Alþýðublaðið - 08.09.1969, Page 14
14 Alþýðíubláðið 8. september 1969
Eftir matinn spurSi hann, hvort ég vildi ekki koma
með sér út í Nauthólsvík, og þar sem veSrið var
afbragSs gott, en það kemur sjaldan fyrir í henni
Reykjavík, sló ég til.
Ég brá mér inn í búð í Hafnarstræti og keypti mér
sundbol og handklæði og svo héldum við Halli af
stað út í Nauthólsvík.
Við skruppum samt fyrst inn á sjoppu og keypt
um okkur gos og súkkulaði.
Ég gat ekki um annað htigsað alla leiðina en svip-
inn, sem kom á hann Guðjón, þegar ég sagði honum
upp og rétti honum hringinn hans aftuf. Já, það eða
þá svipinn á andliti stjúpu minnar, þegar ég kvaddi
hana án þess að vita, að ég ætti aldrei eftir að sjá
hana aftur.
— Hvað varstu annars að segja, Halli? spurði ég.
— Hefurðu alls ekkert hlustað á mig? spurði hann
móðgaður, en það er nú hægara sagt en gert að
hlusta stanzlaust á hann Halla. Hann malar og malar,
en segir yfirleitt aldrei neitt af viti.
— Jú, en hvað varstu að segja núna rétt áðan?
— Ég var að segja þér, að mér hundleiddist í
vinnunni, og að ég væri að hugsa um að hætta þar,
j ef ég fengi eitthvað skemmtilegra að gera. En það
verður kannski ekki jafn leiðinlegt hér eftir sem
hingað til. Ég hitti þig kannski oftar, eftir að þið
Guðjón hafið....
— Við hvað áttu? spurði ég, og það fór hrollur
um mig. Svo að það vissu þetta allir nú þegar!
— Þú heldur þó ekki, að það sé eitthvert leyndar,
mál, að þú hefur rekið hann út á gaddinn? Mamma
hans og mamma eru í bridds saman og hún er alveg
óð yfir þessu og talar ekki um annað en hvað þú sért
og spillt af eftirlæti. En mér finnst það rétt af hverri
stúlku að skila hringnum aftur, ef hún skiptir um
skoðun. Ég þoli ekki þessar stelpur, sem hafa ekk-
er bein í nefinu og giftast þeim fyrsta bezta til þess
eins að _væ!a óhamingjusamar og skilja með fullt
hús af krökkum í eftirdragi.
— Ég vissi ekki, aö þetta hefði frétzt hingað, taut-
aði ég.
— 0, jú, jú, þú ættir nú að vera farin að þekkja
bæinn, sem þú býrð í. Reykjavík er engin Stór.Reykja
vík ennþá, og hér smjatta menn glaðir á öllum kjafta.
sögum, sem rekur á fjörur þeirra.
— Við skulum hætta að tala um þetta, sagði ég.
•— Þetta kemur þér he|dur ekkert við og ég óska
ekki eftir að ræða það nánar.
— Allt í lagi, eins og þú vilt, sagði hann, og þá
vorum við komin að Nauthólsvík.
Það var eiginlega enginn í Nauthólsvík, enda höfðu
borgaryfirvöldin varað menn við að synda þar sökuin
mengunar vatnsins. Ert okkur Halla var sama um það.
Við skiptum um föt inni í bílnum hans. Fyrst ég
meðan hann beið við skúrana, sem eru þarna, og eiga
p víst að heita baðfataskýli eða eitthvað álíka, og svo
hann á eftir. ||
INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR
Eftir að við höfðum vanizt sjónum, sem var nú
alls ekki jafn kaldur og ég hafði búizt við, þótt hann
vær vitanlega kaldari en á Torremolinos, settumst
við upp á einn höfðann.
— Það er reglulega indælt að sitja hérna, sagði
Halli. — Sérstaklega, þegar hér er enginn maður
nema við.
Ég virti hann fyrir mér og horfði á þetta sólbrúna
kringlótta andlit og hárið sem var farið að þynnast
á hvirflinum, og aftur varð mér hugsað til Guðjóns.
Ég sá í arrda fyrir mér fallegt og karlmannlegt andlit
hans og þráði hann svo heitt.
Ég andvarpaði og lét augun aftur. Þá sá ég hvorki
Halla, Guðjón né aðra fyrir mér.
Áður en ég vissi af, hafði Halli lotið yfir mig og
kysst mig beint á munninn.
Ég gat ekki stillt mig. Hvílík frekja! Bara vegna
þess, að flestar stúlkur eru gjafmildar á kossa sína,
hélt hann, að mér væri eins farið. En ég hef aldrei
verið gjafmild á mína kossa, hvað þá laus í rásmni.
