Helgarpósturinn - 03.04.1996, Side 2
saasi
V.
MtÐVIKUDAGUR 3. APRIL1996
Ymsir lyljafræöingar eru nú að
undirbúa opnun apóteka eftir
aö lög um frelsi til lyfsölu tóku
gildi. Samkvæmt því sem heyrst
hefur er í bígerð að opna að
minnsta kosti þrjú ný apótek í
Reykjavík og eru umsóknir til
meöferðar í borgarkerfinu. í Kefla-
vík er Þorvaldur Ámason lyfja-
fræðingur aö opna apótek um
þessar mundir. Fleiri lyfjafræðing-
ar íhuga stofnun apóteka í þeim
bæ...
Þennan tókum við úr Víkurfrétt-
um: Á fundi meö Finni Ing-
ólfssyni iðnaöar- og viöskiptaráð-
■*»1
Mynd: Jim Smart
Kaðall
herra á Flughótelinu kom upp
skondið atvik. Eftir framsögu ráð-
herra og aöstoðarmanna hans
spurði Siv Friðleifsdóttir, sem
stjórnaöi fundinum, hvort ein-
hverjir vildu koma með fyrirspurn-
ir. Smástund leiö þar til Steindór
Sigurðsson, framkvæmdastjóri
SBK og flokksbróöir Finns og Sivj-
ar, stóð upp. Spurði þá Siv hvort
Sigur andans á holdinu
í Rósenbergkjallara
Tveir ungir listamenn í
Reykjavík ætla að pakka
vesturbænum í Reykjavík inn í
kaðal á laugardaginn. Hug-
myndin er rakin til hins rúm-
enska Christos, sem pakkaði
þinghúsinu í Berlín inn í silfur-
Íitan dúk. Helgarpósturinn
spjallaði við annan gjörnings-
manna, Teit Atlason, og
spurði hvurn fjárann þeir
væru að gera?
„Við ætlum að ganga með
kaðal kringum allan vesturbæ-
inn eins og hann leggur sig og
binda hann inn með kaðlinum,
en þetta eru um átta til níu
kílómetrar."
Af hverju í ósköpunum er-
uð þið að þessu?
„Þetta er bara gert til að hafa
gaman af því. Ætlunin er að
byrja fyrir framan ráðhúsið og
ganga þaðan. Svo ætlum við að
reyna að fá einhvern skemmti-
legan kandídat til að binda
hnútinn á kvikindið. Til dæmis
Ingibjörgu Sólrúnu Gísladótt-
ur, Hrafn Gunnlaugsson, Pét-
ur Stein Guðmundsson fyrr-
verandi útvarpsmann eða Jón
Gústafsson úr spurningaþætt-
inum SPK.“
hann ætlaöi að spyrja ráöherra
um eitthvaö. Steindór, sem á til
hnyttin tilsvör, svaraði þá að
bragði yfir allan salinn: „Nei, ég
var bara á leiðinni fram að
pissa." Þaö var ekki að sökum aö
spyrja; salurinn sprakk...
Á annan dag páska verður
haldin upprisuhátíð í
Rósenbergkjallaranum í
Reykjavík. Hátíðin er
haldin í tilefni endurfæð-
ingar og hringrásar nátt-
úrunnar og sérstaklega
tileinkuð þeim mörgu
guðum sem hafa fórnað
sér sjálfir og risið upp aft-
ur. Vorgleðin hefst á
Tryggva Hansen og Seið-
bandinu. Dagskráin sam-
anstendur svo af söng- og
gleðisveitum ýmiss konar
og upplestri skálda. Þeir
sem koma fram eru:
Agnaríus, Kokkur Kyrjan
Kvæsir, Súkkat og fleiri...
... Draumadísum í Regnbogan-
um. Alveg hreint Ijómandi ágætri
kvikmynd Ásdísar Thoroddsen um
villuráfandi unglingsstúlkubeib i
Reykjavík.
... Ljósmyndasýningu ljósmynda- ^
félagsins RGATM í Gallerí Geysi
— Hinu húsinu, við Ingólfstorg.
... Skúlptúrum og lágmyndum
Kristins E. Hrafnssonar sem eru
snilldarlega nátengd náttúru og
sýnd í galleríinu í Ingólfsstræti 8.
... heimapartíum og almennri
ástundun sérislenskra helgisiða í
tilefni af helgustu hátíö kristinna
manna: páskunum. Þaö er heldur
ekki úr vegi aö biöja svo sem eins
og eitt Faöirvor fyrir háttinn og
krossa sig í bak og fyrir þegar sest
er aö snæðingi. Amen. |
ósið...
