ná- lega daglegur gestur hjá móður minni, sem þá var setzt að í Reykjavík ásamt Jóni bróður og fleiri systkinum mínum, sem enn voru með móður okkar, og fékk hann þar mat eftir vild. En vegna ein- stæðingsskapar og þess rugls, sem á hann var komið, varð þrifnaður hans minni en verið hafði og nauðsynlegt var, og þótti hann því miklu lakari næturgestur en áður fyrr, þegar hann var á göngu í verið suður í Njarðvíkur. En vegna þess að Jón sööli var heimilisvinur hjá íoreldr um mínum, á meðan þau bjuggu í Sumar- liðabæ, gat það að sjáifsögðu ekki breytzt þótt hagur hans yrði annar en fyrr haíði verið. Það, sem aðallega kom mér til aö minnast á Jón söðla, eru ummæli Árna prófasts Þórarinssonar í áðurnefndum ævi- sagnaheftum hans. Þau ummæli sýna að hann hefur fengið ósannar sagnir af Jóni, og er þaö að vísu skiljanlegt, þegar þess er gætt, að hann bjó í mikilli fjarlægð frá Reykjavík, og hafa oft ruglazt sagnir á skemmri leið en milli Snæfellsness og Reykjavíkur. Annars fór það ekki ósvipaö fyrir Jóni og mörgum öðrum, að vinahóp- urinn gisnar og virðingin dofnar, þegar ölið er af könnunni, eða þegar heiisa og máttur dofnar.“ Svo mörg voru orð þeirra Árna og Gunn ars. Eins og frásagnir þeirra bera meö sér, hefur Jón sööli verið allsérstæður maður, er ekki hefur bundið bagga sína sömu hnútum og samferðamennirnir. Er og Ijóst af orðum þeirra — og ekki sízt af Ijóðum Þorsteins — að Jón hefur verið fjölgáfaður maður og fjölmenntaður á þeirra tíma mælikvarða, þó að Elli kerling hafi leikið hann grátt, eins og raunar fíeiri mæta menn fyrr og síöar. — Kunni lesendur fleira frá Jóni söðla að segja — eða einhverjum hans líkum — verður þeim fúslega léð til þess rúm hér í helgar- blaði Alþýðublaðsins. G. A. 6 Alþýðublaðið — Helgarblað

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.