Ég sló hann eins fast og ég gat utan undir.
Ég hugsa, að ég gleymi því aldrei, hvernig hann
varð kríthvítur. í framan, eða reiðiglampanum, sem
kom í augu hans. Hann reiddi höndina til höggs, en
ég varð fljótari til og stökk frá honum. Ég varpaði
mér til sunds og synti frá landi eins hratt og ég gat.
Auðvitað ætlaði ég að snúa við og synda aftur að
landi og að ströndinni, þar sem bíllinn beið, en ég
var hrædd og synti of langt út og áður en ég vissi
af, var ég skyndilega komin inn í mjög sterkan
straum, sem ég réði lítið sem ekkert við.
Ég streittist á móti í fyrstu, en smám saman rak
mig lengra út flóann, og ég var orðin svo þreytt.
Eiginlega skipti þetta engu máli lengur. Það skipti
ekki máli eftir það sem kom fyrir með Guðjón. Ég gæti
aldrei treyst neinum manni framar. Ég hreyfði hend
ur og fætur líkt og vélrænt og minntist allra þeirra
skipta, sem Guðjón hafði haldið mér í faðmi sér og
kysst mig. En hvað mér hafði fundizt ég vera ör-
ugg þá. Já, mér fannst, að það gæti aldrei neitt illt
hent mig framar.
Sjórinn luktist yfir höfði mér, og mér skaut aftur
upp á yfirborðið. Ég greip andann á lofti og var skelf-
ingu lostin. Svona er það þá að drukkna, hugsaði ég.
Nú sá ég allt í skíru Ijósi. Það var þægilegt að
binda endi á vandamálin svona, en ég vildi það ekki.
Ég hafði alls ekki ætlað mér að gera þetta, og ég
vissi, að nú myndu allir halda, að ég hefði framið
sjálfsmorð viljandi. Ég vissi, að það mátti ekki verða.
Guðjón skyldí aldrei fá að halda, að ég hefði dáið
vegna þess, að ég gat ekki hugsað mér að lifa án
hans. Svo mikið stolt átti ég þó eftir. Ég varð að kom
ast aftur að ströndinni. Ég varð, en kraftar mínir voru
á þrotum. Það líktist martröð. Einni þeirra, þegar
maður getur hvorki hreyft legg né lið, en verður þó
að reyna við fargið, sem á manni hvílir..
I
I
I
!
I
I
I
I
j
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
Smáauglýsingar
trésmíðaþjónusta
Látið fagmann annast vlðgerðir og vlðhald á tréverkl
húseigna yðar, ásamt breytingum á nýýu og eldra
húsnæði. — Síini 41055.
V OLKS WAGENEIGENDUR!
Höfum íyrirliggjandi: Brettl — Hurðir — Vél’arlok
— Geymslulok á Volkswagen í allftestum litum.
Skiptum á einum degi með dagsfyrirvara fyrir á-
kveðið verð. — Reynið viðskiptin.
Bílasprautun Garðars Sigmundssonar, Skipholtl 25,
Símar 19099 og 20988.
GLUGGAHREINSUN og rennuhreinsun. VönduS
eg góð vinna. Pantið í tíma í síma 15787.
BIFREIÐA STJÓRAR
Gerum við allar tegundir blfrelða. —— Sérgrein;
hemlaviðgerðir, hemlavarahlutir.
Hemlastilling h.f., Súðavogi 14, Sími 30135.
BÓLSTRUN — SÍMI 83513.
Hef flutt að Skaftahlíð 28, klæði og geri við bólstruð
húsgögn. Bólstrun Jóns Árnasonar, Skaftahlíg 28,
sími 83513.
Mun/ð Nýþjónusfuna
Tek að mér allar minniháttar viðgerðir og
klæðningar á bólstruðum húsgögnum í heima
húsum. — Upplýsingar í síma 14213 kl. 12—•
1 og 7—8 á kvöldin.
AGNAR ÍVARS, húsgagnabólstrari.
I——M.l—— ■ I ■■■■.. I —... II !■——^ M
PÍPULAGNIR
Tek að mér viðgerðir og uppsetningu á hrein
lætistækjum, frárennslis- og vatnslögnum.
Guðmundur Sigurðsson
Sími 18717
Jarðýtur - Traktorsgröfur
Höfum til leigu litlar og stórar jarðýtux traktorsgrðf-
tir og bílkrana, tll allra framkvæmda, lnnan og utan
borgarixmar.
JarSviniulan sf.
Síðumúla 15 — Símar 32480 — 31080.
Heimasímar 83882 — 33982.
MATUR OG BENSÍN
allan sólarhringinn.
Veitingaskálin n, Geitháisl.