... fær Stefán Jón Hafsteln fyrir þætt-
ina Almannaróm á Stöö
2. Þarna sameinar
Stefán oft lífleg skoö-,
anaskipti og ágæta
skemmtan þegar
hann er heppinn
meö fólk og um-
ræöuefni. Sjálfur er
Stefán sannfæröur
um eigiö ágæti og er
þaö vel, því stjórnandi
svona þáttar þarf aö hafa
sjálfstraustiö í lagi og hafa hæfilegan
aga á liöinu. Hann gengur eftir því aö
fá svar viö sfnum spurningum og ann-
arra sem þarna koma fram og lætur
menn ekki komast upp með neinn
moöreyk. Hann tekur eitt málefni fyrir
í einu og reynir aö ræöa þaö f botn
eftir þvf sem tími vinnst til og svo end-
ar þetta meö þjóöaratkvæöagreiöslu.
Þetta er allt annaö form en þessir
heföbundnu umræöuþættir sem alltof
lengi hefur veriö boöiö upp á í sjón-
varpi þar sem nokkrar manneskjur
koma saman og þæfa umræöuefniö í
klukkutíma sfn á milli án nokkurs ár-
angurs. Stefán Jón hefur bryddaö á
ýmsum nýjungum í útvarpi og sjón-
varpi á undanförnum árum. Hann byrj-
aöi meöal annars meö Þjóöarsálina á
Rás 2 á sínum tíma, sem þá var kær-
komin nýbreytni en hefur aö vfsu snú-
ist upp f eitt allsherjar þjóöarvæl. Svo
stjórnaöi Stefán spumingakeppni
framhaldsskólanna af slfkri röggsemi
aö skólamir hótuöu aö hætta þátttöku
ef ekki yröi fenginn annar stjórnandi.
Hvaö sem þessu líöur þá veröur ekki
framhjá þvf litiö aö Stefán Jón er einn
albesti sjónvarpsmaöurinn okkar og
þaö er almannarómur aö hann sé rétt-
ur maöur á réttum staö meö þátt sinn
á Stöð 2...
Raksáp(a)
Lelðréttlng:
Klara Thorarensen
I næstsíðasta tölublaði HP
var sagt frá nokkrum fyrir-
sætum sem eru að gera það
gott á vegum Eskimo Models.
Þar urðu þau leiðu mistök að
Kiara Thorarensen var sögð
Svelnsdóttlr og er beðist vel-
virðingar á þessarl misritun.
Raksáp(a) er dulfyrirsögn
og næstum því páskar aft-
urábak. Hehehe. Og nú eru
þessir óþolandi karakterar sem
gangast upp í öllum hátíðar-
dögum og hafa hlakkað til
páskanna síðan um jólin, nú
eru þeir búnir að fletta áfram í
leit að einhverju páskastöffi.
Hehehe. Og missa af þessum
páskapistli. Hehehe.
Ritstjóri þessa ágæta blaðs
hringdi í mig í vikunni og bað
mig að snúa út úr Passíusálm-
unum svo hann gæti birt það í
þessu blaði. Hann er einhvern
veginn þannig. „Ekki samt hafa
það of dónalegt, en samt, þú
veist kannski doldið.“ Svo
heyrðist perralegt „hehehe“.
Hann er... já. Það er mynd af
honum á síðu tólf.
Og ég fletti Passíusálmunum,
í huganum. Auðvitað kann bók-
menntafræðineminn sálmana
hans HP utanað. Og auðvitað
vill ritstjóri HP endilega snúa
út úr þeim. En ekki HB. Það
furðulega var, er, og verður að
ég hafði ekki (ó)geð í mér til að
snúa út úr sálmunum. Átti ég
að fara að snúa brilljantínunni
„Allt eins og blómstrið eina“
upp í „Svalt er tólið hans
Steina“? Það er bæði lélegt og
dónalegt. Svo ég hringdi niður
á HP og sagðist ekki vilja snúa
út úr HP. „Fáðu biskupinn í
það.“ En þá sagði ritstjórinn að
það hefði staðið í DV að ÓS
væri ekki einu sinni í „jafnvægi“
til að sinna embætti, hvað þá
að snúa út úr HP. „OK. En fáðu
þá ÓS í það eftir páska. Það er
ekki hægt að gera neitt annað
um páskana en komast í jafn-
vægi.“ Skipstjórinn á HP sagði
það of seint þá. „SFW þótt það
sé eftir páska?" Þá sagði rit-
stjórinn að það væri eins og að
snúa út úr jólavísum á þorran-
um. Svo bætti hann við:
„EAFEH!!!“ og var reiður. Og
hvað gerir maður eftir að hafa
fengið svoleiðis gusu framan í
sig? DÍÞORESS? Nei, varla.
