Helgarpósturinn - 17.10.1994, Síða 30

Helgarpósturinn - 17.10.1994, Síða 30
30 MORGUNPÓSTURINN SPORT MÁNUDAGUR 17. OKTÓBER 1994 England Beardsley stal sigrinum fyrir Newcastíe Markaregn á Ewood Park í Blackbum. Englendingar hugleiða takmarkanir á breskum leikmönnum Tvö efstu liðin í ensku úrvals- deildinni í knattspyrnu, Newcastle og Blackburn, unnu bæði leiki sína um helgina. Nottingham Forest er í þriðja sæti en á leik til góða gegn Wimbledon í dag og stig úr þeirri viðureign kemur liðinu í annað sætið. Everton er á botni deildar- innar og hefur enn ekki unnið leik. Liðið tapaði enn einum leiknum á laugardag og í þetta skipti gegn Co- ventry á heimavelli sínum, Stam- ford Bridge. Lengi vel leit út fyrir markalaust jafntefli hjá Chrystal Palace og Newcastle. Leikurinn var bragð- daufur og verður vart talinn til betri leikja umferðarinnar. Lið Newcastle var langt frá sínu besta og fékk Crystal Palace mun hættu- legri færi í leiknum. Engu að síður var það Newcastle sem hafði sigur í leiknum með frábæru marki Peter Beardsley aðeins 30 sekúndum fyrir leikslok. Liðið hefur nú leikið íjórtán leiki í röð á þessu tímabili án þess að bíða ósigur. Blackburn sigraði Liverpool 3:2 á heimavelli sínum, Ewood Park. Markahrókur- inn Robbie Fowler náði foryst- unni fyrir Liverpool í fyrri hálfleik, en þcir Mark Atkins og Chris Sut- ton komu Blackburn í 2:1. John Barnes jafnaði fyrir Liverpool en það var síðan Sutton sem tryggði heimaliðinu sigur, átján mínútum fyrir leikslok. Það er óhætt að segja að það sé farið að hitna undir Mike Ólíkur uppruni Þessir fjórir félagar í Manchester United eru allir frá ólíkum löndum. Lengst til vinstri er Úkraínumaðurinn Andrei Kanchelskis. Þá kemur Skotinn Brian McClair, Englendingurinn Paul Ince og síð- astur Walesverjinn Ryan Giggs. Samkvæmt núgíldandi reglum telst Kanchelskis vera eini útlendingurinn. „Myndi skaða enska boliann“ segirAlex Ferguson, framkvæmdastjóri Manchester Unrted. Walker, stjóra Everton. Lið hans hefur á að skipa úrvalsleikmönnum og fáir áttu von á að þeir yrðu í botnbaráttU;, Engu að síður hefur liðinu vegnað afleitlega og hefur aðeins fengið þrjú stig úr tíu viður- eignum. A laugardag fengu þeir Coventry i heimsókn og biðu lægri hlut, 0:2. Dion Dublin og Roy We- gerle skoruðu mörkin fyrir Coven- try. Manchester United sigraði lið West Ham með marki frá Eric Cantona í lok fyrri hálfleiks. Manchester City sótt QPR heim og sigraði í leiknum þrátt fyrir að hafa leikið tveimur leikmönnum færri síðasta stundarfjórðunginn. Gary Flitcroft og Paul Walsh náðu for- ystunni fyrir gestina en Clive Wil- son minnkaði muninn fyrir QPR. Markvörður City, Andy Dibble, var rekinn af leikvelli nítján mínút- um fyrir leikslok fyrir að brjóta á Les Ferdinand, sem var kominn einn i gegn. Aðeins fimm mínútum seinna fékk Richard Edghill að líta rautt er hann fékk sína aðra áminn- ingu. Þetta var fyrsti útisigur City á tímabilinu. Aston Villa og Norwich gerðu jafntefli, 1:1, og sömu úrslit urðu í leik Leeds og Tottenham. Teddy Sheringham náði foryst- unni fyrir Tottenham í fyrri hálfleik en Brian Deane jafnaði í þeim seinni. Leicester sigraði