Helgarpósturinn - 08.06.1995, Blaðsíða 5

Helgarpósturinn - 08.06.1995, Blaðsíða 5
Hvellur er verslunar- og þjónustufyrirtæki á Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Fyrirtækið selur sláttuvélar, garðáhöld, hjól og barnavörur. Á veturna framleiðir Hvellur snjókeðjur af öllum stærðum og gerðum. Aðalmerkið í sláttuvélum er Murrey sem er einn stærsti framleiðandi sláttuvéla í Bandaríkjunum og eru vélarnar framleiddar þar. í hjólunum er aðalmerkið lcefox sem var eitt af fyrstu fjallahjól- um sem komu á markað hérlendis. Hvellur var fyrsta fyrirtækið hérlendis sem lét framleiða sérstaklega fyrir sig fjallahjól undir eigin merki. Þess vegna eru lcefox hjólin yfirleitt ódýrust miðað við gæði og búnað. Hvellur rekur eigið verkstæði bæði fyrir hjól og sláttuvélar, og ánægðir viðskiptavinir teljast í tug- þúsundum. Enda hefur góð þjónusta byggt upp fyrirtækið á mjög skömmum tíma. Verðdæmi: Hjól með 24 gíra XTR búnaði, álstelli og Manitou fjöðrunargafli kostar ca. 140.000.- Hjól með Deore LX, álstelli, gaffli og titanium stýrisstammi fæst fyrir 72.726.- Þrautreyndir við- gerðamenn með keppnisreynslu í fjallahjólaíþróttum sérhanna og raða saman hjólum fyrir kröfuharðasta hjólafólk. Sýnishorn af miklu úrvali fylgi- og varahluta. Þú finnur allt sem þú þarft fyrir hjólið þitt hjá okur. Hvellur er með á lager mikið úrval af demparagöfflum t.d. Manitou 4 sem er gaffall í keppnisklassa á 27.620.- og nokkrar gerðir af RST demparagöfflum, Verð frá 6.750.- til 13.430.-

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.