Líklega eru páskarnir alleið-
inlegasti tími ársins. Þegar
reynt er að berjast í gegnum
föstudaginn langa nánast
skynjar maður hvað honum
Krístni hlýtur að hafa ekki bara
liðið illa á krossinum, heldur
líka leiðst hrikalega. Guð minn
almáttugur hvað þetta er leið-
inlegur dagur! Og maður sem
trúði á betra líf á föstudaginn
langa með öllum nýju fjölmiðb
unum. Neinei og þvert á móti. í
útvarpinu er annaðhvort verið
að lesa upp úr Biblíunni, tala
við einhvern kraftaverkafræð-
inginn eða spiia grenjulög með
permanentundrunum Kenny
G. og Michael Bolton þar sem
heimsendir er boðaður með
emji í lok hverrar línu af því
söngvarinn „lost her“ því hann
elskaði hana ekki nógu heitt.
Hverjum er ekki skítsama! Og
ef maður kveikir á sjónvarpinu
er verið að sýna Schindler’s
List, Gandhi, fræðsluþátt um
Jerúsalem eða mynd með
Meryl Streep. Yfirleitt endar
maður á því ganga um gólf með
fjarstýringarnar á bakinu líkt
og þessi hinn þurfti að gera,
hrynja svo niður og byrja allt í
einu að gráta. Gjörsamlega
búinn.
En þá er einmitt kallað: „Ertu
ekki tilbúinn!". Og maður rifinn
í fermingarveislu þar sem ein-
hver bólugrafinn ættingi telur
með stjörnur í augum og
græðgisslef í slaufunni hvort
hann fékk 170 eða 175 þúsund
„í peningum“ og reynir svo
laumulegur að sníkja af manni
I
>
síðustu sígarettuna. „Þú getur
keypt þér þínar sígarettur sjálf-
ur. Það er ekki einu sinni al-
mennileg brauðterta í boði
hérna!“ En þá er maður minnt-
ur illþyrmilega á með sam-
blandaðri röddu viskídrykkju-
manns og vælandi konu að
„það er allt lokað“.
Akkúrat. Á páskunum er allt
lokað. Stífa líkamsræktarpró-
grammið fokkast upp og enn
stífara drykkjuplanið líka. Og
HP hlýtur að Ienda í vandræð-
um með að segja frá í næsta
blaði „Hverjir voru hvar“. Sjálf-
ur endar maður líklega á að
þamba pilsner með fermingar-
barninu og deila síðustu sígar-
ettunni. Þegar það er orðið „-
fullt" reynir maður svo ropandi
að sannfæra það um að hið
eina rétta í stöðunni sé að við
skellum okkur bara til Amster-
dam fyrir 170-175 þúsund-kall-
inn. Því að ísland — og íslenskt
Teikning: Bragi H.
„Á páskunum er allt lokað. Stífa líkamsræktarprógrammið
fokkast upp og enn stífara drykkjuplanið líka ... maður
endar líklega á að þamba pilsner með fermingarbarninu
og deila síðustu sígarettunni. Þegar það er orðið „fullt“
reynir maður svo ropandi að sannfæra það um að hið
eina rétta í stöðunni sé að við skellum okkur bara til
Amsterdam íyrir 170-175 þúsund-kallinn. Því að á
íslandi er guðdómlega leiðinlegt um páskana.
Og þetta pakk dó Jesús íyrir.“
þjóðlíf — er guðdómlega leiðin-
Íegt um páskana.
Og þetta pakk dó Jesús fyrir.
ES: Er ekki kominn tími til
að setja meira nammi inn í
eggin? Mamma segir að það
hafi verið miklu meira nammi
inhi í þeim þegar hún var
yngri. „Og þá var fóturinn undir
alveg úr gegnheilum súkkulaði-
massa.
Höfundur þykist svo upptekinn
af bókmenntafrsðinámi sinu að hann orkar
ekki að skrífa nema tvo Kumpána-pistia
lá blaósíðu 31| t mánuði. Pistillinn hér
er dæmi um hversu úrræðagóður rftstjórí
hans er í þeini viðleitni að láta eftiriætisson
HP njóta sín í auknum mæli...
V