Southamp- ton á heimavelli sínum í miklum markaleik. Þegar tvær mínútur voru til leiksloka var staðan 4:1, Le- icester í vil, en tvö mörk á lokamín- útunni frá þeim lain Dowie og Matthew Le Tissier löguðu stöð- una fyrir Southampton. Á High- bury tók Arsenal á móti Chelsea og hafði betur. Dennis Wise kom gestunum yfir en þeir lan Wright, með tvö mörk, og Kevin Camp- bell tryggðu Arsenal sigurinn. í gærdag sigraði Sheffield Wed- nesday síðan Ipswich með tveimur mörkum gegn einu. ■ Forráðamenn enska knatt- spyrnusambandsins eru að hugleiða þann möguleika að taka upp reglur Knattspyrnusambands Evrópu (EUFA) um fjölda erlendra leik- manna í hverju liði. Þetta er mikið hitamál á Englandi þar eð welskir, skoskir, írskir og norður írskir leik- menn hafa hingað til ekki fallið undir þennan flokk en það gæti nú breyst. Graham Kelly hjá enska knatt- spyrnusambandinu sagði í blaða- viðtali í gær að þessar hugmyndir væru komnar upp á borðið hjá sambandinu og enn væri ekkert úti- lokað í þessum efnum. „Við gerum það sem við getum til að efla vöxt enskrar knattspyrnu og enska landsliðsins. Ef þetta gerir það að verkum að knattspyrnan batnar, erum við fylgjandi þessu.“ En það eru ekki allir jafn hrifnir. Alex Ferguson, framkvæmdastjóri meistaranna í Manchester United, sagði að þessar hugmyndir væru al- gjörlega út í hött. „Þetta yrði gífur- legt áfali fyrir lið eins og okkur sem höfum verið að byggja upp ffábæra leikmenn frá þessum svæðum. Þetta kerfi myndi gera það að verkum að fjölmargar frábærar stjörnur kæm- ust ekki í fremstu röð. Hvar væri enska knattspyrnan án manna eins og Denis Law og George Best?“ Ferguson hefur enda næga ástæðu til að vera áhyggjufullur. Lið hans er sneisafullt af annað hvort erlendum leikmönnum eða bresk- um. Menn eins og Eric Cantona, Peter Schmeichel, Ryan Giggs, Mark Hughes, Brian McClair, Dennis Irwin, Andrei Kanchelsk- is og Roy Keane yrðu þá að falla undir þessa reglu og aðeins mætti nota þrjá þeirra í einu. Það gefur auga leið að byggja þyrfti upp nýtt lið. Kelly sagði að málið væri enn á umræðustigi og engar ákvarðanir Alex Ferguson Er ekki hrifinn af hugmyndum um að takmarka fjölda breskra leikmanna í ensku deildinni. Hann er enda stjóri meistaranna sem hafa fjölda slíkra manna innan sinna vé- banda. hefðu verið teknar og það yrði ekki gert fyrr en í janúar. • • FJOLSKYLDUKVOLD Á PIZZA HUT Mánudags- og þriðjudagskvöld: Hlaðborð með pizzum, pasta, og salatbar. a mann 12 ára og yngri, hálftverð. 41ut Ert þú með lánshæfa hugmynd til eflingar atvinnulífi ? Við veitum góðri hugmynd brautargengi! Við veitum fúslega nánari upplýsingar um lán til atvinnuskapandi verkefna í öllum greinum. LANASJÓÐUR VESTUR - NORÐURLANDA RAUÐARÁRSTÍG 25 - PÓSTHÓLF 5410,125 REYKJAVÍK SÍMI: (91) - 605400 FAX: (91) - 29044 Chns Sutton Dyrasti leik- maður enskrar knattspyrnu heldur enn áfram að hrella markmennina og um helg- ina gerði hann tvö mörk í 3:2 sigri Blackburn Rovers á Liverpool. Sutton hefur heldur betur fallið inn í leiksksipulag Kenny Dagli- esh hjá Blackburn og nálg- ast nú óðum sæti í enska landsliðinu. m,

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.