Alþýðublaðið - 07.11.1969, Blaðsíða 12
/Evintýri og
Fýkur yfir hæðir
Næstkomandi máriudags-
kvöld kemur Ævintýri og
Björgvin fram í sjónvarpinu í
þætti, sem nefnist í góðu tómi.
Er ekki að efa að allar ung-
píur Iandsins sitji negldar fyr-
Ir framan kassann meðan
Björgvin og félagar fremja list
ir sínar. Eldra fólkið fær líka
þátt þetta kvöld, því að þá
riefjast sýningar á sjónvarps-
leikritinu Fýkur yfir hæðir,
sem gert er eftir samnefndri
.skáldsögu Emily Bronte. Þætt-
'irnir verða alls fjórir, og eins
og segir í tilkynningu frá sjón-
varpinu „þurfa áhorfendur
' rieizt að taka frá mánudags-
' fcvöldin næsta mánuð.“
Á þriðjudaginn sprellar Guð-
ar Guðbrandur Magnússon,
fyrrverandi forstjóri ÁTVR og
ritstjóri Tímans, í viðtali við
Magnús Bjamfreðsson í þætt-
' inum Maður er nefndur.
i Á morgun birtum við svo
sjónvarps- og útvarpsskrá.
Fræðslnvaka
í Kópavogi
□ Skógræktarfélag Kópavogs
heldur fræðsluvöku í neðri sal
Félagsheimilis Kópavogs þriðju
daginn 11. nóv. n.k. kl. 8,30
síðd. Aðalefni fræðsluvökunn-
ar er trjárækt við hús, og mun
Jón H. Björnsson, skrúðgarða-
arkitekt, flytja erindi um það
mál. Einnig mun Snorri Sig-
urðsson, skógfræðingur, sýna
myndir til skýringar og
fræðslu. — Þeir, sem gerast
félagar í Skógræktarfélagi
Kópavogs fyrir aðalfund félags
jns í marz n.k. teljast stofnfé-
lagar. Fjölmennið, öllum heim
dll aðgangur. — Skógræktarfé-
lag Kópavogs.
Verðlaun fyrir
heklaða dragl
msð húfu og tösku
□ 181 keppnismunur barst
til hugmyndasamkeppni Gefj-
unar og verzlunarinnar ís-
lenzkur heimilisiðnaður, en
til liennar var efnt á s.l. sumri.
Bar keppnin nafnið Handa-
vinna heimilanna og stóð um
beztu tillögur að handunnum
ullarvörum úr lopa og bandi
frá Gefjun.
136 munir voru hæfir til
mats. Féllu verðlaun eingöngu
á greinarnar prjónles og hekl
og vefnað, að mati dómnefnd-
ar, sem starfaði eftir ströngu
matskerfi.
1. verðlaun fyrir prjónles og
hekl 10 þús. kr. hlaut Margrét
Jakobsdóttir, Reykjavík, fyrir
heklaða dragt með húfu og
tösku. Fékk hún 200 stig.
4 konur fengu 3 þús. króna
verðlaun og 7 konur 1 þús.
króna aukaverðlaun.
Fyrir vefnað fékk 1. verð-
laun kr. 10 þús. Ragnhildur
Jónsdóttir, Hveragerði, fyrir
gólfteppi, sém hlaut 185 stig.
Aukaverðlaun kr. 1 þús. hlaut
bandarísk kona.
Hugmyndabanki Gefjunar
gefur fljótlega út bæklinga
sem sýna það bezta úr
keppninni — og verður hann
sendur handavinnu'kennurum:,
ásamt því að hann liggur
frammi í verzlunum.
TfZKUSÝNING
□ Hér sjáum við þrjár af
sýningardömunum er koma
munu fram á Tízkusýningu
sem Kvenstúdentafélagið efnir
til næstkomandi sunnudag kl.
3 í Súlnasal Hótel' Sögu. Þær
eru frá vinstri talið: Margrét
Schram, Bryndís Jakobsdóttir
og Ragnheiður' Ásgrímsdóttir.
Sýndur verður fatnaður frá
KARL KVARAN
Fulifrúafundur
íSASÍR
O Á fundi Samtaka sveit-
arfélaga í Reykjaneskjördæmi,
(SASÍR), sem haldinn verður
næstk. laugardag, 8. þ. m. kl.
14 í Skiphól í Hafnarfirði,
hefur Jón H. Guðmundsson,
formaður atvinnumálanefndar
Rey k j anessk jördæmis, fram-
sögu um atvinnumálin í kjör-
dæminu. — Bergur Tómasson,
löggiltur endurskoðandi, legg-
ur fram tillögu til samræm-
ingar á reikningsskilum sveit-
arfélaganna, sem endurskoð-
endur í kjördæminu hafa unn-
ið að frumkvæði SASÍR.
SÝNIR
□ Karl Kvaran opnar mál-
verkasýningu í dag kl. 4 í
Bogasal Þjóðminjasafnsins. Á
sýningunni eru 26 geometrisk-
ar myndir málaðar með gou-
chelitumi. Karl thélt ísýningu
fyrir ári síðan. Ilann stundaði
nám í myndlist í Kaupmanna-
höfn í þrjú ár, en hefur auk
þess numið hjá íslenzkum
myndlistarmönnum. Karl hef-
ur lialdið nokkrar einkasýn-
ingar og tekið þátt í fjölda
samsýninga. Sýning hans verð
ur opin frá kl. 2-10 daglega.
Á myndinni er Karl Kvaran,
ásamt 7 ára dóttur sinni,
Elísabetu.
Kjörgarði og Eros í þetta sinn,
og ágóðinn rennur eins og
venjulega til þess að styrkja
stúlkur til framhaldsnáms í
ýmsum greinum hér heima eða
erlendis. Á undanförnum 10
árum hefur félagið veitt 25
styrki, bæði til lista- og vís-
indanáms.
■*4
;1